Fréttablaðið - 29.01.2005, Side 42
30 29. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Við hrósum...
... Viggó Sigurðssyni landsliðsþjálfara fyrir að kenna ekki dómurunum
um tapið gegn Rússum í gær. Viggó hefur talað um dómarana eftir
hvern leik og ekki vandað þeim kveðjurnar. Hann lét það hins vegar
vera í gær og því segjum við; „Batnandi mönnum er best að lifa.“sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
26 27 28 29 30 31 1
Laugardagur
JANÚAR
Við treystum á...
... lið Kúvæt á HM í handbolta í Túnis en Kúvætar eru þeir einu sem geta bjargað
rassgatinu á íslenska landsliðinu og komið því í milliriðil. Kúvæt hefur reyndar ekki
fengið stig til þessa á mótinu en liðið verður að vinna eða gera jafntefli gegn
Tékkum til að Ísland eigi möguleika á að komast áfram. Íslenska liðið þarf jafnframt
að vinna sinn leik gegn Alsír, sem er ekki sjálfgefið.
HM Í HANDBOLTA Það er morgunljóst
að þau markmið sem Viggó Sig-
urðsson setti fyrir HM í Túnis
voru of háleit. Það varð endanlega
ljóst í gær þegar Rússar pökkuðu
Íslendingum saman í síðari hálf-
leik og sigruðu með sjö marka
mun, 22-29, en staðan í hálfleik
var jöfn, 12-12. Þar sem Tékkar
unnu Slóvena er nokkuð ljóst að
liðið kemst ekki áfram í milliriðil
og er á leið heim.
Rússar voru yfir, 5-0, þegar sjö
mínútur voru búnar af leiknum en
þá varð að gera hlé í rúmar tíu
mínútur þar sem hluti gólfsins
var sleipur og stórhættulegur.
Þetta hlé kom íslensku leik-
mönnunum vel því þeir voru mik-
ið grimmari í kjölfarið og áttu
stórkostlegan kafla þar sem þeir
skoruðu fimm mörk í röð og
breyttu stöðunni úr 5-9 í 10-9.
Hálfleikstölur voru 12-12, sem
var ótrúleg staða þar sem Ísland
hafði lent fimm mörkum undir og
þar að auki klúðrað fjölda dauða-
færa og gert marga tæknifeila.
Það var allt of mikill æsingur í
strákunum í upphafi síðari hálf-
leiks. Það átti að keyra yfir Rússa
en allur þessi hasar skilaði slæm-
um skotum og Rússar fengu
fjölda dauðafæra sem þeir skor-
uðu úr.
Rússar voru því komnir með
fín tök á leiknum snemma í síðari
hálfleik og því taki slepptu þeir
aldrei heldur bættu þeir við. Ís-
lenska liðið átti engin svör og
Rússar unnu mjög verðskuldaðan
sigur.
Brotalamirnar í leik liðsins
sáust greinilega enn á ný gegn
Rússum. Varnarleikur liðsins í
síðari hálfleik var svipaður og í
fyrri leikjum á mótinu – mjög
slakur. Það er alveg klárt að ís-
lenska liðið vinnur ekki þjóðir
eins og Rússland, Tékkland og
Slóveníu á meðan það leikur ekki
betri varnarleik. Það er ekki
flóknara en það.
Stöðugleikinn er heldur enginn
og það er áhyggjuefni hversu illa
liðinu gengur í upphafi seinni
hálfleikja. Þá hrynur varnarleik-
urinn endanlega sem og mark-
varslan. Til að bæta gráu ofan á
svart var Ólafur Stefánsson fjarri
sínu besta í gær og fann sig
hvorki í skyttustöðu né á miðjunni
en hann leikur oftast ekki vel á
miðjunni gegn 3/2/1 vörn.
Það eru margir ljósir punktar í
leik íslenska liðsins á mótinu. Lið-
ið er efnilegt en er einfaldlega
ekki nógu gott til þess að etja
kappi við þá bestu eins og staðan
er í dag. Þess vegna er það á leið-
inni heim. Liðið hefur það með sér
að það er ungt að árum og getur
eingöngu tekið framförum á
næstu árum. Efniviðurinn er til
staðar og Viggó verður að vera
þolinmóður í uppbyggingu liðsins.
