Fréttablaðið - 26.01.2005, Side 59
31MIÐVIKUDAGUR 26. janúar 2005
FRÁBÆR SKEMMTUN
Sýnd kl. 6 Ísl. tal
Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.40 og 10.10 b.i. 16Ein vinsælasta myndin
í USA í 4 vikur samfleytt. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
Sýnd kl. 10 b.i. 16
Sýnd kl. 6 og 8 b.i. 10
Tilnefnd til 5 Golden
Globe verðlauna
þ.á.m. besta mynd,
leikstjóri og leikari í
aðalhlutverki.
Einstök mynd um
höfund hinnar sígildu
sögu um Pétur Pan.
HHH
SV - MBL
Sýnd kl. 8 b.i. 16Sýnd kl. 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 B.i. 14 ára
Epísk stórmynd sem fólk verður að sjá.
Frá leikstjóranum Oliver Stone.
Stórstjarnan Nicole Kidman var tilnefnd
til Golden Globe verðlaunanna fyrir leik
sinn í myndinni
„Sideways er eins og eðalvín
með góðri fyllingu. Hún er
bragðgóð, þægileg og skilur
eftir sig fínt eftirbragð"
Hlaut tvenn
Golden Globe
verðlaun
Besta
myndin
Besta
handritið
Dómnefndarverðlaunin
í Cannes
Valin besta erlenda
myndin í Bretlandi
Myndin sem Quentin
Tarantino elskar!
HHHH HJ - MBL
HHHH ÓÖH - DV
HHHH Kvikmyndir.com
HHHh
kvikmyndir.com
HHH
DV
HHHHH
Mbl
Yfir 32.000 gestirSýnd kl. 5.45 m/ísl. tali
Sýnd kl. 6, 8 og 10 b.i. 14 Sýnd kl. 6, 8.15 og 10.30
il f til l
l r l
. . . t ,
l i tj ri l i ri í
l l t r i.
Skyldu-
áhorf fyrir
bíófólk,
ekki
spurning!"
HHHh T.V
Kvikmyndir.is
HHHH Þ.Þ FBL
HHHH Ian Nathan/EMPIRE
HHHh
Kvikmyndir.is
HHH ...þegar hugsað er til myndar-
innar í heild,er hún auðvitað ekkert
annað en snilld" JHH/kvikmyndir.com
Miðaverð 400 kr.
„Fullkomlega ómissandi mynd" S.V. MBL HHHHH
Tilnefnd til 7 Óskarsverðlauna þ.á.m.
besta mynd, leikari og handrit.
HHH NMJ
Kvikmyndir.com
Frá 59.990 kr.
Flug, skattar og hótel án nafns, Zell am
See/Schuttdorf, í tvíbýli með morgunverði.
12. febrúar. Vikuferð. Netverð.
Heimsferðir bjóða þér að stökkva á skíði til eins vinsælasta skíðabæjar
Austurrísku alpanna, Zell am See. Beint flug til Salzburg og um klst. akstur
til Zell. Í boði eru góð þriggja og fjögurra stjörnu hótel í hjarta Zell, rétt við
skíðalyfturnar, veitingastaði, verslanir og kvöldlífið. Frábær aðstaða, 56 lyf-
tur og allar tegundir af brekkum, einnig fyrir snjóbretti og gönguskíði.
Stökktu á skíði til
Austurríkis
12. febrúar
Frá 29.990 kr.
Flugsæti með sköttum til Salzburg, 12.
febrúar. Netverð.
