Fréttablaðið - 29.01.2005, Síða 12

Fréttablaðið - 29.01.2005, Síða 12
29. janúar 2005 LAUGARDAGUR K osningarnar í Írak semhaldnar verða á morgunleysa ekki þann vanda sem Írakar standa frammi fyrir. Reynd- ar er sú hætta jafnvel fyrir hendi að þær muni gera illt verra þó ekki skuli gert lítið úr því að þær kunni að vera hluti, og reyndar upphaf, ferlis sem leiðir til friðsamlegrar sambúðar í Írak í stað þeirrar óald- ar sem nú ríkir. Kosningar á stríðssvæði Írak verður ekki lýst öðruvísi en sem stríðssvæði undanfarin miss- eri. Óöldin færist í aukana og and- stæðingar kosninganna gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að þær fari frið- samlega fram. Ástandið er sérstaklega slæmt í Bagdad. Í síðustu viku voru gerðar sjö bílsprengjuárásir, 37 sprengjur voru sprengdar í vegaköntum og 52 árásir gerðar af vígamönnum vopnuðum hríðskotarifflum eða sprengjuvörpum. Samanlagt tæp- lega hundrað árásir á einni viku og bílsprengjuárásirnar einar sér kost- uðu 60 manns lífið og 150 slösuðust samkvæmt samantekt The New York Times. Síðustu daga hafa árás- irnar haldið áfram og kostað tugi manna lífið í Bagdad einni og sér. Kosningarnar nauðsynlegar Við þessar kringumstæður er ekki óeðlilegt að menn velti því fyrir sér hvort það sé yfir höfuð verj- andi að kosningar fari fram. „Ef maður hugsar sér Írak sem þrjú ríki í einu gæti maður sagt að tvö af þremur væru reiðubúin fyrir kosningar, en hið þriðja ekki,“ segir Dr. Philip Robins við St. Anthony's College í Oxford há- skóla, sérfræðingur í stjórnmálum Mið-Austurlanda. „Á svæðum Kúrda og sjía má búast við vel heppnuðum kosningum með mikilli kjörsókn og lýðræðislega kjörnum fulltrúum. Þetta er gott þar sem það veitir kerfinu sem á að semja stjórnarskrá, það er að segja að draga upp reglur til frambúðar, lögmæti. En að sjálfsögðu þýðir það, að ástandið á svæðum súnnía er hvergi nærri nógu gott og að út- koman þar verður óásættanleg.“ „Ætti að fresta kosningunum?“ spyr Robins og svarar sjálfur neit- andi. „Með því væri verið að refsa 80 prósentum landsmanna. Að auki væri verið að verðlauna ofbeldis- verk með því og þar með yrði það hvatning til frekari ofbeldisverka í stjórnmálalífi landsins.“ Hvað með súnnía? Líkt og Robins bendir á leikur mestur vafi á þátttöku súnní- múslima í kosningunum. Hvort tveggja hafa ýmsir áhrifamenn í þeirra röðum hvatt til þess að þeir hunsi kosningarnar og eins er óöld- in mest á þeim svæðum þar sem þeir eru fjölmennastir. Því er hættan einna mest fyrir þá að taka þátt í kosningunum og hætta er á lítilli kjörsókn. Verði þessi raunin eins og allt bendir til verða menn að gera upp við sig hvort súnníar eigi að verða af málsvörum sínum á stjórnlaga- þinginu eða hvort koma eigi til móts við þá með öðrum hætti. Bæði Robins og Magnús Þorkell Bern- harðsson, sagnfræðingur við Willi- ams College í Massachusetts og sérfræðingur í sögu Mið-Austur- landa, eru sammála um að koma verði til móts við súnní-múslima ef friður á að komast á. „Ef margir súnníar hafa ekki tekið þátt í kosningunum og ljóst er að aðeins nokkrir hópar innan Íraks hafa tekið þátt í þeim er hægt að ímynda sér nokkrar lausnir,“ segir Magnús Þorkell og bendir á að taka megi frá nokkur sæti innan þingsins fyrir súnníana sem taka ekki þátt í kosningunum „og stuðla þannig að því að þetta nýja þing, nýja ferli, lýsi vilja þjóðarinnar“. „Það má alls ekki líta á þessar kosningar sem endastöð heldur upphaf ákveðins ferlis,“ segir Magnús, eftir sé að skrifa stjórnar- skrá, kveða á um stöðu Bandaríkja- hers og semja um auðæfi landsins. „Stóra málið snýst um hvað skuli gera við súnní-araba,“ segir Robins. „Vonin er sú að þeir taki þátt í lýðræðisþróuninni þegar þeir sjá að þeir hafa ekki neitunarvald yfir því hvernig stjórnmálin þró- ast. Það ætti að reyna að nýju að tryggja þátttöku þeirra í stjórn- málakerfinu.