Fréttablaðið - 29.01.2005, Page 16
Þann 10. september síðastliðið
haust var kveðinn upp dómur í
Héraðsdómi Norðurlands eystra á
hendur ökumanni sem hafði sam-
kvæmt ákæru sýslumanns ekið
samfellt í sjö daga annars vegar
og níu daga hins vegar án þess að
taka sér hvíld eins og honum ber
að gera samkvæmt reglugerð um
aksturs- og hvíldartíma o.fl. í inn-
anlandsflutningum og við flutning
innan Evrópska efnahagssvæðis-
ins. Ökumaðurinn var dæmdur til
greiðslu sektar auk þess sem allur
sakarkostnaður féll á hann. Þessi
dómsniðurstaða í fyrrgreindu
máli er vægast sagt afar furðuleg.
Áður hafði ökumaður verið sýkn-
aður í Héraðsdómi Reykjaness og
gengur því norðlenski dómarinn
þvert á niðurstöðu hans. Ekki get
ég, undirritaður, lesið annað en
það úr þessum niðurstöðum og
reyndar fleirum sem ég tíni hér
til en að dómarar séu á engan hátt
vissir um hvernig þeir eigi að
dæma í þessum málum og niður-
stöður þeirra því handahófs-
kenndar þó ekki sé nú meira sagt.
Fyrir nokkru var ökumaður
stöðvaður fyrir of hraðan akstur í
Vestur-Húnavatnssýslu og honum
gefið að sök að hafa ekið á 108 km
hraða. Í bifreið þess sem stöðvað-
ur var, er ökuriti sem skráir öku-
hraða bifreiðar á ökuritaskífur og
sýndu þær að hann ók á 98 km
hraða. Afhenti hann lögreglunni
þessar skífur máli sínu til stuðn-
ings og var það ljóst að þarna var
ósamræmi á hraðamælingu bif-
reiðar sem nam 10 km. Ökumað-
urinn sem stöðvaður var af lög-
reglu vildi að sjálfsögðu ekki við-
urkenna mælingu lögreglunnar
og taldi sig réttilega hafa verið á
98 km hraða og ákvað að láta
reyna á þetta fyrir dómstólum.
Það er skemmst frá því að segja
að dómari Héraðsdóms Norður-
lands vestra taldi að ökuriti bif-
reiðarinnar væri ekki áreiðanlegt
mælitæki og dæmdi hann sekan
um hraðaakstur og auk sektar
lenti á honum allur sakarkostnað-
ur. Nokkru seinna, í umdæmi hér-
aðsdómara Vestfjarða, voru tveir
ökumenn stöðvaðir fyrir of hrað-
an akstur. Í þeirri mælingu lög-
reglunnar reyndist einnig mis-
munur á hraðamælingu lögreglu
og bifreiða sem mældar voru, en í
þeim var einnig ökuriti sem
skráði hraða bifreiða á ökurita-
skífur með sama hætti og að
framan er lýst.
Ökumenn í báðum þessum til-
vikum voru sýknaðir á þeirri for-
sendu að ekki væri hægt að alhæfa
um að mælingar lögreglunnar
væru réttari en mælingar bifreið-
anna. Þarna var aftur um að ræða
mismun á mælingu lögreglu og
ökurita bifreiða og lét vestfirski
dómarinn ökumennina njóta
vafans. Enn eitt málið kom upp á
Austfjörðum fyrir nokkrum árum
þar sem lögregla og eftirlitsmaður
Vegagerðarinnar gerðu upptækar
ökuritaskífur hjá ökumanni og
báru á hann þær sakir að hafa ekið
of hratt, en ekki var um hraðamæl-
ingu af hálfu lögreglunnar að
ræða. Vísuðu þeir eingöngu á
þessar ökuritaskífur bifreiðarinn-
ar þar sem sjáanlega var um að
ræða akstur fyrir ofan leyfilegan
hámarkshraða. Ökumaður þeirrar
bifreiðar fékk sektarboð fyrir of
hraðan akstur og stuðst var við
ökuritaskífurnar sem áður höfðu
verið gerðar upptækar sem fyrr
sagði. Ákvað hann að mótmæla
þessu og hugðist láta reyna á þetta
fyrir dómstólum. Spurðist hann
nánar fyrir um það hjá fulltrúa
sýslumannsins á Seyðisfirði sem
hafði sent út sektarboðið, hvort
þetta gæti á nokkurn hátt staðist.
Þar kom fram að um brot væri að
ræða og á þeirri forsendu hefðu
þeir sent út sektarboðið og ráð-
lögðu honum eindregið að láta ekki
reyna á þetta fyrir dómstólum
heldur greiða þá sekt sem upp
hafði verið sett, sem hann og því
miður gerði.