Þetta mót var ekki gott en liðið
mætir til leiks reynslunni ríkari á
það næsta.
henry@frettabladid.is
GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON Skorar hér eitt af fimm mörkum sínum í leiknum gegn
Rússum í gær. Hann er markahæsti leikmaður íslenska liðsins á HM með 22 mörk í
fjórum leikjum. Fréttablaðið/Andreas Waltz
Eru ekki nógu góðir
Íslenska landsliðið í handknattleik á enn langt í land með að ná þeim bestu í
heiminum. Það sannaðist gegn Rússum í gær.■ ■ LEIKIR
14.30 ÍS og Þór Ak. eigast við í
Kennaraháskólanum í 1. deild karla í
körfuknattleik.
16.00 Þór Þorl. og Höttur eigast
við í Þorlákshöfn í 1. deild karla í
körfuknattleik.
■ ■ SJÓNVARP
12.15 Enski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá Southampton og
Portsmouth.
14.25 The World Football Show á
Sýn. Fótbolti um víða veröld.
14.45 HM í handbolta á Rúv. Bein
útsending frá leik Íslands og Alsír í
HM í handbolta.
14.50 Enski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Derby og Fulham.
16.55 Enski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Man. Utd og
Middlesbrough.
20.25 Spænski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Sevilla og
Barcelona.
LEIKIR GÆRDAGSINS
HM í handbolta í Túnis
A-RIÐILL
KANADA–GRIKKLAND 23–36
TÚNIS–DANMÖRK 25–22
FRAKKLAND–ANGÓLA 40–18
STAÐAN Í A-RIÐLINUM
TÚNIS 4 3 1 0 132–91 7
DANMÖRK 4 4 0 1 148–85 6
GRIKKLAND 4 3 0 1 105–90 6
FRAKKLAND 4 2 1 1 129-80 5
ANGÓLA 4 0 0 4 81–152 0
KANADA 4 0 0 4 77–174 0
B-RIÐILL
ÍSLAND–RÚSSLAND 22–29
SLÓVENÍA–TÉKKLAND 26–28
ALSÍR–KUVÆT 34–29
STAÐAN Í B-RIÐLINUM
RÚSSLAND 4 4 0 0 120–76 8
SLÓVENÍA 4 3 0 1 127–105 6
TÉKKLAND 4 1 2 1 112–114 4
ÍSLAND 4 1 1 2 120–109 3
ALSÍR 4 1 1 2 112–119 3
KÚVÆT 4 0 0 4 79–137 0
DHL-deild kvenna
VALUR–STJARNAN 23–22
ÍBV–HAUKAR 30–25
ÍBV: Anastasia Patsion 8, Darinka
Stefanovic 6, Zsofia Pasztor 6, Eva Björk
Hlöðversdóttir 4, Alla Gokorian 3.
Haukar: Ragnhildur Guðmundsdóttir 7,
Hanna G. Stefánsdóttir 5, Björk Tómas-
dóttir 5, Ramune Pekaskyte 4.
STAÐAN
HAUKAR 14 13 0 1 423–326 26
ÍBV 14 11 0 3 419–364 22
STJARNAN 14 8 1 5 367–336 17
VALUR 14 8 0 6 343–339 16
FH 13 4 2 7 348-382 10
VÍKINGUR 13 4 0 9 318–348 8
FRAM 13 2 1 10 286–352 5
GRÓTTA/KR 12 2 0 11 284–342 4
Bikarkeppni kvenna í körfu
HAUKAR–KEFLAVÍK 100–72
Stig Hauka: Ebony Shaw 36 (10 fráköst),
Helena Sverrisdóttir 17 (21 frákast, 11
stoðsendingar, 4 stolnir), Hanna
Hálfdánardóttir 16 (6 fráköst, hitti úr 7 af
9 skotum), Ragnheiður Theódórsdóttir 9,
Pálína Gunnlaugsdóttir 8 (6 fráköst, 6
stoðsendingar), Kristrún Sigurjónsdóttir 6,
Ösp Jóhannesdóttir 3, Ingibjörg
Skúladóttir 3, Guðrún Ósk Ámundad. 2.
