Fréttablaðið - 26.01.2005, Síða 31

Fréttablaðið - 26.01.2005, Síða 31
 { VINNUVÉLAR 2005 }  7 Vinnufatnaður er framleiddur eftir öryggisstaðli. „Mikil aukning hefur verið í endurskinsfatnaði enda kröfur um slíkan fatnað meiri en áður,“ segir Kristján Einarsson sölumaður hjá Dynjandi sem sérhæfir sig meðal annars í vönduðum og viðurkenndum vinnufatnaði. „Allur vinnufatnaður fylgir staðli og þarf að vera viður- kenndur til að hægt sé að selja hann sem slíkan,“ segir Kristján en staðlarnir eru nokkrir og taka til þeirrar teg- undar starfs sem fatnaðurinn er notaður við. „Til eru staðl- ar um bruna- og hitaþol fatn- aðar og til að mynda er Alcan með mjög strangan staðal í þeim efnum,“ segir Kristján. Öryggisskór þurfa einnig að uppfylla ströngustu kröfur og hjá Dynjandi er að finna tvær gerðir af slíkum skóm, annarsvegar með stáltá og hinsvegar með stáltá og naglavörn í sóla. Þynna er í sólanum sem ýtir öllu sem kemur upp undir sólann í burtu. „Stáltána ætti fólk að nota jafnvel á sumrin þegar það er að slá garðinn, því undantekningalaust er einhver á hverju sumri sem slær af sér tána,“ segir Kristján. „Yngri kynslóðin gerir sér fyllilega grein fyrir mikilvægi þess að vernda líkama sinn og heilsu. Fyrirtæki eru að ala upp meðvitaða einstaklinga um öryggi,“ segir Kristján. FATNAÐUR sem verndar FR ÉT T FR ÉT T A B LA Ð IÐ /V A LL I A B LA Ð IÐ /V A LL I Kristján Einarsson Hjá Eimskip eru miklar annir þegar skipin koma inn með mikið magn af gámum og öðrum hlutum. Til að takast á við verkefnin sem því fylgja hafa þeir sett upp stærsta lyftara landsins, Jakann, og stærsta krana landsins, Jarlinn. Jakinn vegur um 450 tonn og þurfti að setja hann saman á staðnum, enda var hann fluttur hingað í bútum. Hann er á föstu spori og keyrir þan- nig fram og aftur. Hann lyftir ekki nema 35 tonnum, þar sem hann er sér- hæfður gámalyftari og áhersla lögð á hraða fremur en þyngd. Meðalafköst hans eru 30 gámar á klukkustund. Jakinn er yfirleitt í notkun um 16 tíma á dag og eru tvískiptar vaktir á honum. Jarlinn er splunkunýr bómukrani sem tekinn var í notkun í haust og lyftir hann 110 tonnum og vegur sjálfur 400 tonn. Hann er á hjólum þan- nig að hægt er að keyra hann um svæðið. Hann er notaður ásamt Jakan- um við að losa skipin og er meira í þyngri hlutum, en vinnuvélar sem eru allt að 80 tonn geta stundum komið með skipunum. Sjálfur var hann flutt- ur í heilu lagi og var keyrður í land. FR ÉT TA BL AÐ IÐ /V IL H EL M JAKINN: Stærsti lyftari landsins og vegur um 450 tonn. STÆRSTU TÆKI LANDSINS Jakinn og Jarlinn eru engum líkir hér á landi. JARLINN: Stærsti bómukrani landsins og vegur um 400 tonn.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.