Flug og hótel
frá aðeins kr. 59.990
Veröld ný og góð
Skrýtið leikrit atarna. Enda hefur
höfundur sjaldnast farið troðnar
slóðir í skáldskap sínum hvort held-
ur hún skrifar ljóð, skáldsögur eða
leikrit. Styrkur þessa verks liggur í
fantasíunni og lýtur sínum eigin lög-
málum. Súrrealískur textinn sem
fellur af vörum persónanna hefur til-
vísanir í allar áttir og hittir mann oft
illa þegar maður liggur óafvitandi vel
við höggi, niðursokkinn í eigin hugs-
anir, jafnvel á kafi í að upphugsa
eitthvað til að skrifa um það sem
fyrir augu og eyru ber. Leikstjórinn
hefur valið leikritinu form í anda
verksins og hún er ekki árennileg
þessi veröld sem höfundur sér fyrir
sér. Hún hefur þó húmorinn í lagi en
fellur stundum í þá gryfju að troða
boðskapnum ofan í mig með
teskeið. Textinn er á köflum ljóð-
rænn og fallegur en líka ruddalega
hispurslaus og lætur hún stundum
vaða svoleiðis á súðum að mann
sundlar. Leikstjórinn hefur kosið að
fara einafalda stílfærða leið í leik-
mynd, búningum og gervum og frí-
að sig öllu því sem gæti talist rökrétt
framhald af þeim heimi sem nú er.
Leikaraefnin hafa undir stjórn Maríu
Reyndal gefið sig algjörlega verkefn-
inu á vald og nálgast viðfangsefni
sitt af einbeitni og alúð. Hins vegar
gefur þessi nýstárlega veraldarsýn
verksins ekki tilefni til djúprar per-
sónusköpunar þar sem heimsskipu-
lagið er svo einsleitt. Allt er annað-
hvort svart eða hvítt. Gallinn við
verkið í Nemendaleikhúsinu er sá
að enginn fær almennilega eldskírn
við að vinna til hlítar alvöru bitastætt
hlutverk þar sem reynir á tilfinninga-
skalann og breidd í túlkun. Það er
sannarlega vandasamt að finna bita-
stæð hlutverk handa níu leikaraefn-
um en það verður að leita logandi
ljósi að því engu að síður. Í þessu
verki er jafnræði með flestum hvað
frammistöðu varðar og í heild er
sýningin áhugaverð, full af leikhús-
legum uppákomum og krydduð kó-
mískum smáatriðum. Aðalbjörg
Þóra sýndi jafnan leik og var yfirleitt
einlæg í túlkun sinni. Hefur auk þess
prýðisgóða framsögn. (Mér finnst
þau öll hafa bætt framsögn sína til
muna frá því fyrr í vetur en það kom
fyrir að áherslur hljómuðu sérkenni-
lega.) Atli Þór naut sín vel í kaftein-
inum en ég hef á tilfinningunni að
hann eigi meira inni. Guðjón Davíð
Karlsson sýndi skemmtilega takta
sem gamall herráðsmaður og
Benjamín hans hafði mannlegar
taugar sem glitti í. Jóhanna Friðrika
hefur djúpa altrödd sem hún gæti
spilað miklu meira á. Henni tókst
nokkuð misjafnlega upp á hátíðar-
sýningunni á sunnudag en hún
skoraði í skemmtilegu karlhlutverki
sem lék þó tveimur skjöldum. Jó-
hannes Haukur var skemmtilegastur
í hlutverki fangavarðar. Oddný og
Sara Dögg voru svo áþekkar á svið-
inu að ég þekkti þær ekki alltaf í
sundur. Þær eru orkumiklar og gust-
ar af þeim á sviðinu. Ólafur Steinn
var látlaus og stillti túlkun sinni í hóf
en ég hef trú á því að hann geti
komið sterkari inn ef hann fær verð-
ugt hlutverk í næsta verkefni. Orri
Huginn vann þokkalega úr sínu en
má gæta sín að venja sig ekki á of
ýkta framsögn. Í heildina er þessi
fyrsti útskriftarhópur leiklistardeildar
LHÍ kraftmikill og áhugaverður. Það
eru spennandi tímar framundan og
mikils að vænta af leikaraefnunum
ungu.
LEIKLIST
VALGEIR SKAGFJÖRÐ
Spítalaskipið
Nemendaleikhúsið,
Smiðjunni við Sölvhólsgötu
Höfundur: Kristínu Ómarsdóttur Leik-
stjóri: María Reyndal Dramatúrg: Kristín
Eysteinsdóttir Leikmynd: Bjarni Þór Sig-
urbjörnsson Búningar og gervi: Katrín
Þorvaldsdóttir Ljós og gagnvirk tækni:
Egill Ingibergsson Tónlist og hljóðmynd:
Ólöf Arnalds Danshöfundur: Guðmundur
Helgason Leikaraefnin: Aðalbjörg Þóra
Árnadóttir, Atli Þór Albertsson, Guðjón
Davíð Karlsson, Jóhanna Friðrika Sæ-
mundsdóttir, Jóhannes Haukur Jóhannes-
son, Oddný Helgadóttir, Ólafur Steinn
Ingunnarson, Orri Huginn Ágústsson og
Sara Dögg Ásgeirsdóttir.
