Fréttablaðið - 29.01.2005, Page 25
3LAUGARDAGUR 29. janúar 2005
Skoda Octavia hefur sópað að sér verð-
launum um allan heim.
Ný Octavia
slær í gegn
Octavian safnar
viðurkenningum.
Bíllinn var einnig útnefndur bíll
ársins 2004 í Serbíu og Svart-
fjallalandi. Enn fremur hlaut
bíllinn Gullna stýrið í sínum
flokki í Þýskalandi undir lok
síðasta árs og Ítalir völdu hann
fallegasta bíl ársins 2004.
Hekla setti nýtt sölumet á
Skoda bifreiðum í fyrra. Alls
voru seldir 673 nýir Skoda bílar
og var markaðshlutdeild Skoda
5,5 prósent, eða 37 prósenta
söluaukning frá árinu á undan.
Söluhæsti Skoda bíllinn var
Skoda Octavia og hann var þriðji
söluhæsti bíllinn á markaðnum
þegar allar gerðir eru skoðaðar.
Tvisvar sinnum á síðasta ári var
Skoda Octavia söluhæsti bíllinn
á markaðnum, bæði í júlí og nóv-
ember. Nýjasta rósin í hnappa-
gatið eru svo verðlaun hins virta
bílatímarits WhatCar? en þar
var hann kosinn besti fjöl-
skyldusmábíllinn fyrir árið
2005. Hans helsti kostur þykir
hversu mikil gæði fást miðað við
verð.
Nýi Skoda Octavia er stærri,
lengri, beiðari, öruggari og bet-
ur búinn en fyrirrennarinn. Nýr
Octavia verður boðinn með ýms-
um gerðum – bensín- og dísil-
véla – og verður strax fáanlegur
sjálfskiptur.
Eldri gerð Skoda Octavia
verður áfram í boði í Terno út-
færslu. Sá bíll er vel búinn og á
frábæru verði. Octavia Terno
fæst einnig áfram í fjórhjóla-
drifinni Combi útfærslu. Á ár-
inu 2004 var markaðshlutdeild
Skoda 5,5% og í janúar á þessu
ári hefur salan rúmlega tvö-
faldast frá því á sama tíma
fyrir ári. ■
Scania R-sería
Hekla kynnir til sögunnar nýja gerð af vörubílum.
Í R-seríunni er að finna margar
nýjungar. Umhverfi ökumanns
er nýtt, nýir mælar í löngu eða
stuttu mælaborði, ný stjórntæki
á mælaborði og á stýrishjóli
og ný sæti. Loftræstikerfi er
sjálfvirkt og miðstöð endur-
bætt. Gólfið er 145 millimetrum
lægra og hirslur eru hagnýtar. Í
Topline gerðinni er búið að færa
efri kojuna aftar. Framendi á
stýrishúsi er nýr en hann var
endurhannaður til að undir-
strika einkenni Scania.
Hægt er að velja um 16 lítra
500 og 580 hestafla V8-vélar, 12
lítra sex strokka línuvél 420 og
470 hestafla, 12 lítra 420 hestafla
Euro 4 vél, 11 lítra sex strokka
línuvél 340 og 380 hestafla og 9
lítra fimm strokka línuvél 230,
270 og 310 hestafla.
Opticruse gírskiptikerfið hefur
verið endurbætt og gefur nú
hraðari og enn nákvæmari skipt-
ingar. Í bílnum er bæði hraða-
stillir eða cruise controle og
mótorbremsa. Kúpling er varin
með því að rafeindastýring
fylgist með snúningshraða vélar-
innar. Rafeindastýrð kæli-vifta
er fáanleg sem aukabúnaður.
Rafkerfi er með CAn-rás.
Bíllinn er með ABS, EBS og ESP.
Hægt er að fá bílinn í léttari
dráttarbíls útgáfu með púðaloft-
fjöðrun að aftan. Grindin er létt-
ari og dráttarstóll er léttbyggð-
ur. Þróuð loftpressa með fjög-
urra rása öryggisloka, loft-
þurrkun og þrýstingsjöfnun er
sambyggð í einfalda einingu.
Á neðri örmum stýrishjóls
eru stýrihnappar fyrir hraða-
stilli og hnappur fyrir motor-
bremsu. Ökuljós eru fáanleg
með xenon-ljósum sem auka-
búnaður frá og með gerðum
með V8-vél. Útvarp og miðstöð
er hægt að stilla frá kojunni.
ELC, rafeindastýrð hæðarstill-
ing, og nýtt stýrishús með háu
þaki, Highline. ■
Umboð: Hekla.
Verðlaun: Vörubíll ársins 2005 á
alþjóðlegu atvinnubílasýningunni
í Hannover 2004.
Flokkur: 16 tonna bílar og yfir.
Bush
á kádilják
Nýju kjörtímabili fylgir nýr bíll.
Innsetning George W. Bush í ann-
að sinn í embætti forseta Banda-
ríkjanna fór fram með viðhlítandi
hátíðahöldum og samkvæmt öll-
um kúnstarinnar reglum.
Á nýju kjörtímabili þarf ýmis-
legt að endurnýja og athygli vakti
að forsetinn ók í nýjum og glæsi-
legum forsetabíl. Um er að ræða
langan og mikinn Cadillac DTS,
svartan að lit. Um borð í bifreið-
inni er allt til alls, leðursæti, sjón-
varp og sími sem áreiðanlega má
stilla á samtal við starfsbróður-
inn Putin forseta í Moskvu, þótt
kalda stríðið sé liðið. ■