Fréttablaðið - 29.01.2005, Síða 24

Fréttablaðið - 29.01.2005, Síða 24
Loft í dekkin Best er að setja loft í dekkin á bensínstöðvum. Þú skalt leggja bílnum þannig að slangan nái vel til allra dekkja. Notaðu loftþrýstimæli til að sjá hversu mikið loft fer í dekkin og gakktu úr skugga um að jafnmikið loft sé í þeim öllum. Ef þú kannt ekki að lesa á mælinn eða veist ekki hversu mikið loft á að vera í dekkjunum skaltu fá aðstoð frá starfsmanni á bensínstöðinni.[ ] Bíldshöfða 18 • 110 Rvk Sími 567 6020 • Fax 567 6012 opið mán. - fös. kl. 8.00 - 18.00 www.abvarahlutir.is • ab@abvarahlutir.is Bifreiðastillingin ehf. • Smiðjuvegi 40d • Sími 557 6400 Vissir þú að 90% af sjálfskiptingum bila vegna hitavandamála? Láttu skipta um olíu og síu á sjálfskiptingunni. Sjálfskiptingar, stillingar og alhliða viðgerðir. B O S S A V E R M I R Er kalt í bílnum? Sætisáklæði í bílinn með hita Aðeins 4.900 kr Klettháls 9 • s: 587 5547 • www.ag-car.is/motorsport Fæst einnig hjá Bónstöðinni, Njarðarnesi 1, Akureyri Skemmtilegur bæði í sveit og borg Ekið á Hyundai Santa Fe V6 EM. Hyundai Santa Fe í nýrri út- færslu er glæsilegur og lipur bíll. Hann er skemmtilegur hvort heldur sem er í amstri dagsins innanbæjar eða í þyngri færð. Sókn jepplinganna á markað hér á landi virðist ekki vera á undan- haldi. Engan skyldi undra það í landi þar sem bílaeign er með því mesta sem gerist og brugðið getur til beggja vona með færð stóran hluta árs. Hyundai Santa Fe var strax vel tekið þegar hann kom á markað árið 1998 en í þessum mánuði var breytt útgáfa kynnt hjá B&L. Á síðasta ári eignaðist Santa Fe minni bróður, Tucson, en stóri bróðirinn, Terracan er fullvaxinn jeppi. Útlitið á nýja Santa Fe bílnum hefur þróast lítilsháttar en aðalbreytingin felst tvímælalaust í nýjum aldrifsbúnaði þar sem aldrifið er sívirkt og lagar sig að breyttum akstursaðstæðum. Santa Fe er einstaklega að- gengilegur bíll. Þar er allt á sínum stað þar sem maður býst við því. Bíllinn er rúmgóður og þægilegur en um leið lipur og skemmtilegur í akstri. Farangursrýmið er að- gengilegt og möguleikar á niður- fellingu á aftursætum til að stækka rýmið góðir. Sætin ganga þó ekki alveg niður þannig að gólfið verði slétt í skottinu. Far- angursrýmið er hægt að opna á tvo vegu, með því að opna aftur- hlerann allan eða eingöngu aftur- rúðuna. Hyundai Santa Fe V6 var ekið bæði á lítið ruddum vegi og í slabbinu í borginni. Óhætt er að segja að bíllinn hafi staðið sig vel í snjónum, sigldi yfir skafla, ef þeir voru ekki þeim mun stærri og virkaði einstaklega stöðugur og öruggur. Þegar í borgina var komið reyndist hann meðfæri- legur í þröngum götum og ágætt að leggja honum í stæði. Lítill hlutur eins og hiti í fram- sætum gerir bílinn líka notalegri en ella þegar komið er út á köld- um vetrarmorgni. Furðulegt má í raun teljast að hiti í sætum sé ekki staðalbúnaður í fleiri bílum en raun ber vitni hér á okkar kalda landi. Segja má að í Hyundai Santa Fe fari saman ljómandi ferðabíll, bæði sumar og vetur, þægilegur bíll til daglegra nota fyrir hina klassísku vísitölufjölskyldu með góðu rými fyrir bílstjóra og far- þega, ágætum geymsluhirslum og aðgengilegu farangursrými. steinunn@frettabladid.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL LI HESTÖFL VERÐ Santa Fe 2,4 EM 145 2.690.000 (beinskiptur) Santa Fe 2,0 CRDI EM 112 2.990.000 (sjálfskiptur) Santa Fe 2,0 CRDI Lux 112 3.390.000 (sjálfskiptur) Santa Fe 2,7 V6 EM 173 2.930.000 (sjálfskiptur) Santa Fe 2,7 V6 Lux 173 3.330.000 (sjálfskiptur) Land Rover Discovery 3 var valinn bíll ársins 2005 af tíma- ritinu WhatCar? Í niðurstöðum dómnefndar kom meðal annars fram að hann hefði verið próf- aður við erfiðustu akstursað- stæður og í svo miklum halla að nánast hefði verið um láréttan vegg að ræða. Einnig var tekið fram að jeppinn þykir gæddur einstökum aksturseiginleikum og nýja drifkerfinu Terrain Response var sérstaklega hamp- að, meðal annars fyrir hversu notendavænt það er. ■ REYNSLUAKSTUR Discovery 3 bíll ársins 2005 WhatCar valdi bíl ársins í síðustu viku. Dómnefnd WhatCar þykir Discovery 3 vel heppnuð blanda af skemmtilegum akstursbíl og jeppa með mikla torfæruhæfni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.