Fréttablaðið - 10.01.2005, Blaðsíða 55
26 10. janúar 2004 MÁNUDAGUR
LEIKIR GÆRDAGSINS
HANDBOLTI Stjörnustúlkur tryggðu
sér í gær sæti í sextán liða úrslit-
um Áskorendakeppni Evrópu í
handknattleik með því að vinna
stórsigur á gríska liðinu APS
Makedonikas, 35-13, í Ásgarði.
Sigur Stjörnunnar var, eins og
lokatölurnar gefa til kynna, mjög
öruggur og leyfði Erlendur Ísfeld,
þjálfari Stjörnunnar, öllum leik-
mönnum sínum að spila.
Stjörnuliðið hafði yfirburði á
öllum sviðum handknattleiksins í
gær enda var gríska liðið afar lé-
legt og það langslakasta sem
sýndi listir sínar á fjölum Ásgarðs
um helgina. Sigurinn stóri nægði
þó ekki til að hreppa efsta sætið í
riðlinum. Það fór til svissneska
liðsins Spono Nottwill sem vann
tyrkneska liðið Eskisehir
Osmangazi, 32-22, í lokaumferð-
inni í gær.
Stjörnustúlkur fóru rólega af
stað í leiknum og leiddu með sjö
mörkum í hálfleik, 14-7. Í síðari
hálfleik tóku þær hins vegar öll
völd og hreinlega kaffærðu tyrk-
neska liðið.
Erlendur Ísfeld, þjálfari
Stjörnunnar, var sáttur þegar
Fréttablaðið ræddi við hann í
leikslok. Hann sagði fyrir leiki
helgarinnar að markmiðið væri að
komast áfram og það tókst.
„Við náðum þeim markmiðum
sem við settum okkur og það er ég
gríðarlega ánægður með. Stelp-
urnar stóðu sig frábærlega en
mér finnst þær eiga enn meira
inni. Liðið á eftir að toppa og ef
það gerist á næstunni þá er allt
mögulegt í sextán liða úrslitun-
um,“ sagði Erlendur en dregið
verður í sextán liða úrslitum á
þriðjudaginn.
oskar@frettabladid.is
EITT MARK AF 35 Hind Hannesdóttir
sést hér skora eina mark sitt í fádæma
öruggum sigri Stjörnunnar á gríska liðinu
APS Makedonikas í Áskorendakeppni
Evrópu í gær. Fréttablaðið/E. Ól
Yfirburðir Stjörnunnar
gegn slökum Grikkjum
Stjarnan vann tuttugu og tveggja marka sigur, 35–13, á gríska liðinu
Makedonikas og tryggði sér sæti í sextán liða úrslitum Áskorendakeppninnar.
Varnarmaðurinn Gestur Gylfason,sem er orðinn 36 ára gamall, er
genginn í raðir Keflvíkinga og mun
spila undir stjórn
Guðjóns Þórðar-
sonar í Lands-
bankadeildinni á
komandi tímabili.
Gestur hefur spilað
með Grindvíkingum
undanfarin þrjú ár
en var samnings-
laus nú um áramótin. Gestur er upp-
alinn Keflvíkingur og hefur leikið 158
leiki með liðinu í efstu deild og skor-
aði í þeim fjögur mörk.
Franski framherjinn Nicolas An-elka, sem leikur með Manchester
City, vildi ekki spila
með félaginu gegn
Arsenal í ensku úr-
valsdeildinni á dög-
unum og þóttist
vera meiddur. An-
elka vildi ekki láta
lækni liðsins líta á
sig og sagði Kevin
Keegan, knattspyrnustjóri Manchest-
er City, að framkoma hans væri óþol-
andi. Anelka vill fara frá Manchester
City og ljóst er að Keegan mun selja
hann um leið og viðunandi tilboð
berst í kappann.
Fjölnismaðurinn Ívar Björnsson ergenginn til liðs við Landsbanka-
deildarlið Fram. Ívar, sem er tvítugur,
á að baki fimm leiki
með U-19 ára
landsliðinu og sex
leiki með U-17 ára
landsliði Íslands en
hann var einn af
bestu mönnum
Fjölnisliðsins í 1.
deildinni á síðasta
tímabili. Ívar lék alla átján leiki liðs-
ins og skoraði fjögur mörk. Hann er
fjórði leikmaðurinn sem gengur í
raðir Framara í vetur en áður höfðu
Þórhallur Dan Jóhannsson, Víðir
Leifsson og Kristinn Darri Röðuls-
son skrifað undir samning við Safa-
mýrarliðið.
