Fréttablaðið - 29.01.2005, Side 26

Fréttablaðið - 29.01.2005, Side 26
29. janúar 2005 LAUGARDAGUR ALLT Á EINUM STAÐ • HEILSÁRSDEKK • OLÍS SMURSTÖÐ • BÓN OG ÞVOTTUR • HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA • NAGLADEKK • RAFGEYMAÞJÓNUSTA • BREMSUKLOSSAR • PÚSTÞJÓNUSTA SBD, SÆTÚNI 4, SÍMI 562 6066 Öryggis- hurðir B Í L S K Ú R S OG IÐNAÐAR H U RÐ I R Smíðað eftir máli Hurðir til á lager Eldvarnar- hurðir ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236 Aukin ökuréttindi Nú er rétti tíminn til að afla sér nýrra atvinnumöguleika ! Kennt er á leigu-, vöru- og hópferðabifreið, einnig vörubifreið með eftirvagni. Skólinn býður uppá nútíma kennsluaðstöðu og reynda kennara. Innritun alla miðvikudaga, áfangakerfi. Einnig eru í boði námskeið í vistakstri fyrir einstaklinga og hópa. Sími 567-0300 Þarabakka 3 109 Reykjavík Netfang mjodd@bilprof.is www.bilprof.is Áfram veginn Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar. Mannbroddar vs. mismunadrif Í sjónvarpsþættinum Jing Jang var í vikunni sýnt þegar annar þátta- stjórnandinn hélt bíl kyrrstæðum með „hand“afli. Hann var vopnaður mannbroddum til fóta, stóð á svelli og hélt í afturstuðara bílsins. Bílstjór- inn átti að reyna að taka af stað en sá á broddunum átti að reyna að halda honum. Sem hann og gerði. Bíllinn spólaði og spólaði og því meira sem bílstjórinn gaf inn, því meiri hetja varð sá á broddunum í mínum augum. Að vísu hefði verið erfiðara að halda bílnum ef honum hefði verið gefið lítið inn og kúplingin snuðuð til að dekkin misstu ekki grip – en þegar karlmenn og vélar koma saman er alltaf flottara að þenja’nn. Það vakti óskipta athygli hins þáttastjórnandans að bíllinn spólaði að- eins á einu hjóli og á hrópum hans mátti skilja að honum þætti það setja óvænt strik í reikninginn, félaga hans í hag. En af hverju sneri bíllinn bara einu dekki? Ímyndum okkur bíl sem er að taka beygju. Það er augljóst að dekkið sem er innar í beygjunni fer hægar en það sem er utar. Ef dekkin væru föst hvort á sínum enda á sama öxlinum mundi eitthvað brotna. Þess í stað er mismunadrif á milli öxlanna sem fara út í hjól sem sér um að dreifa aflinu til hjólanna en leyfir þeim samt að snúast á mismunandi hraða. Af því að það er aldrei nákvæmlega sami þunginn á báðum drifhjólun- um er örlítið léttara að snúa öðru þeirra. Í þessu tilfelli byrjaði það hjól að snúast, mismunadrifið hélt að bíllinn væri í beygju og minnkaði aflið til hins hjólsins. Það sama gerist oft í snjóakstri og öðrum torfærum. Maður situr fastur og spólar og bíllinn hefur ekki einu sinni fyrir því að snúa öllum hjólum! Svekkjandi. Með driflæsingu má gera leikinn auðveldari. Hún er staðalbúnaður í sumum bílum en er oft sett í jeppa eftir á. Þá getur bílstjórinn læst mis- munadrifinu föstu tímabundið og hjólin fá jafnmikið afl og snúast jafn- hratt. Það er stórhættulegt í beygjum þar sem ytra hjólið þarf að fara hraðar, en mjög þægilegt í torfærum að geta látið öll hjól snúast og koma bílnum örugglega áfram. Jafnvel þótt einhver hangi í afturstuðaranum á mannbroddum. ■ Hentar við kaup og sölu bifreiða Frumherji býður upp á tölvustýrt og nákvæmt próf á dempurum bifreiða við ástandsskoðun. Bifreiðaskoðun Frumherja við Hestháls býður viðskiptavinum sínum upp á ástandsskoðun bif- reiða, sem hentar sérstaklega þeim sem standa í kaupum eða sölu á bif- reiðum. „Við ástandsskoðun er bifreiðin meðal annars prufukeyrð og tekin í gegnum fjöldann allan af prófum sem gefa nákvæma mynd af ástandi hennar. Og nákvæm skýrsla er gefin í lok skoðunar- innar,“ segir Svanberg Sigurgeirs- son þjónustustjóri ökutækjasviðs Frumherja. Eitt af þeim prófum sem bifreið- in fer í gegnum er prófun á demp- urum þar sem henni er ekið yfir sérstakan búnað með skynjara sem er tölvutengdur og sýnir niðurstöð- urnar á stórum tölvuskjá. „Á skján- um sjáum við samstundis hvert ástand demparanna er. Þar kemur meðal annars fram hversu góðar festingarnar eru og hversu mikill stífleikinn er,“ segir Svanberg. Tölvan sem notuð er til að prófa demparana les einnig og metur upp- lýsingar úr öðrum prófum. Þar á meðal hvað varðar stefnu dekkj- anna og ástand á bremsum. „Tækið höfum við notað í ein fjögur ár og mest er það notað við ástandsskoðun, en það er ekki í lögum um bifreiðaskoðun að demparana eigi að keyra í gegnum eins nákvæmt próf og þetta er,“ segir Svanberg. Ástandsskoðun er hægt að panta hvenær sem er hjá Frumherja og kostar hver skoðun 5.200 kr. kristineva@frettabladid.is Svanberg Sigurgeirsson þjónustustjóri ökutækjasviðs Frumherja hf. stendur við tölvuna sem sýnir niðurstöður úr demparaprófi. Bifreiðinni er ekið yfir sérstakan búnað sem sker úr um ástand demparanna. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.