Fréttablaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 19
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 6 Flokkar & fjöldi Bílar & farartæki 115 stk. Keypt & selt 23 stk. Þjónusta 46 stk. Heilsa 8 stk. Skólar & námskeið 3 stk. Heimilið 19 stk. Tómstundir & ferðir 8 stk. Húsnæði 18 stk. Atvinna 15 stk. Tilkynningar 3 stk. Erum a› taka á móti umsóknum um skiptinemadvöl. Fjölmörg lönd í bo›i. Brottfarir júní–september 2005. Ársdvöl, hálfsársdvöl, 3 mána›a dvöl og 4–6 vikna sumarnámskei›. Góðan dag! Í dag er miðvikudagur 26. janúar, 26. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 10.25 13.40 16.56 AKUREYRI 10.25 13.25 16.26 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Siglingaskólinn hefur starfað í ein tuttugu ár. Þar lærir fólk að sigla skútum með ströndum og um heims- ins höf. „Á vélbát tekur maður ákveðna stefnu og keyrir bara þangað en á skútu er það allt öðruvísi því ferðin fer alveg eftir vindin- um og maður hagar seglum eftir vindi,“ segir Benedikt H. Alfonsson, skólastjóri Siglingaskólans, sem kennir nemendum sínum skútusiglingar á sumrin en býður upp á bóklega kennslu á veturna. „Maður byrjar á smáskipaprófi eða pungaprófi eins og það er kalllað, næst bætir maður við sig siglingum og þá getur maður siglt með ströndinni eða ekki lengra en 50 sjómílur frá landi,“ segir Benedikt, en því næst er hægt að bæta við sig hafssiglingum sem þýðir 150 sjómílur frá landi. „Að lokum eru það úthafssiglingar, og þá er það bara alla leiðina yfir hafið,“ seg- ir Benedikt en við úthafssiglingar þarf fólk að geta bjargað sér við hvaða aðstæð- ur sem er. Meðal efnis sem kennt er fyrir úthafssiglingar er veðurfræði og stjarn- veðurfræði auk þess sem Benedikt kennir fólki að nota sextant. „Í úthafssiglingum verður maður að læra að sigla eftir stjörnunum, því þó að maður sé með góð tæki getur allt klikkað,“ segir Benedikt en allt námsefnið miðar hann við staðal breska siglingasambands- ins og öðlast því nemendur rétt til siglinga um allan heim. „Nú er einnig komið til sögunnar í Evrópu alþjóðaskírteini fyrir strandsiglingar sem við hjá Siglingaskól- anum getum gefið út eftir að fólk hefur sótt tiltekin námskeið og staðist þau,“ segir Benedikt en þannig getur fólk sem sækir Siglingaskólann farið nánast hvert á land sem er og siglt þaðan um ókunnar strendur. kristineva@frettabladid.is Hagar seglum eftir vindi nam@frettabladid.is Landnám Íslendinga í Vest- urheimi á árunum 1856-1914 er efni átta vikna kvöldnám- skeiðs sem Þjóðræknisfé- lag Íslendinga stendur fyrir nú á vorönn. Nám- skeiðið stendur frá 3. febrúar til 23. mars og verður í Gerðubergi. Um- sjónarmaður er Jónas Þór sagnfræðingur og hann gefur upplýsingar í síma 554 1680 eða gegnum tölvupóstinn jtor@mmedia.is. Menntamálaráðuneytið hefur ákveðið að samræmt próf í íslensku verði haldið í 4. og 7. bekk fimmtudaginn 3. febrúar kl. 9.30-12 og í stærðfræði föstudaginn 4. febrúar kl. 9.30-12 fyrir sömu bekki. Úrval námskeiða er nú á vorönn hjá Miðstöð símenntunar í Hafnarfirði. Meðal þeirra eru tölvu-, matar- og tungumálanámskeið og einnig listafög eins og skopmynda- teikning, tréútskurður, eldsmíði, skartgripa- gerð, olíumálun, leir og mósaík. Nudd og förðun eru meðal námsgreina og einnig hannyrðir og fatasaumur. Nýjung í tónlistargeiranum er gospel og fyrir þá sem langar að bæta hæfni sína í sviðslist eru afbragðs úrræði í Miðstöð símenntunar sem er á Skólabraut 1 í Hafnarfirði og er með síma 585 5860 og 585 5861. Benedikt H. Alfonsson, skólastjóri Siglingaskólans, kennir fólki að sigla eftir stjörnunum. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is LIGGUR Í LOFTINU í námi FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl. Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is KRÍLIN …og svo sá hann kött… Til móts við Marokkó BLS. 4 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.