Ítalski leikmaðurinn Paolo Di Caniogæti verið í verulegum vandræðum
eftir að hann fagnaði marki sínu fyrir
Lazio gegn
erkifjendun-
um í Roma að
hætti fasista-
f o r i n g j a n s
Benito Mus-
solini. Sá var
dyggur stuðn-
i n g s m a ð u r
Lazio og þótti
kveðja Di
Canios, þar
sem hann lyfti hægri höndinni í átt
að stuðningsmönnum Roma, ekki
við hæfi. Ítalska lögreglan skoðar nú
málið og gæti Di Canio verið í vond-
um málum ef hann verður fundinn
sekur um fasistalega framkomu.
Sjálfur segist hann ekki hafa gert
neitt rangt.
Finnski markvörðurinn Antti Niemi,sem leikur með Southampton,
segist vera tilbúinn til að leysa mark-
varðavandræði Manchester United og
Arsenal. Niemi, sem þykir vera einn
af betri mark-
vörðum ensku
úrvalsdei ldar-
innar, sagði við
enska fjölmiðla í
gær að hann
væri ánægður
hjá Sout-
hampton en
hann myndi
hlusta á tilboð ef
annað hvort Manchester United eða
Arsenal sýndu áhuga.
Ítalski framherjinn Antonio Cassa-no, sem leikur með Roma, segist vel
geta hugsað sér að spila fyrir
spænska stórliðið Real Madrid.
Cassano hefur
oft lent upp á
kant við forráða-
menn félagsins
og sagði við
ítalska fjölmiðla
að Real Madrid
væri draumaliðið
sitt. „Félagið heill-
ar mig og er
draumafélag fyrir
alla knattspyrnu-
menn. Það eru
nokkur félög utan Ítalíu sem ég gæti
hugsað mér að spila fyrir en Real Ma-
drid er efst á óskalistanum,“ sagði
Cassano sem verður að öllum
líkindum seldur frá ítalska félaginu
þar sem hann vill ekki skrifa undir
nýjan samning.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Enska bikarkeppnin
YEADING–NEWCASTLE 0–2
0–1 Lee Bowyer (51.), 0–2 Shola Ameobi (61.).
ARSENAL–STOKE 2–1
0–1 Wayne Thomas (45.), 1–1 Jose Antonio
Reyes (50.), 2–1 Robin van Persie (70.).
Bikarkeppni KKÍ - karlar
FJÖLNIR–SKALLAGRÍMUR 108–102
Stig Fjölnis: Darrell Flake 19, Magnús Pálsson 18,
Brynjar Kristófersson 18, Jeb Ivey 18, Pálmar
Ragnarsson 16, Nemanja Sovic 14.
Stig Skallagríms: Clifton Cook 43, Jovan
Zdravevski 27.
HAMAR/SELFOSS–GRINDAVÍK 86–81
Stig Hamars/Selfoss: Damon Bailey 31, Chris
Woods 18, Marvin Valdimarsson 16.
Stig Grindavíkur: Páll Axel Vilbergsson 23, Terrel
Taylor 22, Darrell Lewis 21.
KEFLAVÍK–NJARÐVÍK 85–88
Stig Keflavíkur: Anthony Glover 30 (10 frák.),
Nick Bradford 21 (12 frák.), Sverrir Sverrisson 9,
Jón Nordal Hafsteinsson 8.
Stig Njarðvíkur: Anthony Lackey 30 (13 frák.),
Brenton Birmingham 20 (12 stoðs.), Friðrik
Stefánsson 12, Matt Sayman 12.
Bikarkeppni KKÍ - konur
HAUKAR–NJARÐVÍK 70–69
Stig Hauka: Ebony Shaw 26, Helena Sverrisdóttir
18, Ösp Jóhannesdóttir 11.
Stig Njarðvíkur: Jaime Woudstra 19, Petrúnella
Skúladóttir 12, Vera Janjic 12.
KEFLAVÍK–ÍS 79–60
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 25, Bryndís
Guðmundsdóttir 17, Reshea Bristol 14 (13 frák.,
10 stolnir, 9 stoðs.), Anna María Sveinsdóttir 13.