“ Hættur fylgja sambandsríki Ein af hugmyndunum sem hafa verið settar fram um framtíðar- skipulag Íraks er að það verði sambandsríki þar sem einstakir landshlutar ráða miklu um eigin mál og sérstaklega er kveðið á um fyrirkomulag sameiginlegra mála. Kúrdar eru sérstaklega fylgjandi þessu en meiri and- stöðu gætir meðal sjía og súnnía. Magnús Þorkell hefur efasemdir um að þetta stjórnarform reynist vel í Írak. „Ef maður metur þetta út frá sögu Íraka hafa þeir reynslu af miðstýrðu valdi en sambandsríki er algjörlega óþekkt fyrirbæri,“ segir Magnús. „Ég held að eins og sakir standa núna sé það frekar neikvæð þróun af því að það leggur frekar áherslu á það sem skilur á milli en það semlandsmenn eiga sameiginlegt.“ Því kunni sam- bandsríki að auka á sundrun og kemur þar að stærstu ógninni sem Írakar standa frammi fyrir, hætt- unni á borgarastríði. Getur farið sömu leið og Líbanon Áhrif trúarleiðtoga hafa aukist mjög frá falli Saddams Hussein og skipting landsmanna eftir þjóðar- brotum hefur orðið meira áberandi en áður. Takist ekki vel upp við kosningarnar og stjórnlagaferlið í framhaldi þess er hætta á því að borgarastríð brjótist út sem lætur óöldina til þessa líta út eins og til- tölulega rólegt tímabil. „Ég held að þetta komi til með að verða mjög táknræn stund fyrir framtíð þjóðarinnar hvernig sem fer,“ segir Magnús Þorkell um kosningarnar. „Ef ofbeldi einkenn- ir kosningarnar og næstu vikur þar á eftir gæti það verið ákveðin vís- bending um það sem er fram undan fyrir þjóðina. Ef þetta fer tiltölu- lega friðsamlega fram, sem mér finnst ákaflega ólíklegt eins og sakir standa, er það kannski ákveðin von.“ Magnús segir eina hættuna vera þá að sjíar, sem hingað til hafa haldið sig til hlés þrátt fyrir árásir súnnía, láti til skarar skríðar ef þeim finnst staða þeirra ekki jafn sterk eftir kosningar og fyrir þær. Taki þeir upp vopn og svari víga- mönnum úr röðum súnnía geti nið- urstaðan orðið blóðugt borgara- stríð sem minni um margt á borg- arastríðið í Líbanon á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. „Fólk er nú allt í einu orðið sjíar eða Kúrdar eða súnní-arabar. Það er ekki beint nútímaleg leið til að skipta fólki upp í þjóðríki,“ segir Magnús og segir þetta minna á Líbanon. „Allt í einu, árið 1975, var fólk ekki lengur sameinað um hug- takið Líbanon heldur fór það að leggja ríkari áherslu á þá mismun- andi aðstöðu sem það var í,“ segir hann og tekur fram að skipting Íraks í sambandsríki gæti einnig leitt til þessarar þróunar, það óttist margir sjíar og súnníar. „Það er ekki hægt að útiloka annað ástand eins og það sem varð raunin í Líbanon,“ segir Robins sem segir sjálfstæðisviðleitni Kúrda og myndun klerkastjórnar sjía eldfimustu þróun mála sem Írak og nágrannaríkin standa frammi fyrir. ■ Ekki endastöð heldur upphaf Kosningarnar í Írak á sunnudag kunna að skapa sátt um uppbyggingu stjórnkerfis landsins. Þó eru margar hættur fyrir hendi og eftirleikur kosninganna getur leitt til enn verra ástands en nú ríkir í landinu. BRYNJÓLFUR ÞÓR GUÐMUNDSSON BLAÐAMAÐUR FRÉTTASKÝRING FRAMTÍÐIN Í ÍRAK

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.