Það skal tekið fram að það geta
verið fjölmargar ástæður fyrir
því að ökuritaskífur sýna of hrað-
an akstur bifreiðar, t.d. ef bifreið-
in spólar í snjó eða hálku, kemur
það fram á ökuritaskífunni sem
sýnir miklu meiri hraða en bif-
reiðin er raunverulega á; mis-
stórir eða of litlir hjólbarðar geta
einnig breytt skráningu á hraða,
en ekki er ástæða til þess að telja
þær upp hér. Miðað við það sem er
upp talið hér að framan og eftir
þessa tvo dóma Héraðsdóms
Norðurlands eystra og Héraðs-
dóms Norðurlands vestra er ljóst
að ökumenn geta á engan hátt átt-
að sig á fyrrnefndum reglum og
er ósamræmi í dómum eins og að
framan er lýst algerlega óþolandi.
Nauðsynlegt er að setja skýrari
reglur um þessi mál.
Höfundur er formaður Bifreiða-
stjórafélagsins Sleipnis.
Eldri borgari, sem nýtur einungis
lífeyris frá almannatryggingum
en hefur engan lífeyri úr lífeyris-
sjóði, kom að máli við við mig og
sagði: Það er ekki rétt, að við sem
höfum engan lífeyri úr lífeyris-
sjóði, fáum 100 þús. kr. á mánuði
frá Tryggingastofnun ríkisins. Ég
fæ ekkert úr lífeyrissjóði en fæ
þó ekki nema 79.400 kr. frá Trygg-
ingastofnun ríkisins í ellilífeyri,
tekjutryggingu og tekjutrygging-
arauka fyrir skatta. (Hækkaði lít-
illega um áramót). Og hann rétti
mér launaseðil Tryggingastofnun-
ar þessu til áréttingar. Og þetta
var vissulega rétt. Hér er um
kvæntan mann að ræða og því
fékk hann ekki heimilisuppbót.
Einungis þeir sem eru einhleypir
fá heimilisuppbót, í kringum 18
þús kr. á mánuði. Ég hef einkum í
greinum mínum fjallað um ein-
hleypa ellilífeyrisþega þar eð að-
stæður þeirra eru yfirleitt mjög
erfiðar. Þeir geta komist í rúmar
100 þús. kr. á mánuði frá almanna-
tryggingum með heimilisuppbót.
Þetta er ekki stór hópur bótaþega.
En víkjum aftur að eldri
borgaranum, sem kom að máli við
mig. Hvernig á hann að lifa af
rúmum 79 þús. kr. á mánuði? Af
þeirri fjárhæð verður hann að
greiða allan framfærslukostnað,
matvæli, fatnað, síma, tekju-
skatta, rafmagn, hita, húsnæðis-
kostnað, fasteignaskatta, rekstur
á bíl o.fl. Að vísu er húsnæðis-
kostnaður, rafmagn, hiti og sími
sameiginlegur fyrir hann og konu
hans. En þetta dugar hvergi nærri
til framfærslu enda langt undir
þeim framfærslueyri, sem Hag-
stofa Íslands telur, að fólk þurfi
sér til framfærslu. (Samkvæmt
neyslu-könnun Hagstofunnar
nema meðaltalsútgjöld einstakl-
ings 161 þús. kr. á mánuði fyrir
utan skatta.).
Ég tel, að þegar í stað eigi að
hætta öllum skerðingum vegna
sambýlis og hjónabands og vegna
tekna maka. Það á ekki að fella
niður heimilisuppbót, þegar ellilíf-
eyrisþegi, sem búið hefur einn, fer
í sambýli eða í hjónaband. Þessar
uppbætur eiga að haldast. Og það
á ekki að skerða tekjutryggingar-
auka eins og gert er. Ellilífeyrir er
svo lágur að hann þolir engar
skerðingar.Það liggur einnig fyrir
Hæstaréttardómur um það, að
óheimilt sé að skerða bætur vegna
tekna maka. Dómurinn grundvall-
aðist m.a. á því, að hver maður
væri sjálfstæður einstaklingur og
vegna jafnréttisákvæða stjórnar-
skrárinnar væri óheimilt að
skerða örorku- eða ellilífeyri
einstaklings vegna tekna maka.
Ég tel, að vegna dóms þessa séu
allar skerðingar óheimilar. En rík-
isstjórnin komst samt að þeirri
niðurstöðu, að hún gæti haldið
áfram skerðingum að hluta til!
Þess vegna er tekjutrygging
vegna tekna maka áfram skert að
hluta. Mér er til efs, að það stand-
ist lög og stjórnarskrá. Og þó laga-
ákvæði segi, að einungis eigi að
greiða heimilisuppbót til ein-
hleypra ellilífeyrisþega tel ég það
fráleitt, þar eð það byggir á göml-
um hugsunarhætti um að hver ein-
staklingur sé ekki alveg sjálfstæð-
ur og því megi skerða bætur hans,
ef hann er í hjónabandi eða í sam-
búð. Þetta verður að leiðrétta. ■
29. janúar 2005 LAUGARDAGUR16
K aup Flugleiða á tíu nýjumBoeing vélum fyrir 40milljarða króna hafa
vakið mikla athygli. Ætlunin er
að leigja vélarnar utanlands
þannig að þær verða ekki í för-
um hér á landi. Kaupin byggja á
gömlum samningi við Boeing
og eru mjög hagstæð fyrir
Flugleiðir. Hagnaður af þess-
um viðskiptum getur orðið
umtalsverður, hlaupið á
nokkrum milljörðum.