Stig Keflavíkur: Birna Valgarðsdóttir 21,
Bryndís Guðmundsdóttir 16 (4 fráköst, 4
stoðsendingar), Anna María Sveinsdóttir
12 (8 fráköst, 4 stoðsendingar), María
Ben Erlingsdóttir 10 (5 fráköst), LaToya
Rose 4 (hitti úr 2 af 10 skotum á 23
mínútum), Birna Guðmundsdóttir 3,
Halldóra Andrésdóttir 3, Bára Bragadóttir.
Haukar mæta Grindavík í úrslitaleiknum
í Laugardalshöll 13. febrúar næstkom-
andi.
Því miður lítur út fyrir að leikurinn á
morgun skipti engu máli. Og það að
treysta á að Kúvæt vinni Tékkland er
eins og að treysta á að Múhameð
flytji fjöll. Hvað leikinn á móti Rúss-
um varðar gef ég drengjunum fyrstu
einkunn fyrir metnað og viljann og
þeir lögðu sig mjög vel fram. Það var
í sjálfu sér ekkert óeðlilegt að við
skyldum tapa gegn Rússunum. Það
þýðir samt ekki að við hefðum ekki
getað gert betur. Það kom berlega í
ljós á fyrstu mínútunum að þessi
3-3 vörn sem lagt var upp með var
engan veginn að skila því sem til var
ætlast. Það kemur fyrst og fremst til
að það eru bara ekki nægilega góð-
ar vinnureglur í varnarleiknum. Síð-
an kemur liðið gríðarlega sterkt eftir
að hafa verið 5-0 undir. Það sýndi
mikinn styrk að liðið skyldi komast
yfir í hálfleiknum og það segir mér
að leikmenn voru vel stemmdir.
Ég verð samt að setja spurningar-
merki við ákveðnar uppstillingar sem
voru ekki að skila árangri hvað sókn-
arleikinn varðar. Ég furðaði mig á því
að Ólafur Stefánsson skyldi hafa ver-
ið notaður svona mikið á miðjunni.
Ef tilgangurinn hefur verið sá að
finna Ólafi eitthvað betra hlutverk en
sína gömlu góðu stöðu af því að
hann var ekki að spila eins og við öll
vonuðumst eftir, þá held ég að það
hafi verið fyrir fram dauðadæmt.
Þessar vangaveltur með Ólaf
sem miðjumann byrjuðu þegar
Guðmundur var að þjálfa liðið. Hann
á kannski að detta inn á miðjuna í
eina og eina mínútu en það er ekki
hlutverk Ólafs svona almennt.
Varnarleikurinn og markvarslan í
20 mínútur í fyrri hálfleik voru til
fyrirmyndar og megum við vera
stolt af þessum kafla.
En það var ýmislegt sem vantaði
upp á í seinni hálfleik og við vorum
til dæmis í vandræðum með vinstri
vænginn. Hann komst upp með ansi
marga hluti og Einar átti í vandræð-
um með hann. Það hefði hugsan-
lega mátt prófa að spila 5 plús 1
vörn á þann væng.
Mér fannst of lítið gert til að
brjóta upp sóknarleikinn þeirra.
Sjálfir vorum við ekki með nægilega
margar lausnir sóknarlega séð til að
mæta þeirra vörn og höfðum í raun
of fáar lausnir til þess að hjálpa ÓIafi
að spila betur.
Það bendir allt til þess að þátt-
töku í þessari keppni sé lokið. Það
þýðir að við erum ekki á meðal tólf
bestu, sem eru auðvitað ákveðin
vonbrigði. Ég taldi liðið hafa burði til
að komast áfram en kannski ekki
mikið meira. Niðurstaðan í sjálfu sér
vonbrigði en ekki svo langt frá því
sem ég átti von á. Auðvitað er enn
smá von en það er erfitt að treysta á
aðra og hvað þá Kúvæta.
