Fréttablaðið - 29.01.2005, Qupperneq 6
6 29. janúar 2005 LAUGARDAGUR
KLÓRGAS Fjórir eigendur fyrir-
tækja í Vesturvör 30b í Kópavogi
hafa afhent bæjaryfirvöldum
skrifleg mótmæli vegna klórfram-
leiðslu Mjallar Friggjar í húsinu á
móti.
Í bréfi eigandanna til bæjar-
yfirvalda stendur: „Við eigendurn-
ir að Vesturvör 30b í Kópavogi lýs-
um andstöðu okkar á að eigendur í
Vesturvör 30c geti verið með efna-
verksmiðju í okkar nálægð.“
Eyjólfur Bergþórsson, einn eig-
endanna fjögurra að Vesturvör
30b, segir þá ekkert hafa á móti
fyrirtækinu sem slíku. Þar starfi
gott fólk.
Þeir lýsi þó furðu sinni á því að
Mjöll Frigg fái óáreitt að starf-
rækja efnaverksmiðju á staðnum.
Eigandi Mjallar Friggjar hefur
sótt um bráðabirgðaleyfi til um-
hverfisráðuneytisins til klórfram-
leiðslu næstu sex mánuðina. Um-
hverfisráðuneytið bíður upplýs-
inga frá Umhverfisstofnun og
Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar-
og Kópavogssvæðis.
Eyjólfur segir ekki hvarfla að
sér að fyrirtækinu verði leyft að
vera með efnablöndun á svæðinu.
- gag
Skíðasvæði landsins:
Ört minnkandi snjór
SKÍÐI Í hlýindunum undanfarna
daga hefur snjó tekið verulega
upp á flestum skíðasvæðum
landsins. Töluverður vindur er í
veðurkortum helgarinnar og
getur brugðið til beggja vona með
opnun. Að sögn starfsmanns í Blá-
fjöllum er þar þó enn nægur snjór
og ef veður leyfir verður svæðið
opið um helgina.
Skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli við
Akureyri hefur verið lokað vegna
hlýinda og snjóleysis. „Það verður
lokað að minnsta kosti í viku, jafn-
vel lengur ef veðurfarslegar
aðstæður verða okkur óhagstæð-
ar,“ segir Guðmundur Karl Jóns-
son, staðarhaldari í Hlíðarfjalli.
Snjórinn á skíðasvæði Ísfirð-
inga hefur minnkað verulega en
stefnt er á að hafa þar opið frá kl.
11 til 17 um helgina.
Nægur snjór er á tveimur efri
skíðasvæðum Siglfirðinga. Að
sögn starfsmanns svæðisins er
veðurútlitið ekki gott á Norður-
landi um helgina og því óvíst að
hægt verði að hafa svæðið opið.
Sömu sögu er að segja frá Dalvík.
Ef veður leyfir verður skíða-
svæðið í Oddsskarði opið frá
klukkan 12 til 17 um helgina.
Nægur snjór er í sólskinbrautinni
og stefnt á að opna stóru lyftuna
um eða eftir helgina. - kk
ÍRAKSMÁLIÐ „Allir nefndarmenn
utanríkismálanefndar voru sam-
mála því að fordæma þennan leka
og líta hann mjög alvarlegum aug-
um,“ segir Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður Vinstri grænna.
Utanríkismálanefnd samþykkti
á fundi sínum í gær að hætt yrði að
dreifa fundargerðum nefndarinnar
heldur yrðu þær einungis aðgengi-
legar til aflestrar á fundum nefnd-
arinnar. Ástæðan er sögð vera
fréttaskýring í Fréttablaðinu föstu-
daginn 21. janúar síðastliðinn þar
sem skýrt var frá orðaskiptum á
fundum nefndarinnar 19. febrúar
og 21. mars 2003.
„Þetta er í annað sinn á skömm-
um tíma sem upp hafa komið tilvik
sem varða meðferð trúnaðarupp-
lýsinga. Því er ástæða fyrir utan-
ríkismálanefnd að taka þessi mál
mjög föstum tökum,“ segir í bókun
frá utanríkismálanefnd í gær.
Samkvæmt lögum um þingsköp
Alþingis og áralangri venju um
þagnarskyldu nefndarinnar er allt
það sem fram fer á fundum nefnd-
arinnar trúnaðarmál nema annað sé
tekið fram.
„Utanríkismálanefnd átelur
harðlega þann trúnaðarbrest sem
átt hefur sér stað með því að trún-
aðarupplýsingar virðast hafa kom-
ist í hendur óviðkomandi aðila.
Nefndin beinir því til formanna
þingflokka á Alþingi að þeir taki
málið upp á fundi með þingmönn-
um sínum og brýni fyrir þeim þau
lagaákvæði sem um meðferð trún-
aðargagna gilda og nauðsyn þess að
virða trúnað. Að gefnu tilefni bend-
ir utanríkismálanefnd á að brot af
þessu tagi getur varðað refsingu
samkvæmt almennum hegningar-
lögum,“ segir í bókuninni.