Maðurinn á bak við þessi
viðskipti er stjórnarfor-
maður félagsins, Hannes
Smárason, sem á undan-
förnum misserum hefur
orðið æ meira áberandi í
íslensku viðskiptalífi.
Nafn hans heyrðist fyrst í
tengslum við fyrirtæki
Kára Stefánssonar, Íslenska
erfðagreiningu, en þar var
Hannes í nokkur ár aðstoðar-
forstjóri og hægri hönd Kára
í öllum stórum ákvörðunum.
Hannes er 37 ára gamall,
fæddur 1967. Að loknu stúd-
entsprófi fór hann í verkfræði-
nám í hinum virta MIT-háskóla
í Bandaríkjunum. Hann klár-
aði námið en verkfræðin
fangaði ekki hug hans. Fór
hann til starfa hjá ráðgjafar-
fyrirtækinu McKinsey & Co.
í Boston sem er eitt þekktasta
fyrirtæki á sínu sviði í heimin-
um. Þar var Hannes í fimm ár. Í
Boston kynntist hann Kára Stef-
ánssyni en þeir léku saman
körfubolta. Þegar Íslensk erfða-
greining varð að veruleika réð
Kári Hannes til starfa og áttu
þeir áfallalaust samstarf í sjö ár.
En Hannes hafði áhuga á að
spreyta sig frekar í viðskiptalíf-
inu og varð úr að hann réðst í að
kaupa stóran hlut í Flugleiðum
með þáverandi tengdaföður sín-
um, Jóni Helga Guðmundssyni,
sem yfirleitt er kenndur við
Byko. Þeir fjárfestu einnig víðar,
svo sem í Gildingu og Kaupási.
Mál þróuðust þannig í kjölfar
skilnaðar að Hannes eignaðist
hlut tengdaföður síns í Flugleið-
um og er nú orðinn sá maður
sem ræður ferðinni í fyrirtæk-
inu. Í dag er hann starfandi
stjórnarformaður og vera
má að hann ákveði að verða
forstjóri fyrirtækisins inn-
an skamms. Raunar er rætt
um að ráða tvo forstjóra,
annan að eignarhaldsfélag-
inu Flugleiðum og hinn að
Icelandair sem hefur með
daglegan flugrekstur að
gera.
Hannesi er lýst sem
mjög áræðnum manni en
glöggum á tölur og vand-
virkum í fjárfestingum.
Þótt hann teljist vel efnaður
á íslenskan mælikvarða seg-
ist hann ekki láta peningana
stýra lífi sínu eða samskipt-
um við annað fólk. Hann
virkar hógvær og yfirvegað-
ur í samtölum. Í viðtali sem
birtist hér í blaðinu fyrir
stuttu kom fram að vinnu-
dagur hans er langur. Hann fer
snemma á fætur og gengur
seint til náða. Um miðjan dag
reynir hann að komast í lík-
amsrækt en fyrir utan vinn-
una eru það íþróttir og veiðar
sem eiga hug hans. Hann segist
ekki hafa neinn áhuga á því að
verða „opinber persóna“ og hef-
ur ekki orð á sér fyrir að berast
á eða trana sér í sviðsljósið. En
með jafn athafnasömum manni
er fylgst og kastljós fjölmiðla á
eftir að fylgja honum hvort sem
honum er það ljúft eða leitt. ■
Eftir þessa tvo dóma
Héraðsdóms Norð-
urlands eystra og Héraðs-
dóms Norðurlands vestra er
ljóst að ökumenn geta á
engan hátt áttað sig á fyrr-
nefndum reglum og er
ósamræmi í dómum eins og
að framan er lýst algerlega
óþolandi.
ÓSKAR STEFÁNSSON
BIFREIÐASTJÓRI
UMRÆÐAN
HVÍLDARTÍMI
ÖKUMANNA
,,
Handahófskenndir dómar
Leiðréttum kjör aldraðra
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
UMRÆÐAN
KJÖR
ELLILÍFEYRISÞEGA
MAÐUR VIKUNNAR
Áræðinn og talnaglöggur
HANNES SMÁRASON
STJÓRNARFORMAÐUR FLUGLEIÐA
TE
IK
N
: H
EL
G
I S
IG
. W
W
W
.H
U
G
VE
R
K
A.
IS
Sendu SMS skeytið JA ABF á númerið 1900 og þú gætir unnið. Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
Golden Globe
VERÐLAUN3
tilnefningar til
BAFTA verðlauna
Vinningar eru:
Miðar á myndina • DVD myndir
geisladiskar og margt fleira.
9. hver vinnur.
Tvöfaldir
Vildarpunktar
Tvöfaldir
*
* T
vö
fal
dir
Vil
da
rp
un
kt
ar
til
11
. f
eb
rú
ar
hv
or
t s
em
þ
ú
g
re
ið
ir
m
eð
p
en
in
g
u
m
eð
a
V
ild
ar
ko
rt
i.
Veltupunktar til viðbótar
Auk tvöfaldra punkta fá Vildarkortshafar Visa
og Icelandair alltaf veltupunkta aukalega.
14 stöðvar