Fréttablaðið - 26.01.2005, Síða 62

Fréttablaðið - 26.01.2005, Síða 62
34 26. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR Lárétt: 2 eldsneyti, 6 útgerðarfélag, 8 ætt, 9 gen, 11 núna, 12 sóða, 14 skorta, 16 leikfélag, 17 grip, 18 hagnað, 20 í röð, 21 þræta. Lóðrétt: 1 spil, 3 byrði, 4 firn, 5 vend, 7 sefur ekki, 10 eins um á, 13 eins um n, 15 svara, 16 ábreiða, 19 íþróttafélag. Lausn: 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Foreldrar reiðir – hefur þú séð DV í dag? Dóp, morð og nauðganir í Stundinni okkar Nokkra athygli hefur vakið að Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar og fyrrverandi fjöl- miðlamaður, sé í heiðurssæti Röskvu, samtaka félagshyggju- fólks í Háskóla Íslands. „Ég held að það fólk sé með hjartað á réttum stað í pólitíkinni. Ég hef trú á að þessir krakkar vilji gera háskólann meira lif- andi,“ segir Sigursteinn, sem hóf nám í uppeldis- og menntunar- fræði í haust. „Það skiptir máli að stúdentar láti til sín taka. Háskól- inn á að vera óaðskiljanlegur hluti af hinu íslenska samfélagi. Ég trúi því að Röskva vilji breyta um áherslur og veita stjórnvöldum til dæmis meira aðhald varðandi skólagjöld,“ segir hann. Sigursteinn var á sínum tíma í blaðamannaskóla í Frakklandi en hefur ekkert lært á háskólastigi hér heima. Hann útilokar ekki að hjálpa til í stúdentapólitíkinni ef eftir því verði óskað. „Ef þau teldu að það væri gagnlegt að hafa mig með væri það ekkert vanda- mál mín megin. Ég hefði bara gaman af því.“ Með háskólanáminu vill Sigur- steinn öðlast meiri víðsýni og inn- sýn í þá hluti sem hann telur að styrki sig sem manneskju. „Það er gaman að geta ýtt á pásutakkann í lífinu. Þetta er eins og að hlusta á góða músík. Þó að hún sé góð er ekki hægt að hlusta á hana út í eitt. Það er gott að geta staldrað við og hlaðið skynfærin upp.“ ■ Sigursteinn í heiðurssæti Röskvu SIGURSTEINN MÁSSON Sigursteinn hóf nám í uppeldis- og menntunarfræði í haust. [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 SÍF. Fimmta sæti. Johnny Carson. Erlendur Steingrímsson hefur tekið við þjálfun enska stórliðs- ins Chelsea af Portúgalanum Jose Mourinho, að minnsta kosti í nýjustu útgáfunni af fótbolta- leiknum Championship Mana- ger sem kom út fyrir skömmu. Erlendur, sem er í raun smíðakennari við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti, kannast við að vera í tölvuleiknum vinsæla en segist ekki hafa átt nokkurn þátt í því að koma sér þar inn. Fyrir nokkrum árum var hægt að senda inn myndir og upplýsingar um fólk sem not- endur vildu að yrðu þjálfarar í næstu útgáfu af leiknum. Svo virðist sem einhver hafi sent inn myndina og í nýjustu útgáfunni af leiknum er Erlendur einn af þeim fjölmörgu þjálfurum sem hægt er að velja um. „Ég get nú lítið sagt um þetta mál nema ég gruna son minn um hafa sett nafn mitt þarna inn,“ segir Erlendur, sem lá lasinn heima þegar Fréttablaðið náði tali af honum. „Frændi minn hringdi í mig og var ansi hissa að sjá mig þarna en þá var leikur- inn nýr. Mig minnir að þetta hafi verið í nóvember á síðasta ári.