Fréttablaðið - 26.01.2005, Blaðsíða 37
{ VINNUVÉLAR 2005 } 13
Ný lína Komatsu af Dash 7 belta- og hjólagröfum
og stuttum Dash 2 gröfum er nú til í heild og
býður upp á lausn fyrir framkvæmdir af öllum
gerðum og stærðum. Gröfur fyrir námur, jarðvegs-
flutninga, bæjarverk, niðurrif, lengdir og hæðir,
þrengsli og efnisflutinga, og meira að segja
sérsniðnar lausnir. Hver grafa er gerð með afl,
nákvæmni, þægindi, auðveldan flutning og viðhald
í huga. Kíktu inn hjá Kraftvélum til að fá
afbragðslausn fyrir þig!
NÝ ÖLD
AFBRAGÐSLAUSNA
ER RUNNIN UPP
KRAFTVÉLAR EHF, Dalvegur 6-8, 201 Kópavogur, Sími 535 3500, Fax 535 3501, www.komatsu.is
ÖFLUGUR SMÁKRANI
Fyrirtækið Hreinsun og ráðgjöf ehf. leigir út og hefur umboð fyrir smákrana
sem henta vel þar sem aðgengi er takmarkað eða vinnusvæði lítið.
„Þetta er eini kraninn á landinu af þessari stærð,“ seg-
ir Erlingur Snær Erlingsson eigandi fyrirtækisins
Hreinsun og ráðgjöf sem leigir út Unic-smákrana sem
er tæpir 3 metrar á lengd, 60 cm á breidd og 130 cm á
hæðina, með rúmlega 9 metra bómu. „Kraninn er
samanpakkaður, en þegar ég er kominn með hann í
stöðu get ég skotið út bómunni um 9 metra. Hann lyft-
ir allt að 2.9 tonnum í 1.4 metra fjarlægð, en venjulega
er verið að vera lyfta frá 200 kílóum upp í 1000 kíló,“
segir Erlingur Snær og bætir við að einn helsti kostur-
inn við kranann sé að auðveldlega er hægt að keyra
hann í gegnum hurðarop og keyra hann innan dyra.
„Með einum takka breyti ég svo eldsneytisnotkuninni,
þegar inn er komið, úr bensíni í própangas þannig að
útblásturinn er mun vistvænni,“ segir hann brosandi.
Kraninn hentar í margskonar óhefðbundnar hífing-
ar sem erfitt hefur verið að framkvæma hingað til eins
og að lyfta þungum glerjum innandyra eða hífa stál-
bita og ýmisskonar vélar að sögn Erlings Snæs. „Und-
antekningarlaust hafa mínir viðskiptavinir verið
ánægðir með getu og hæfni tækisins,“ segir hann og
tekur fram að mikla óþarfa vinnu sé hægt að spara með
því að nota kranann. „Ég hífði upp stálburðargrind á
vegg í nýju sundlaugina í Laugardal sem tók um þrjá
tíma. Annars hefur slíkt verk yfirleitt tekið um 3 daga,
því sökum þyngdar hefur þurft að smíða grindina á
staðnum,“ segir Erlingur Snær. Mörg spennandi verk-
efni eru framundan hjá honum og áhugasamir geta
fræðst frekar um kranann og skoðað myndir af verk-
efnum á vefsíðunni smakranar.is.
„Kraninn hentar í margskonar óhefðbundnar hífingar sem erfitt hefur verið að fram-
kvæma hingað til, eins og að lyfta þungum glerjum innandyra eða hífa stálbita,“ segir
Erlingur Snær Erlingsson.
trítilóð tæki}
Vinnuvélar eru flottar.
Þær eru öflugar og töff
og maðurinn við stýrið hef-
ur valdið meðan hann
stjórnar tækinu. Vinnu-
vélar koma líka vel út í
kvikmyndum, sérstaklega
þegar um hasarmyndir er
að ræða, háa tónlist og
bandbrjálað illmenni.
Einn frægasti valtari í bíómynd
er í A Fish Called Wanda þegar
Ken, leikinn af Michael Palin,
valtar yfir Otto, leikinn af Kevin
Kline. Ástæðan
er einföld –
Kevin gleypti
fræga fiskinn
hans Ken og
drap hann þar
af leiðandi og
hann þarf að
gjalda fyrir það. Ekki beint mik-
ið hasaratriði en fyndið er það
og því geta vinnuvélar alveg
verið fyndnar líka.
Í Die Hard III leikur Jeremy
Irons illmennið og hryðjuverka-
manninn Simon Gruber sem
hinn geðþekki John McClane,
leikinn af Bruce Willis, þarf að
berjast við. Í aðalráninu í
myndinni er
notast við
ansi marga
og stóra
vörubíla
sem magna upp illskuna í
Simon og félögum.
Og þegar talað er um vörubíla
þá má ekki gleyma Terminator-
myndunum, hvort sem það er
I, II, III. Í hver-
ri einustu
mynd er að
finna einhvern
rosalegan
trukk sem
þjónar alltaf
sínum tilgangi í að drepa vél-
menni eða bjarga fólki. Þannig
að trukkar eru ekki alslæmir
heldur geta bjargað ýmsu á ög-
urstundu.
Í kvikmyndinni Aliens er að
finna ansi nútímalega vinnuvél.
Ellen Ripley, leikin af Sigourney
Weaver, fer inn í tryllitækið sem
býr yfir fjórum örmum eins og
mannvera. Ripley nær að
stjórna örmunum af mikilli list
og berst hat-
rammri bar-
áttu við geim-
veruna sem
virðist elta
hana þangað
til hún deyr.