Fréttablaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 53
MIÐVIKUDAGUR 26. janúar 2005
Su
mar
sól
19
.950 kr.
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Fyrstir koma
- fyrstir fá!
Alicante
Beint leigu-
flug me›
Icelandair
í allt sumar!
Sumarhúsa-
eigendur
og a›rir
farflegar
til Spánar!
Flugáætlun
Flug fram og til baka
með flugvallarsköttum.
Verð miðast við að bókað sé
á Netinu, ef bókað er í síma eða
á skrifstofu bætast 2.000 kr.
við hverja bókun.
Netverð frá
19. og 31. mars
11. apríl
18. maí
og síðan alla
miðvikudaga
í sumar til
5. október.
Klukkan 17 . 00 mánudag i nn 31 . j a núa r
e ru s í ðu s tu fo r vöð að pan t a aug l ý s i n gu
í S íma sk r á 2005 .
Forð i s t b ið r að i r o g g ang ið f r á
aug l ý s i n g apön tunum t íman l e g a .
Bergstaðastræti 54 • Sími 511 4300 • Fax 511 4333
31. janúar
á slaginu!
MARKÚS MÁNI MICHAELSSON
Fannst íslenska liðið betri aðilinn og var
draugfúll.
Markús M. Michaelsson:
Drullufúlt
að tapa
HM Í HANDBOLTA „Það var drullufúlt
að tapa þessu enda finnst mér við
vera með betra lið,“ sagði Markús
Máni Michaelsson, sem átti fínan
leik og skoraði fjögur mörk.
„Það er ekki hægt að hengja
sig á þessu tapi. Við verðum bara
að taka næsta leik og við verðum
mikið mun kátari þegar við erum
búnir að vinna Rússana,“ sagði
Markús og brosti blítt.
„Annars var þetta klaufaskap-
ur og vörnin ekki nógu sterk. Það
vantaði líka herslumuninn á þetta
hjá okkur og við verðum að gera
betur í næsta leik. Við erum
ekkert búnir að ljúka keppni á
þessu móti.“ ■
Arnór Atlason:
Svakalega
sárt að tapa
HM Í HANDBOLTA Skyttan unga Arn-
ór Atlason var ekki kát á svipinn
eftir leikinn enda svekkelsið
mikið.
„Þetta er svakalega sárt og
ömurlegt eftir að hafa spilað
ágætlega allan leikinn. Við getum
engum öðrum kennt um en sjálf-
um okkur enda klúðruðum við
fjölda víta og dauðafærum. Svo
fannst mér varnarleikurinn líka
oft slakur,“ sagði Arnór, sem átti
fínan leik og nýtti vítaköstin betur
en félagar hans.
„Úrslitin í dag gera það að
verkum að riðilinn er kominn í
háaloft. Við verðum bara að klára
okkar leiki núna og vona að það
dugi,“ sagði Arnór. ■
Einar Hólmgeirsson:
Okkar
klaufaskapur
HM Í HANDBOLTA „Eins og það var
sætt í gær þá er það súrt í dag,“
sagði Einar Hólmgeirsson og
glotti.
„Við fórum með allt of mikið af
vítum. Það er bara allt of dýrt
gegn jafn sterku liði og Slóvenum
í svona keppni. Þeir eru með reynt
lið og náðu að stela þessu á endan-
um. Þetta er bara okkar klaufa-
skapur og við getum klárlega
kennt okkur sjálfum um tapið.“
Einar var ekki af baki dottinn
þrátt fyrir tapið.
„Það er nóg eftir af þessari
keppni og allt galopið. Rússar og
Alsíringar eru sterkir og þetta
verður barátta allt til enda.“ ■
EINAR HÓLMGEIRSSON
Telur vítin sem fóru forgörðum hafa eyði-
lagt sigurmöguleika íslenska liðsins.
Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari var afar ósáttur við argentínsku dómarana:
Dómararnir í aðalhlutverki
HM Í HANDBOLTA Viggó Sigurðsson
var enn vel heitur skömmu eftir
leik og greinilegt að hann átti
erfitt með að kyngja tapinu. Hann
vandaði dómurum leiksins ekki
kveðjurnar.
„Þetta eru mikil vonbrigði. Það
var rosalega erfitt við þetta að
eiga og ég er verulega ósáttur við
dómgæsluna í leiknum. Þeir fá
endalaus vítaköst og við erum
með mann úti af allan seinni hálf-
leikinn. Svo sluppu Slóvenarnir
hinum megin hvað eftir annað.
Dómararnir tóku af skarið í leikn-
um á meðan við vorum að berjast
við að spila handbolta,“ sagði
Viggó, sem sá fleiri ástæður fyrir
tapinu.
„Markvarslan dettur út síðustu
20 mínúturnar. Óli var ekki að
finna sig og það voru sjálfsagt
mistök að setja Einar ekki inn. Ég
vonaði samt að hann myndi detta í
gírinn því við getum illa verið án
hans. Svo voru þessi vítaköst sár,“
sagði Viggó en íslenska liðið
klúðraði fimm vítaköstum í leikn-
um.
„Þetta er bara ofboðslega sárt.
Við vorum með þetta allan tímann
og í hálfleik áttum við að leiða
með mun meiri mun. Við vorum
svakalegir klaufar á vítapunktin-
um og mér fannst þetta stundum
vera kæruleysi. Riðillinn er kom-
inn í háaloft og því miður verðum
við að búa við það í handboltanum
að dómararnir eru í aðalhlutverki
á vellinum.“ henry@frettabladid.is
GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON Skorar hér eitt af fimm mörkum sínum í leiknum í gær.
Fréttablaðið/Andreas Waltz