Fréttablaðið - 26.01.2005, Page 10

Fréttablaðið - 26.01.2005, Page 10
PUÐAÐ Í SNJÓNUM Suður-kóreskir hermenn stunda strangar vetraræfingar í Pyeongchang austur af Seúl. 10 26. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR Síldarvinnslan: Samkeppni um starfsfólk að aukast ATVINNUMÁL Björgólfur Jóhanns- son, forstóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, telur að samkeppni um starfsfólk sé að aukast á svæð- inu. Vinnumarkaðurinn verði gjörbreyttur þegar álverið hefji starfsemi árið 2007 því að þá kom- ist hreyfing á sérhæft starfsfólk. „Við finnum að það er aukin samkeppni með að fá ákveðna starfshópa til starfa og það á eftir að aukast,“ segir hann. „Hreyfing á starfsfólki gefur okkur líka tækifæri, til dæmis með því að gera meiri kröfur til starfsmanna og reyna að fá hæfara starfsfólk.“ Síldarvinnslan hefur verið stærsti vinnuveitandinn á svæð- inu eða sem nemur 80-85 prósent- um af vinnumarkaðnum en stjórn- endur fyrirtækisins hafa um nokkurt skeið talað um að það myndi breytast með álveri á Reyðarfirði. Skipulagsbreytingar hafa því átt sér stað hjá fyrirtæk- inu til að búa það undir breyttar aðstæður. „Við erum búin að færa ýmsa vinnu yfir í einkafyrirtæki,“ segir Björgólfur. - ghs Vill 5.000 milljarða aukalega Bandaríkjaforseti vill fá aukafjárveitingu upp á 5.000 milljarða króna vegna stríðsins gegn hryðjuverk- um. Meirihluti fjárveitingarinnar mun renna til heraflans í Írak en kostnaður vegna stríðsins er löngu farinn fram úr áætlun. WASHINGTON, AP George W. Bush Bandaríkjaforseti mun óska eftir aukafjárveitingu frá bandaríska þinginu að andvirði 5.000 milljarða króna til að standa straum af kostnaði við stríðsreksturinn í Írak og Afganistan. Féhirðir Hvíta húss- ins kunngjörði þetta í gær. Verði þingið við ósk forsetans verður heildarkostnaður stríðs- ins gegn hryðjuverkum, sem hófst eftir 11. september 2001, kominn upp í sautján þúsund milljarða króna. Það er tæplega helmingur þess fjár sem Banda- ríkjamenn eyddu í fyrri heims- styrjöld og í Víetnamstríðinu reiknað á núvirði og um sexföld þjóðarframleiðsla Íslands. Þrír fjórðu hlutar af aukafjárveiting- unni munu renna til heraflans í Írak. Kostnaður vegna stríðsins er löngu farinn fram úr áætlun. Á sínum tíma taldi efnahagsráð- gjafi Bush að Íraksstríðið myndi kosta bandaríska skattgreiðend- ur sex til tólf þúsund milljarða króna. Talið er líklegt að þingið samþykki aukafjárveitinguna, sem verður ekki lögð formlega fyrir það fyrr en eftir að Bush hefur kynnt fjárlagafrumvarp sitt fyrir næsta ár hinn 7. febrú- ar næstkomandi. Leiðtogi minnihlutans á þingi, demókratinn Nancy Pelosi, segir að það sé á ábyrgð þingsins að sjá bandarískum hermönnum fyrir því sem þá vantar en þingmenn munu fara fram á að Bush skýri stefnu sína og markmið í Írak og segi hvað hann telji það munu kosta að ná þeim. Þá undrast hún að íraskir hermenn gegni ekki veigameira hlutverki við öryggisvörslu í landinu. Bandaríkjaþing hefur þegar veitt rúmlega 12.500 milljarða króna í stríðið gegn