Stig ÍS: Signý Hermannsdóttir 26 (11 frák.), Stella
Rún Kristjánsdóttir 13, Þórunn Bjarnadóttir 13
(11 frák.).
BREIÐABLIK–GRINDAVÍK 55–81
Ítalska A-deildin
BOLOGNA–CHIEVO 3–1
1–0 Locarelli (28.), 2–0 Tare (60.), 2–1 Zanchetta
(77.), 3–1 Belluci, víti (87.).
FIORENTINA-LAZIO 2–3
1–0 Miccoli (21.), 1–1 Di Canio (33.), 1–2
Pandev (64.), 1–3 Dabo (82.), 2–3 Miccoli (84.).
INTER–SAMPDORIA 3–2
0–1 Tonetto (44.), 0–2 Kutuzov (83.), 1–2
Martins (88.), 2–2 Vieri (90.), 3–2 Recoba (90.).
JUVENTUS–LIVORNO 4–2
1–0 Del Piero (17.), 2–0 Camoranese (25.), 2–1
Vidigal (42.), 3–1 Zlatan Ibrahimovic (75.), 3–2
Melara (80.), 4–2 Camoranese, víti (90.).
LECCE–REGGINA 1–1
1–0 Babu (43.), 1–1 Mozart (45.).
MESSINA–BRESCIA 2–0
1–0 Donati (6.), 2–0 Parisi, víti (70.).
ROMA–ATALANTA 2–1
1–0 Montella (40.), 2–0 Montella (53.), 2–1
Marcolini (85.).
SIENA–PARMA 0–1
0–1 Gilardino (21.).
UDINESE–CAGLIARI 2–0
1–0 Di Natale (24.), 2–0 Pisana, sjálfsm. (59.).
PALERMO–AC MILAN 0–0
STAÐA EFSTU LIÐA
JUVENTUS 18 13 4 1 33–10 43
AC MILAN 18 11 6 1 32–11 39
UDINESE 18 10 4 4 27–15 34
INTER 18 6 12 0 38–26 30
SAMPDORIA18 8 3 7 19–15 27
ROMA 18 7 5 6 33–27 26
PALERMO 18 6 7 5 16–12 25
CAGLIARI 18 7 4 7 26–31 25
LAZIO 18 6 5 7 24–24 23
Spænska 1. deildin
VALENCIA–LEVANTE 2–1
1–0 Baraja (55.), 2–0 Mista (60.), 2–1 Congo
(73.).
SEVILLA–GETAFE 0–0
NUMANCIA–ATHLETIC BILBAO 1–1
0–1 Del Horno (46.), 1–1 Tevenet (65.).
ESPANYOL–OSASUNA 4–1
0–1 Webo (16.), 1–1 Maxi (32.), 2–1 Fredson
(36.), 3–1 de la Pena (40.), 4–1 Fredson (83.).
MALLORCA–DEPORTIVO 2–2
0–1 Luque (50.), 1–1 Garcia (56.), 1–2 Luque
(61.), 2–2 Okubo (63.).
SANTANDER–MALAGA 2–1
1–0 Guerrero (26.), 2–0 Regueiro (40.), 2–1
Navas (85.).
R. SOCIEDAD–ALBACETE 0–2
0–1 Pacheco (6.), 0–2 Pacheko (48.).
R. ZARAGOZA–REAL BETIS 1–0
1–0 Savio (43.).
A. MADRID–R. MADRID 0–3
0–1 Ronaldo (14.), 0–2 Solari (81.), 0–3 Ronaldo
(84.).
VILLARREAL–BARCELONA x–x
1–0 Forlan (30.), 2–0 Gonzalo (48.).
