Fréttablaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 33
{ VINNUVÉLAR 2005 } 9
Sturlaugur Jónsson
& Co ehf. fagnar 80
ára afmæli á þessu
ári.
Þeir flytja meðal annars inn
MultiOne, sem er liðstýrt tæki
í þremur mismunandi stærð-
um.
Í gegnum tíðina hefur fyr-
irtækið verslað með ýmislegt,
allt frá Nivea-kremi til flók-
inna véla svo sem prentvéla
og disilvéla. Undanfarin ár
hefur fyrirtækið flutt inn
ýmsar vélar og sinnt þjónustu
fyrir útgerðir skipa en í ljósi
þess að fiskiskipaflotinn hefur
farið minnkandi á undanförn-
um árum, var tekin ákvörðun
um að auka við stafsemi
fyrirtækisins í öðrum grein-
um. Meðal annars var hafinn
innflutningur á dráttarvélum
frá ítalska framleiðandanum
Landini og fjölnota tæki,
MultiOne, einnig frá ítölskum
framleiðanda, CSF.
MultiOne er liðstýrt tæki
sem er í þremur mismunandi
stærðum, 23 hestafla,
32, hestafla og 50
hestafla vélar. Á
þessar vélar er
hægt að
setja allt að
50 mis-
munandi tæki. Skóflur ýmis-
konar, heygreypar, lyftara-
gaffla, sláttuvélar, vélar til að
leggja asfalt, gröfur og fleira.
Tækið er vökvaknúið (glussa-
drifið) með drifi á öllum hjól-
um (4x4). Þá er á tækinu
skotbómulyfta og tækið er
öflugt og traust. Vélarnar
henta til margra nota, meðal
annars í bæjarfélögum og
bændur nota þær mikið,
verktakar í byggingariðnaði,
og einnig í garðyrkju.
Þessi útvíkkun starfsem-
innar hjá Sturlaugi Jónssyni
hefur gefist vel og stafsemin
aukist til muna og er á áætl-
un að auka enn frekar við
sambærilega þjónustu hjá
fyrirtækinu. Í dag starfa sjö
manns hjá fyrirtækinu og það
hefur meðal annars umboð
fyrir ABB-túrbínur í skip,
dísilvélar, hita- og þrýstimæla
frá Sika og Wika.
Fjölnota TÆKI
sem hentar
VÍÐA
Á myndinni er stærsti körfu-
bíll á Íslandi. hann nær upp í
36 metra hæð, en bíllinn er í
vinnu við Nordica hótel á
Suðurlandsbraut. Bíllin er í
eigu fyrirtækisins Tæki.is sem
sérhæfir sig í körfubílum og
vinnulyftum ásamt því að
vera með mörg önnur tæki til
leigu.
KÖRFUBÍLL
Bílasalan Hraun hefur verið leið-
andi í sölu á notuðum vörubílum
og vinnuvélum á Íslandi. Hraun
hefur á boðstólum ýmsar tegund-
ir vinnuvéla að sögn Rafns Guð-
jónssonar, annars eigenda
Hrauns. „Helstu nýjungar má
kannski telja Fliegl gámagrindur,
vélavagna og malarvagna frá
Þýskalandi sem hafa notið mik-
illa vinsælda á markaðnum.
Meðal annars sem við erum með
í sölu eru Amco-Veba bílkranar
frá Ítalíu, allar tegundir af
gúmmíbeltum og allt í undir-
vagna á stærri vélum og Gazelle
flokka- og sendibíla.“ Þó er ekki
allt talið enn því Rafn á von á
ýmsum nýjungum á næstunni.
„Við erum komnir með nýtt um-
boð fyrir skotbómulyftara frá
Ítalíu, alhliða tæki sem notað er
til að hlaða í alla flutningabíla,
byggingavinnu og þeim til
glöggvunar sem ekki átta sig al-
veg á því hvernig tæki þetta er
þá er eiginlega hægt að kalla
þetta lítinn bílkrana,“ segir Rafn
og hlakkar til að kynna þessa
nýjung fyrir Íslendingum.
„Helstu nýjungar má kannski telja Fliegl gámagrindur, vélavagna og malarvagna frá
Þýskalandi sem hafa notið mikilla vinsælda á markaðnum,“ segir Rafn Guðjónsson.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/V
AL
LI
NÝJUNGAR Á DÖFINNI
Bílasalan Hraun er komin með nýtt umboð fyrir
skotbómulyftara frá Ítalíu.