Fréttablaðið - 29.01.2005, Page 44

Fréttablaðið - 29.01.2005, Page 44
29. janúar 2005 LAUGARDAGUR Tilfinningin að sitja í jeppa og keyra um höfuð- borgarsvæðið er öðruvísi en ég hafði gert mér í hugarlund. Hingað til hafa fordómar mínir í garð jeppa og jeppaeigenda ver- ið miklir. Mér fannst þeir vaða yfir allt og alla, leggja þar sem þeir vildu, svína fyrir aðra, flauta á smærri bíla og jafnvel fara yfir á rauðu án þess að kippa sér upp við það. Með því að komast hinum megin við borðið er ég loksins farinn að skilja betur það tillits- leysi sem jeppaeigendur hafa oft verið sakaðir um. Eins rólegur ökumaður og ég vanalega er um- breyttist ég þegar ég settist und- ir stýri á himinháu tryllitækinu í nokkra daga. Það greip um mig frelsistilfinning og áður en ég vissi af var ég orðinn að því sem ég hafði fyrirlitið svo lengi. Af því að ég var skyndilega orðinn stærri og sterkari í um- ferðinni fannst mér ég geta gert það sem mér sýndist. Ég leit niður á litlu bílana og glotti þegar þeir færðu sig af vinstri akrein yfir á þá hægri þegar ég mætti á svæðið á fljúgandi sigl- ingu. Hefðu þeir ekki vikið hefðu þeir orðið fastir í tann- hjóli mínu. Þegar annar jeppi mætti til leiks vildi ég hann í burtu, því hann ógnaði nýfengn- um yfirráðum mínum. Helst hefði ég viljað vera eini jeppinn í heiminum. Ég var ósnertanlegur og íhugaði jafnvel að þrusa yfir á rauðu ljósi því ég myndi hvort sem er sleppa óskaddaður. Svo brenglaður var ég orðinn. Það er gott að sjá báðar hliðar á málunum, ekki síst hvað varð- ar akstur á litlum bíl og jeppa. Fordómar mínir gagnvart jepp- um hafa minnkað, svo mikið er víst. Gæti ég orðið jeppaeigandi í framtíðinni? Hugsanlega. Fyrst þyrfti ég þó að læra að stilla mig og einsetja mér að keyra eins og á að keyra í umferðinni. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA FREYR BJARNASON SKRIFAR UM JEPPAFERÐIR SÍNAR UM HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ. Ósnertanlegur á risastórum jeppa Sjálfstæð kona sem ætlar sér stóra hluti og gerði DAGBLAÐIÐ VÍSIR 24. TBL. – 95. ÁRG. – [LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005] VERÐ KR. 295 Róbert MarshallAftur á sjóinn Bls. 10-11 Útigangskona á leið í Húsmæðra- skólann Bls. 26-27 Bls. 24 Dorrit Óþekkurunglingur oggiftist ung Bls. 38-39 Kynþokkafyllsta kona Íslands Hann horfði á systur mína deyja ekkert Fallegustu mömmur landsinsFegurðardrottningar Íslands í 25 ár Bls. 28-30 Systurnar Helena og Birgitta misstu foreldra sína15 og 11 ára. Birgitta dó eftir að hafa fengið ofstóran skammt fíkniefna frá Eiði Erni Ingvarssynisem horfði aðgerðarlaus á líf hennar fjara út. EiðurÖrn var í gær dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrirglæpinn. Helena segir DV sögu litlu systur sinnarsem hún segir nú loks geta hvílt í friði. Bls. 14–15 Sjónvarpsþulan Ellý Ármanns Hættur í fréttum og er á leið á sjóinn Róbert Marshall í ítarlegu helgar- viðtali Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Að hugsa sér. Í dag byrjar krakkinn í leikskólanum. Blessað barnið... Oh, ég elska þetta lag! Ef stór og sterk dýr eins og tígrisdýr og fílar eru á lista yfir skepnur í útrýmingar- hættu... Hvernig á þá lítill gaur eins og ég að eiga möguleika!?! Hvers á ég að gjalda!?!? GEISP! Jæja, eitt er áhreinu... Úrvals útsendingartími og úrvalstími foreldrasmákrakka eru tvennt ólíkt. zzzzzzzzzz zzzz... Er það? Jú, en ég var að kaupa diskinn. Finnst þér ekki frá- bært að við séum með svona svipaðan tónlistarsmekk? Hmm Já, er þetta ekki Skýið með Bjögga Halldórs? Nýr heimur, nýir vinir, nýir leikir... Ég sé fyrir mér eftir- væntinguna í augum hennar. Beta fer með hana... ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ ÞÉR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.