Fréttablaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 36
12 { VINNUVÉLAR 2005 } FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/V
IL
H
EL
M
„Grundvallaruppistaðan í flotanum
okkar eru vélar í jarðvinnustarfsemi
eins og gröfur, hjólagröfur og stór-
ir trukkar. Við leigjum sem sagt út
mikið af stórvirkum vinnuvélum.
Síðan erum við einnig með vélar í
byggingariðnað eins og bómulyft-
ur, skæralyftur og skotbómulyftur
sem henta vel í byggingar. Í þriðja
lagi erum við með garðáhöld. Ein-
staklingar eru oft að vinna í garð-
inum og þurfa að nota litla vagna á
beltum, mini-gröfur og sláttuorf og
við sköffum það,“ segir Árni Sig-
urðsson, sölu- og markaðsstjóri
Kraftvélaleigunnar. „Við leigjum
einnig vélar til verktaka sem fá til-
tekið verk og eiga ákveðinn flota.
Stundum passar flotinn ekki við
verkin sem þeir fá og þá vantar
aukatæki. Þá leigjum við þeim vél-
ar. Á síðasta ári leigðum við til
dæmis mikið af efnisflutn-
ingatrukkum þannig að við leggj-
um metnað okkar í að leysa þarfir
hvers og eins, hvort sem það eru
einstaklingar eða fyrirtæki,“ segir
Árni en leigutími á vélunum er mis-
munandi.
Árni segir mjög einfalt fyrir fólk
að finna það verkfæri sem vantar.
„Viðskiptavinurinn fer á heimasíðu
okkar, kraftvelaleigan.is, og finnur
það sem hann þarf en á vefsíðunni
eru myndir, verð og upplýsingar
um allt sem við höfum upp á að
bjóða. Síðan kemur hann til okkar
þegar hann hefur fundið sitt tæki
og gengur frá greiðslunni. Sama er
um stóru tækin fyrir verktakann.
Þau eru öll skráð á netinu og net-
síðan er afskaplega aðgengileg. Við
erum með bíl á staðnum sem getur
flutt tækin og einnig leigjum við út
litla kerru fyrir fólk sem er með
krók á bílnum til að flytja minni
tækin. Þetta er því allsherjarþjón-
usta,“ segir Árni. Litlu leigutækin
eru ekki tryggð en ef þau valda ein-
hverju tjóni þá verður leigutaki að
greiða það rétt eins og með bíla-
leigubíla. Stóru tækin eru hins veg-
ar tryggð með kaskó-tryggingu og
sjálfsábyrgðin á þeim er 160 þús-
und krónur sem leigutaki þarf að
greiða ef tækið skemmist.
Höfuðumboð Kraftvéla er Kom-
atsu og á vefsíðunni komatsu.is er
hægt að finna allar þær vinnuvélar
sem eru til sölu, bæði notaðar og
nýjar. Fyrirtækið rekur einnig
rekstrarleigu þar sem það eru með
stóra samninga við fyrirtæki á borð
við Vífilfell og Eimskip og leigja
fyrirtækjunum vélar fyrir visst verð
og sjá síðan um allt viðhald sem
þarf.
Nú hefur framkvæmdum um
land allt fjölgað á síðastliðnum
árum og Kraftvélar fara ekki var-
hluta af því. „Síðasta ár var það
besta í sögu fyrirtækisins. Árið á
undan var líka mjög gott en á síð-
asta ári var gífurlegur vöxtur í al-
mennu leigunni og rekstrarleig-
unni. Og mér heyrist á öllum í
bransanum að árið í ár verði svip-
að,“ segir Árni að lokum.“ Árni er bjartsýnn fyrir árið 2005 enda var 2004 algjör gósentíð fyrir jarðvinnugeirann.
FLJÓT, GÓÐ & EINFÖLD ÞJÓNUSTA
Fyrirtækið Kraftvélar er með Komatsu-umboðið á Íslandi og rekur einnig
öfluga leigustarfsemi fyrir fyrirtæki og einstaklinga auk þess sem það
selur bæði notaðar og nýjar vinnuvélar.
Stöðugt þarf að vera að
færa vinnuvélar milli
landshluta og vinnusvæða.
Þá koma treilerarnir að
góðum notum. Hér er
verið að undirbúa flutning
gröfu. Myndirnar eru
teknar á virkjanasvæðinu
á Vestur-Öræfum.
Hér er þyngdarpunkturinn kominn á
réttan stað.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/R
AG
N
AR
L
EI
FU
R
Það er vandaverk að keyra tækið upp
á pallinn og betra að fara að öllu
með gát.
Nú er bara eftir að ganga frá
nokkrum atriðum í gegnum símann.
Flutningur á
TÆKJUM