“ Samkvæmt leiknum er Er- lendur fæddur 2. apríl árið 1962 og verður því 43 ára á árinu. Uppáhaldsliðið hans er gamla stórveldið Víkingur. „Það er allt rétt við þetta nema ártalið. Það er búið að yngja mig eitthvað upp,“ segir Erlendur smíða- kennari, sem verður sextugur á árinu. „Ég spilaði með Víkingi í gamla daga svo það passar al- veg. Yngsti strákurinn minn hefur sennilega sett þetta inn, hann rámaði eitthvað í þetta þegar við fréttum af þessu.“ Erlendur hefur lengi verið stuðningsmaður Manchester United en býst þó ekki við að nýta sér tækifærið og stýra liðinu til sigurs í ensku úrvalsdeildinni. „Sonur minn hefur verið að spila þennan leik en ég hef engan áhuga á honum,“ segir Er- lendur, sem í sýndarveruleikan- um getur þjálfað Wayne Rooney og félaga hjá Manchester United en í raunveruleikanum kennir hann krökkum í Breið- holti að smíða. kristjan@frettabladid.is ERLENDUR STEINGRÍMSSON: KENNARI Í FB OG PERSÓNA Í TÖLVULEIK Smíðakennari þjálfar Chelsea Hræddur síðan í grunnskóla Ég hef haft áhyggjur af þessari þróun síð- an í grunnskóla. Bekknum var kynnt þessi mögulega þró- un, að loftlagsbreyt- ing gæti haft veruleg áhrif á Golfstraum- inn og bráðnun jökla einnig. Sú mynd að Ísland yrði óbyggileg hefur fylgt mér allar götur síðan. Með tálkn bak við eyrun Ég hef miklar áhyggjur af hlýnun jarðar, en ég hef ekki miklar áhyggjur af því að byggð leggist af á Íslandi í kjölfarið. Það væri hrikalegt ef veröldin okkar myndi breytast í kvikmyndina Waterworld, menn væru með tálkn á bak við eyrun og fleira. Ég sá líka einu sinni Futurama þátt þar sem allt var orðið of heitt. Þá köstuðu þeir ísklumpum í sjóinn þegar það var orðið of heitt. Ég vona samt að við þurfum ekki að grípa til svona bráðabirgðalausna. Allir verða að taka höndum saman Auðvitað hefur ég áhyggjur af hlýnun jarðar og að byggð legg- ist af á Íslandi. Ég vil ekki að byggð leggist af á landinu sem ég er alin upp á. Það væri ekkert grín að fara frá landinu, koma fimmtíu árum seinna til baka og það væri engin byggð. Það er frekar vond tilfinning. Það er lítið hægt að gera við hlýnuninni strax en fólk verður að hugsa sinn gang. Það verða allir að taka höndum saman en því miður eru þó nokkuð marg- ir sem er alveg skítsama. Þeir verða að átta sig á því að hlýnunin mun hafa áhrif á afkomendur okkar. Hefur þú áhyggjur af hlýnun jarðar og að byggð leggist af á Íslandi? 3 SPURÐIR FRANZ GUNNARSSON, Ensími KARL INGI KARLSSON, Dáðadrengur ANNA KATRÍN GUÐBRANDSDÓTTIR söngkona ...fær Dagur Kári Pétursson, kvikmyndaleikstjóri og tónlistar- maður í Slowblow, fyrir að vera 24. Íslendingurinn til að hljóta Íslensku bjartsýnisverðlaunin, en verðlaunin eru hugsuð sem viður- kenning fyrir það sem vel er gert og hvatning til að verðlaunahaf- arnir verði langlífir í sínu fagi. HRÓSIÐ Lárétt: 2koks,6úa,8kyn,9dna,11nú, 12ódáms,14vanta,16la,17mun,18 akk,20rs,21karp. Lóðrétt: 1 lúdó,3ok,4kynstur, 5snú,7 andvaka,10aáa,13mnm,15ansa,16 lak,19kr. ERLENDUR STEINGRÍMSSON ÞJÁLFARI Samkvæmt tölvuleiknum krefst Erlendur 100 punda í laun á viku. „Það er ekki mikið,“ segir smíðakennarinn. EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN Þeir sem spila tölvuleikinn Championship Manager geta stýrt frægustu knattspyrnuliðum heims. Þjálfarinn getur verið Erlendur Steingrímsson, smíðakennari við Fjöl- brautaskólann í Breiðholti. Með Fréttablaðinu alla fimmtudaga

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.