Niðurstaða: Gallinn við verkið í Nem-
endaleikhúsinu er sá að enginn fær
almennilega eldskírn við að vinna til
hlítar alvöru bitastætt hlutverk þar sem
reynir á tilfinningaskalann og breidd í
túlkun.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Franska leikkonan Audrey Tautouhefur fengið hlutverk í nýrri kvik-
mynd sem verður byggð á metsölu-
bókinni Da Vinci
lykillinn. Tautou er
þekktust fyrir hlut-
verk sín í Amélie
og Langri
trúlofun. Hún
mun leika
Sophie
Neveu, dóttur Roberts Langdon pró-
fessors sem verður leikinn af Tom
Hanks. Að auki leikur Jean Reno
rannsóknarlögguna Bezy Fache. Tök-
ur á myndinni hefjast seinna á
þessu ári og er hún væntanleg á
hvíta tjaldið í maí á næsta ári.
Leikkonunni Nicole Kidman bráheldur betur í brún á dögunum
þegar hlerunartæki fannst í glæsi-
villu hennar í Sydney í Ástral-
íu. Eftirlitsmyndavél náði því
á filmu þegar óboðinn gestur
laumaði tækinu í öryggis-
álmu þar sem lífverðir Kid-
man dvelja. Lögreglan rann-
sakar nú málið.
Leikkonan DrewBarrymore sást
nýverið skoða
brúðarkjóla í New
York. Þar með ýtti hún
undir orðróm um að
hún ætli að giftast
rokkaranum Fabrizio
Moretti úr hljóm-
sveitinni The
Strokes. Barrymore,
sem er tvífráskilin,
byrjaði með Mor-
etti sumarið 2002.
Söngkonan BritneySpears hefur látið
húðflúra hebreskt tákn
aftan á háls sinn. Merkir
það „kraftur lækningar-
máttarins“ og er fengið
úr Kabbalah-trúarbrögð-
unum sem Madonna
kynnti fyrir vinkonu
sinni.
Rithöfundurinn J.K.Rowling eignaðist
sitt þriðja barn fyrir
skömmu. Rowling og eig-
inmaður hennar, dr.
Neil Murray, eru him-
inlifandi með nýjasta
erfingjann. Fyrir á
Rowling hinn 22 mán-
aða David og Jessicu
sem er 11 ára.
Bjarkarmyndband í Ópinu
Bjarkarmyndbandið við lagið Tri-
umph of a Heart af plötunni
Medúlla verður frumsýnt í ís-
lensku sjónvarpi í þættinum Óp í
Sjónvarpinu í kvöld. „Við erum
auðvitað hæstánægð með að fá að
frumsýna myndbandið enda eru
Bjarkarmyndböndin með þeim
flottustu sem hafa verið gerð og
það toppar þetta að Spike Jonze
leikstýri,“ segir Þóra Tómasdótt-
ir, sem sér um Ópið ásamt Ragn-
hildi Steinunni Jónsdóttur og
Kristjáni Inga Gunnarssyni.
Fréttablaðið sagði frá því um
helgina að kötturinn Muri færi
með veigamikið hlutverk í mynd-
bandinu og Þóra segir að það sé
vissulega gaman, eftir alla um-
fjöllunina sem myndbandið hefur
fengið, að fá loksins að sjá það á
skjánum.
Myndbandið, sem var tekið upp
á Íslandi ekki alls fyrir löngu, verð-
ur einnig sem verður einnig að-
gengilegt á vefnum bjork.com. ■
BJÖRK OG MURI Hafa það notalegt í nýjasta tónlistarmyndbandi söngkonunnar sem er
leikstýrt af sjálfum Spike Jonze, sem gerði Being John Malkovich.
■ TÓNLIST