STAÐA EFSTU LIÐA
BARCELONA 17 13 3 1 35–11 42
VALENCIA 18 10 5 3 29–13 35
R. MADRID 18 11 2 5 29–13 35
ESPANYOL 18 10 3 5 22–13 33
SEVILLA 18 9 5 4 21–18 32
R. BETIS 18 7 6 5 22–21 27
OSASUNA 18 8 3 7 27–29 27
A. BILBAO 18 7 4 7 25–21 25
A. MADRID 18 7 4 7 18–17 25
VILLARREAL 17 5 7 5 21–14 22
Ekkert hefur heyrst frá Jaliesky Garcia frá því að hann fór til Kúbu:
Viggó tekur ákvörðun í dag
HANDBOLTI Forysta Handknattleiks-
sambands Íslands og landsliðs-
þjálfarinn Viggó Sigurðsson
munu taka ákvörðun, um hvort
stórskyttan Jaliesky Garcia verði
í landsliðshópnum sem fer á
heimsmeistaramótið í Túnis, í
dag. Garcia hefur ekkert látið í
sér heyra frá því að hann fór til
Kúbu til að vera viðstaddur jarð-
arför föður síns á milli jóla og
nýárs og sagði Viggó í samtali við
Fréttablaðið í gær að framkoma
Garcia væri furðuleg.
„Hann á að mæta hjá Göpp-
ingen á morgun og það verður
gaman að sjá hvort hann birtist
þar. Við höfum reynt allar leiðir
til að hafa uppi á honum á Kúbu
en ekki haft erindi sem erfiði. Við
vonumst til að heyra í honum í
dag eða á morgun og fá skýringar
á fjarveru hans og munum taka
ákvörðun í framhaldinu,“ sagði
Viggó í gær.
Hann sagði aðspurður að það
væri ekkert stórmál ef Garcia
yrði ekki með í Túnis. „Það er
enginn ómissandi en ég neita því
ekki að ég hafði hugsað mér að
nota Garcia í skyttuhlutverkið.
Við eigum hins vegar menn eins
og Markús Mána Michaelsson og
Vilhjálm og ég treysti þeim full-
komlega til að leysa þessa stöðu,“
sagði Viggó. -ósk
JALIESKY GARCIA Týndur og tröllum gefinn á Kúbu og ljóst að þátttaka hans á HM í
Túnis er í uppnámi. Fréttablaðið/Pjetur
Áskorendakeppni Evrópu
STJARNAN–MAKEDONIKAS 35–13
Mörk Stjörnunnar: Elísabet Gunnars-
dóttir 7, Anna Blöndal 6, Hekla Daða-
dóttir 5, Kristín Clausen 4, Anna Einars-
dóttir 3, Kristín Guðmundsdóttir 2, Lilja
Lind Pálsdóttir 2, Ásdís Sigurðardóttir 2,
Rut Steinsen 2, Hind Hannesdóttir 1, Elsa
Rut Óðinsdóttir 1.
Varin skot: Helga Vala Sigurðardóttir 12,
Helga Dóra Magnúsdóttir 1.
SPONO–ESKISEHIR 32–22
STAÐAN
SPONO 3 2 1 0 99–57 5
STJARNAN 3 2 1 0 89–60 5
ESKISEHIR 3 1 0 2 75–75 2
MAKEDON. 3 0 0 3 37–108 0
Þrír hringir á búnir á Mercedes-mótinu í golfi:
Singh leiðir á Hawaii
GOLF Það verður ekki auðvelt fyrir
Tiger Woods að fylgja Vijay Singh
eftir þrátt fyrir gott gengi hans að
undanförnu en Singh leiðir nú
Mercedes-mótið á Hawaii á nítján
undir pari en næstir honum koma
Jonathan Kaye frá Bandaríkjun-
um, höggi á eftir, og aðeins aftar
þeir Ernie Els og Stewart Cink.
Ástralinn Stuart Appleby og
Tiger Woods koma þar rétt á eftir
en Appleby sigraði þetta mót
einmitt á síðasta ári.
Það segir meira en mörg orð
um Fiji-búann að hann hefur ekki
enn farið holu yfir pari í keppn-
inni en haldið forystunni frá
fyrsta hring og sýnir þess engin
merki að hann ætli sér að láta
hana af hendi. ■
EKKERT GEFIÐ EFTIR Vijay Singh byrjar
nýja árið með stæl og er efstur eftir þrjá
hringi á Maui á Hawaii.
HUGSANLEGIR MÓTHERJAR
STJÖRNUNNAR
ZRK Split Króatíu
CJF Fleury les Aubrais Frakklandi
BSV Buxtehude Þýskalandi
Bayer Leverkusen Þýskalandi
WHC Kumanovo Makedóníu
MKS Vitarel Jelfa Póllandi
Colegio de Gaia Portúgal
Oltchim Valcea Rúmeníu