Fréttablaðið - 26.01.2005, Page 26

Fréttablaðið - 26.01.2005, Page 26
2  { VINNUVÉLAR 2005 } UMSJÓN: Steinunn Stefánsdóttir HÖNNUN: Bergdís Sigurðardóttir UMBROT: Frétt ehf. AUGLÝSINGAR: Ámundi Ámundason LJÓSMYND Á FORSÍÐU: Vilhelm HÖFUNDAR EFNIS: Brynhildur Björnsdóttir, Edda Jóhannsdóttir, Gunnþóra Gunnarsdóttir, Kristín Eva Þórhallsdóttir og Lilja Katrín Gunnarsdóttir PowerLuber Smursprauta með 12V hleðslurafhlöðu, Það er árið 2005 - nýjir tímar ný tækni! Sjálfvirk smurkerfi fyrir vörubíla og vinnuvélar Allt að 300 smurstaðir. Helstu kostir: Jafnari smurning, minna stopp, betra endursöluverð Skeifan 2. Sími 530 5900 ALLT TIL SMURNINGA „Ég mundi nú fljótlega hlaupa í spik ef ég labbaði ekki upp og niður stigann nokkrum sinnum á dag. Þetta er eina hreyfingin sem maður fær og veitir ekki af henni,“ segir Sölvi hlæjandi þegar hann er spurður hvort hann geti ekki fengið lyftu í byggingarkranann. Sölvi situr í 35 metra hæð og þangað upp eru um eitt hundrað rimlatröppur. Hann er starfsmaður hjá Ístaki og vinnur nú við að stækka verksmiðjur Norðuráls á Grundar- tanga. Útsýnið úr stýrishúsinu er gott enda bongóblíða þennan daginn og sólin glampar á flóann. Sölvi lætur samt ekki náttúrufegurðina glepja sig heldur fylgist vel með þeim sem eru á jörðu niðri og þurfa af og til að láta færa steypumót, járn og aðra þunga hluti. Þá fær hann bendingar eða boð í gegnum talstöðina. Stór mannvirki eru ekki steypt án krana nú til dags og við nýbygginguna á Grundartanga eru kranarnir sex í allt. Sá sem Sölvi stýrir er af gerðinni Liebherr 112 og getur lyft átta tonnum. Sölvi hefur unnið á krana samtals í um eitt ár en verið hjá Ístaki við ýmis störf frá því 1993. Kveðst hafa byrjað að stjórna byggingar- krana árið 1998 og þá farið beint í 50 metra hæð. Til að öðlast réttindin fór hann á vinnuvélanámskeið í tvo daga en nú standa slík námskeið í að minnsta kosti tvær vikur, að hans sögn. Þótt veður sé blítt þennan daginn getur maður ímyndað sér að stundum gusti hressilega svona hátt uppi og Sölvi er því spurður hvort kraninn hristist ekki stundum eins og strá í vindi. Hann neitar því ekki og segir brosandi. „Þetta er ekki fyrir lofthrædda.“ Nú fær Sölvi skilaboð í talstöðinni og tími kominn til að gefa honum vinnufrið. Að síðustu er hann spurð- ur hvort einmanaleiki sæki aldrei að honum þarna í þröngu stýrishúsinu? og svarið er: „Nei, nei, ég hlusta bara á útvarpið.“ EKKI FYRIR LOFTHRÆDDA Byggingarkranar eru mikil þarfaþing en meðferð þeirra er vandaverk eins og allra vinnuvéla. Við hittum Sölva Karlsson, kranamann hjá Ístaki á Grundartanga. Útsýnið er gott yfir vinnusvæðið og flóann. Sölvi er aldrei einmana í krananum, hann hlustar bara á útvarpið.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.