Fréttablaðið - 26.01.2005, Síða 39

Fréttablaðið - 26.01.2005, Síða 39
 { VINNUVÉLAR 2005 }  15 „Þetta gengur vel. Við erum komnir um 160 metra inn í bergið,“ segir Sigurbergur Konráðsson, verk- stjóri hjá Arnarfelli, spurður hvernig framkvæmdir gangi við Ufsarveitu sem er í nágrenni Eyjabakka. Þann daginn er reyndar vitlaust veður en það láta menn ekki aftra sér frá vinnu við að setja upp steypustöð og ganga endanlega frá kaffistofu við aðalvinnusvæðið, auk þess að bora jarðgöngin sem er aðalverkefnið. Inni í þeim eru menn að sjálfsögðu varðir fyrir veðrum. Göngin eru fyrir vatn sem á að renna til nýja orkuversins í Fljótsdalnum og er Arnarfell fyrst íslenskra fyrirtækja til að taka að sér jarðgangagerð án aðstoðar erlendra aðila. Tækin sem tekin hafa verið í notkun í því skyni eru tölvu- stýrður bor af gerðinni Tamrock sem keyptur var frá Finnlandi og steypusprautuvél frá Sviss. „Þetta eru fínar græjur,“ segir Sigurbergur. „Við borum í stafninn, hlöðum sprengjum í holurnar, hreinsum út eftir spreningarnar og höldum áfram en steypusprautuvélin er notuð í þeim tilgangi að styrkja bergið eftir sprengingarnar,“ útskýrir hann fyrir fáfróðri blaðakonunni. Hann kveðst hafa umgengist svona tæki áður, meðal annars í Kárahnjúkum, þar sem hann var við gerð hjáveituganganna fyrir Jöklu. Sigurbergur segist vera á áætlun með göngin nema hvað dregist hafi að fá framkvæmdaleyfi fyrir hluta verksins. „Við áttum að geta byrjað á báðum endum ganganna samtímis en það strandaði á leyf- um. Nú eru þau komin og við bara fögnum því.“ FR ÉT TA BL AÐ IÐ /R AG N AR L EI FU R Hér er hafist handa við borunina. Steypusprautuvél er notuð til að styrkja stálið eftir sprengingarnar. trítilóð tæki} Í Maximum Overdrive, kvik- mynd eftir sögu Stephen King, segir frá þeim þrem dögum þegar jörðin fór í gegnum hala á dularfullri halastjörnu. Þessi hala- stjarna gerði það að verk- um að allar vélar lifna við, fríka út og reyna að ráða niður- lögum mannkynsins. Trukkar brjálast og hraðbanki gefur fólki langt nef svo eitthvað sé nefnt og hópur fólks þarf að stöðva þessar bandbrjáluðu vél- ar. Magnað. „Cop Killers“, eða löggumorð- ingjar, heita kúlurnar sem vondi karlinn Jack Travis, leikinn af Stuart Wilson, notar til að drepa löggur í myndinni Lethal Weapon III. Hann er sjálfur spillt lögga en þessar löggukúlur hafa þann eiginleika að komast í gegnum skotheld vesti. Í einu atriða myndarinnar mætir Travis löggunum tveimur Riggs og Murtaugh, Mel Gibson og Danny Glover, og ætlar að drepa þá með beltagröfu og stórri skóflu. En það sem Travis veit ekki er að löggurnar hafa reddað sér „Cop Killers“ kúlun- um og ná að sjá við illmenninu. Og réttlætið sigrar enn á ný. Það má ekki alveg gleyma fyndnu vinnuvélaatriðunum en þau eru ógleymanleg í Austin Powers. Austin sjálfur, leikinn af Mike Myers, byrjar á því að valta yfir örygg- isvörð, mjög hægt, vægast sagt. Síðan fest- ir hann sig karl- inn, og reynir að bakka út úr þröngum aðstæðum sem geng- ur ekki sem skyldi. Í kvikmyndinni Convoy er fylgst með eins konar uppreisn trukk- anna. Rubber Duck, leikinn af Kris Kristofferson, leiðir þessa uppreisn þar sem vörubílstjórar í Bandaríkjunum mynda langa röð af trukkum til að hefna sín á ansi ólið- legum lög- reglufor- ingja. Myndin er byggð á samnefndu kántrílagi eftir C.W. McCall. Kannski var hann mikill trukka- maður? ÞETTA ERU FÍNAR GRÆJUR Stór vinnuflokkur Arnarfells fæst við jarðgangagerð við Ufsarveitu sem er hluti virkjunarframkvæmdanna fyrir austan.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.