Stjórnarandstaðan lagði fram
formlega beiðni um það á fundinum
í gær að trúnaði af ummælum Hall-
dórs Ásgrímssonar forsætisráð-
herra í utanríkismálanefnd er vörð-
uðu Íraksmálið yrði aflétt. „Við höf-
um jafnframt áhuga á að ræða við
Eirík Tómasson lagaprófessor, sem
vann greinargerð fyrir ríkisstjórn-
ina um lögmæti ákvörðunarinnar
um stuðninginn við Íraksstríðið.
Við viljum vita hvort ríkisstjórnin
hafi sýnt honum meiri gögn en ut-
anríkismálanefnd fær aðgang að í
málinu. Þá hef ég sérstakan áhuga á
að ræða við hann um hvernig hann
getur tjáð sig um samráðsskyldu
við utanríkismálanefnd án þess að
hafa fundargerðir undir höndum,“
segir Steingrímur. sda@frettabladid.is
Ísfirðingar:
Vilja af
mölinni
SAMGÖNGUR Tólf til fjórtán ár tekur
að setja bundið slitlag á leiðina
milli Ísafjarðar og Reykjavíkur, sé
miðað við samgönguáætlun stjórn-
valda, segir Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ.
„Um tuttugu prósent af leiðinni
eru ekki með bundnu slitlagi,“
segir Halldór. Auka þurfi fjárveit-
ingar til samgöngumála og nýta
ætti hluta söluhagnaðar Símans til
þess.
„Það vantar virkilega sátt um
að veita meira fjármagni í sam-
göngumál svo hægt sé að klára
vegaframkvæmdirnar á styttri
tíma,“ segir Halldór. - gag
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Fylgist þú með HM í hand-
bolta?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefurðu sótt um launahækkun
í vetur?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
38%
62%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
TIL MÖGULEGRAR
FRAMTÍÐAR
Í ÍTÖLSKUM SAMTÍMA ARKITEKTÚR
FÚTÚRISMA
FRÁ
KlinK&BanK er samstarfsverkefni Landsbanka Íslands og Gallerí Kling&Bang
SKÍÐASVÆÐIÐ Í HLÍÐARFJALLI
Búið er að loka skíðasvæðinu þangað til
aðstæður til skíðaiðkunar lagast.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K
MARGIR ÖLVAÐIR UNDIR STÝRI
Fjórir ökumenn voru teknir grun-
aðir um ölvun við akstur í Reykja-
vík aðfaranótt föstudags. Lögregl-
an segir það heldur mikið á
fimmtudagskvöldi. Fólkið hafi ver-
ið tekið vítt og breitt um borgina.
BRÆLA Á MIÐUNUM Fáir bátar
voru á sjó í gær. Tilkynningar-
skylda skipa skráði 151 bát á há-
degi. Að meðaltali hafa um 300 bát-
ar verið á sjó á þessum tíma í janú-
ar, mest rúmlega 420. Fæstir hafa
þeir verið nítján en það var á ný-
ársdag.
HRAÐAKSTUR UNDIR HAFNAR-
FJALLI Ungur ökumaður, fæddur
1983, var tekinn á 146 kílómetra
hraða undir Hafnarfjalli á finntu-
dag. Lögreglan í Borgarnesi segir
aðstæður hafa verið mjög slæmar,
myrkur og slæmt skyggni.
MJÖLL FRIGG Í KÓPAVOGI Eigendurnir
að Vesturvör 30b á móti Mjöll Frigg vilja
ekki starfa við hlið efnaverksmiðju.
Eigendur fyrirtækja í Vesturvör 30b í Kópavogi:
Vilja efnablöndun Mjallar Friggjar burt
FRÁ FYRSTA FUNDI UTANRÍKISMÁLANEFNDAR EFTIR ÁKVÖRÐUNINA VIÐ STUÐNINGINN VIÐ ÍRAKSSTRÍÐIÐ
Fundargerðir nefndarinnar eru jafnframt merktar sem trúnaðarmál og dreift til tiltekins hóps manna, sem er 32 einstaklingar. Þagnar-
skyldan gildir um alla sem fá trúnaðargögn afhent og felst meðal annars í því að þeir mega ekki miðla upplýsingum til annarra, hvorki
þingmanna eða óviðkomandi aðila.
Fordæmir lekann
Utanríkismálanefnd fordæmir að trúnaðarupplýsingar um Íraksmálið hafi
komist í hendur Fréttablaðsins. Hætt verður að dreifa fundargerðum. Stjórnar-
andstaðan fer fram á að trúnaði verði aflétt af ummælum forsætisráðherra.