hryðjuverk- um. Þar af hafa rúmlega 7.500 milljarðar farið í Íraksstríðið en þrjú þúsund milljarðar hafa far- ið til Afganistan. Þá hefur Bandaríkjaþing samþykkt sér- stakar aukafjárveitingar til upp- byggingarstarfs og hafa um 1.300 milljarðar króna farið til Írak og 186 milljarðar til Afganistan. ■ Egilsstaðaflugvöllur: Stóraukin umferð FLUGSAMGÖNGUR Umsvif á Egils- staðaflugvelli jukust til muna á síðasta ári, samanborið við árið 2003, og munar þar mestu um stórframkvæmdirnar á Austur- landi; Kárahnjúkavirkjun og álver í Reyðarfirði. Rúmlega 109 þúsund farþeg- ar fóru um völlinn í fyrra, og hafa aldrei verið fleiri, en það er 28 prósentum meira en árið áður. Lendingum fjölgaði enn meira, sem nemur 34 prósent- um. Fraktflutningar jukust einnig verulega í fyrra, um 22 prósent. - kk ALLT STÍFLAÐ Starfsmaður Esso við Leirunesti freistar þess hreinsa stíflað niðurfall. Akureyri: Vatnselgur á götum SNJÓBRÁÐ Töluverður vatnsflaum- ur var víða á götum Akureyrar í fyrradag eftir að hlýr suðvestan- strekkingur bræddi snjóruðninga við götur bæjarins. Í flestum tilfellum réðu niður- föll við vatnselginn en þar sem þau voru stífluð mynduðust götu- lón. Samkvæmt spá Veðurstof- unnar er gert ráð fyrir áframhald- andi hlýindum og snjóbráð um allt land vikuna á enda. - kk H im in n o g h a f / SÍ A Gegnheil gæði og gott verð Kynntu þér fjölda freistandi tilboða! Sími 540 5400 Opið frá kl. 12-16 laugardaga 1.795.000 kr. Mazda3 T 5 dyra 1,6 l kostar aðeins ■ LÖGREGLUFRÉTTIR BJÖRGÓLFUR JÓHANNSSON Framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar telur samkeppni um sérhæft og gott starfsfólk þegar farna að aukast á svæðinu. ÞREMENNINGAR FUNDA Smári Geirsson, forseti bæjarstjórnar í Fjarðabyggð, Trevor Adams, verkefnisstjóri Alcoa, og Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri. REYÐARFJÖRÐUR Trevor Adams, verkefnisstjóri Alcoa, býst við að steypuvinna við álverið í Reyðar- firði hefjist í mars eða apríl. Hann segir að verkið sé nokkurn veginn á áætlun og það gangi vel þrátt fyrir einhver áföll í jarðvinnunni upp á síðkastið. Adams fundaði með Smára Geirssyni og Guðmundi Bjarna- syni, sveitarstjórnarmönnum í Fjarðabyggð, í síðustu viku og var létt yfir þeim. „Verið er að vinna að umhverf- ismálum og við munum leysa það eins fljótt og við getum þannig að framkvæmdirnar verði sam- kvæmt áætlun,“ sagði hann. - ghs Alcoa: Steypuvinna í mars eða apríl BANDARÍSKIR HERMENN Í ÍRAK Forsetinn kynnir fjárlagafrumvarp sitt fyrir næsta ár 7. febrúar og fer fram á auknar fjárveitingar. Í kjölfarið tekur þingið afstöðu til aukafjárveitingarinnar. BIFREIÐ STOLIÐ Í BREIÐHOLTI Silfurgrárri Nissan Sunny bifreið, árgerð 1989, var stolið fyrir fram- an Breiðholtssundlaug seinnipart sunnudags. Eigandi bifreiðarinn- ar hafði brugðið sér í sund með dóttur sinni um sexleytið. Þegar feðginin komu upp úr lauginni, tveimur tímum seinna, var bíllinn horfinn. Lögreglan auglýsir eftir bílnum. Númer hans er JJ 669.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.