GEIR SVEINSSON
SÉRFRÆÐINGUR FRÉTTABLAÐSINS
SPÁÐ Í SPILIN
ÍSLAND MÆTTI RÚSSUM
Á HM Í HANDBOLTA Í
TÚNIS Í GÆR
Niðurstaðan er vonbrigði
STÖÐUR ÚR LEIKNUM
Fyrri: 0–5 (7 mín), 2–5, 3–6, 3–8 (16
mín), 5–8, 5–9 (18 mín), 10–9 (24 mín),
11–10, 11–11, 12–11 (28 mín), 12–12.
Seinni: 13–12, 13–13, 14–13, 14–15 (35
mín), 15–15, 16–16, 16–19 (39 mín),
17–19, 17–23 (45 mín), 18–23, 18–24,
20–24, 21–25 (54 mín), 21–28, 22–28,
22–29.
TÖLFRÆÐIN
Skotnýting 46%–55%
Tapaðir boltar 12–10
Hraðaupphlaupsmörk 7–3
Brottvísanir (mínútur) 8–8
Varin skot/víti 18/1–25
Varin skot í vörn 6–3
Víti fengin (nýting) 5 (80%)–3 (33%)
MÖRK–SKOT ÍSLANDS
Alexander Petersson 5–6 (83%)
Guðjón Valur Sigurðsson 5–10 (50%)
Ólafur Stefánsson 5/4–10/5 (50%)
Markús Máni Michaelsson 2–4 (50%)
Dagur Sigurðsson 2–5 (40%)
Einar Hólmgeirsson 2–7 (29%)
Vignir Svavarsson 1–2 (50%)
Vilhjálmur Halldórsson 0–1 (0%)
Róbert Gunarsson 0–3 (0%)
VARIN SKOT ÍSLANDS
Roland Valur Eradze 14/0 af 37/1 (38%)
Birkir Ívar Guðmunds. 4/1 af 10/1 (40%)
STOÐSENDINGAR ÍSLANDS
Ólafur Stefánsson 7 (0 inn á línu)
Markús Máni Michaelsson 2 (1)
Alexander Petersson 2
Vignir Svavarsson 1 (1)
Einar Hólmgeirsson 1
Guðjón Valur Sigurðsson 1
FISKUÐ VÍTI ÍSLANDS
Róbert Gunnarsson 3
Guðjón Valur Sigurðsson 1
Markús Máni Michalesson 1
HRAÐAUPPHLAUPSMÖRKIN
Guðjón Valur Sigurðsson 4
Alexander Petersson 2
Vignir Svavarsson 1
HVAÐAN KOMU MÖRKIN
Langskot Ísland 8– Rússland 11
Úr hornum 3–2
Af línu 0–8
Með gegnumbroti 0–4
Úr hraðaupphlaupum 7–3
Úr vítum 4–1
22-29
ÍSLAND RÚSSLAND
HENRY BIRGIR
GUNNARSSON
SKRIFAR UM
HM Í
HANDBOLTA
FRÁ TÚNIS
Guðjón Valur Sigurðsson:
Veltur á
vörn og
markvörslu
HM Í HANDBOLTA „Við erum með þá
um tíma en svo springum við á
limminu í síðari hálfleik og eigum
okkur ekki viðreisnar von eftir
það,“ sagði hornamaðurinn Guð-
jón Valur Sigurðsson, sem skoraði
fimm mörk í leiknum.
„Það veltur allt á vörn og
markvörslu hjá okkur. Fyrri hálf-
leikur hefur oftast verið góður og
þá eru menn vel á tánum. Svo í
seinni hálfleik gerist eitthvað sem
verður að laga en það er ljóst að
vörnin og markvarslan hrynja
ávallt í síðari hálfleik og það
gengur einfaldlega ekki. Það eru
margar ástæður fyrir þessum töp-
um en þegar leikir verða spenn-
andi virðumst við ekki ná að halda
saman sem lið í vörn. Það er samt
margt jákvætt í þessu og framtíð-
in er okkar.“ ■