Fréttablaðið - 29.01.2005, Page 46
Gallerí Fugl er nýtt gallerí á horni
Bergstaðastrætis og Skólavörðu-
stígs, staðsett inni í skyrtubúðinni
hjá Indriða klæðskera. Að því
stendur nýtt félag um gagnrýna list
– Fugl. Það kæmi mér ekki á óvart
að að sá félagsskapur væri stofn-
aður til höfuðs þeim nýrómantísku
ormum sem næra myndlistarjarð-
veg borgarinnar um þessar mundir.
Ekkert fer meir í taugarnar á róm-
antíkerum en gagnrýni – og gagn-
rýnum listamönnum er verst við
alla rómantík, nánast skammaryrði.
Táknmynd hins nýja félags er álku-
legur fugl væntanlegra ormaæta
með hangandi haus, ófleygur og
reyttur en þó með með sundfitjar –
útskorinn í anda hins heimóttarlega
íslenska handverks.
Í hliðarsal verslunarinnar er
gallerípláss og þar sýnir fyrstur og
fremstur meðal jafningja í hópi
gagnrýnna listamanna Hannes
Lárusson. Á þessari sýningu er
hann með nýtt verk unnið með
blandaðri tækni: steini, málmi,
myndbandi og taui og nefnist sýn-
ingin HUB eða ÁS. Á miðju gólfinu
hefur hann komið fyrir hringlaga
tonnataki ættuðu úr Laugarnesinu,
sannkölluðu grettistaki með ellefu
örmum sem þó líta út eins og snún-
ingssveifur, þó fastar séu. Á vegg er
varpað mynd af ellefu listamönnum
að honum sjálfum meðtöldum, vel
klæddum úti í kuldanum með höfuð-
föt, flestir þunglyndislegir og niður-
lútir í stíl við merki félagsins. Þeir
eru sýndir snúandi grettistakinu
með samtakamætti sínum, allir
heldur álkulegir undan þunganum.
Það hefur verið fullyrt að steinninn
eða grjótið sé ein af táknmyndum,
jafnvel „frummyndum“, sem skjóta
upp kollinum víða í myndlist
Hannesar. Steinninn standi einfald-
lega fyrir jörðina og íslenska nátt-
úru – gefið er í skyn að sú djöfullega
tala ellefu snúi jörðinni með sam-
takamætti og leikur grunur á að
samsæri sé hér á ferðinni. Eða eru
þetta kannski ellefu listamenn í
hlutverki píslarvætta?
Hvernig eða hvort þetta verk
tengist hinu veggverkinu í salnum
er ekki gott að segja en tveir tugir
af hálstaui úr 100% polyester hanga
á veggnum til hliðar við takið og sí-
byljusnúninginn. Á hverju bindi er
bleksprautuprentaður einn stór
ormur og margir litlir sem mynda
undirliggjandi áferð. Bindin eru
framleidd á heimóttarlegan hátt í
verksmiðju á Flúðum í Hruna-
mannahreppi. Það er freistandi að
bera þau saman við ítölsku
handofnu silkibindin sem Indriði
klæðskeri saumar og leggur stoltur
á borð í salnum við hliðina. Ormur-
inn gefur silkið í þráðinn hans og
stenst lífvana 100% polyester gervi-
efni Hannesar engan samanburð.
Hinn lifandi rómantíski ormur
endurmyndar, endurreisir. Hann
hreinsar jörðina, nærist innan henn-
ar og dillar sér listilega í gegnum
erfiðar aðstæður. Í slóð hans er
nærandi líf og jákvæðni. Í slóð hins
er þungi, þó með háðskum undirtóni
sem ekki er gott að átta sig á hvert
stefnir eða hvort sé yfirleitt að
stefna eitthvað, nánast lífvana písl-
arvottur sem er út af fyrir sig svo-
lítið rómantískt eins og gengur í
dag. Hin endalausa hringrás. ■
34 29. janúar 2005 LAUGARDAGUR
EKKI MISSA AF…
… Myrkum músíkdögum
kl.14.00 á morgun, sunnudag, í
Menningarmiðstöðinni í Gerðu-
bergi. Barnaóperan Undir dreka-
væng eftir Mist Þorkelsdóttur og
Messíönu Tómasdóttur.
… Kammersveit Reykjavíkur í
Listasafni Íslands kl. 20.00, und-
ir stjórn Bernharðs Wilkinssonar.
Á efnisskrá eru verk eftir Pál P.
Pálsson, Karólínu Eiríksdóttur,
Gunnar Andreas Kristinsson,
Jón Nordal og Tryggva M. Bald-
vinsson.
Sýningar Strengjaleikhússins á nýrri íslenskri
barnaóperu, Undir drekavæng, eftir Mist Þor-
kelsdóttur og Messíönu Tómasdóttur hefjast í
Gerðubergi á morgun, sunnudag. En ýmislegt
fleira áhugavert er á döfinni á því góða menn-
ingarheimili. Í byrjun mars verður haldið mál-
þing um barnamenningu á Íslandi. Þá mun
Gerðuberg stofna formlega listaverkasafnið
Gagn og gaman og gefst gestum málþingsins
kostur á að sjá tölvumyndasýningu með úrvali
mynda úr safninu. Gerðuberg býður stofnun-
um og fyrirtækjum að fá tilbúnar sýningar úr
safninu til að lífga upp á andann! Ljósbera-
hópurinn opnar sýninguna Hratt og hömlu-
laust – Raunveruleiki íslensku fjölskyldunn-
ar? um miðjan mars en þar munu meðal ann-
arra nemar á listabraut úr Fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti koma á framfæri sýn sinni á
íslensku fjölskylduna. Eftir páskana mun Vil-
borg Dagbjartsdóttir sitja fyrir svörum á Rit-
þingi. Í lok apríl opnar sýningin Stefnumót
við safnara sem sló svo eftirminnilega í gegn
í fyrra.
Kl. 16.00
Leikhúsmál – málfundur um leikhús í
samstarfi Borgarleikhússins og Leiklist-
arsambands Íslands – verður haldinn í
forsal Borgarleikhússins í dag, laugar-
dag. Umræðuefni: Fastráðningar lista-
manna við leikhúsin.
menning@frettabladid.is
Á döfinni í Gerðubergi
Fossar Rúríar í Listasafninu
MYNDLIST
GODDUR
Gallerí Fugl
Hannes Lárusson
Gefið er í skyn að sú djöfullega tala
ellefu snúi jörðinni með samtaka-
mætti og leikur grunur á að samsæri
sé hér á ferðinni. Eða eru þetta
kannski ellefu listamenn í hlutverki
píslarvætta?
!
eftir Böðvar Guðmundsson
Leikgerð: Bjarni Jónsson
í samvinnu við Þórhildi Þorleifsdóttur,
Vytautas Narbutas og leikhópinn.
„Sýningin er veisla fyrir augað og gædd
glæsilegum skyndiáhlaupum í lýsandi
mannlegum örlögum sem opna stór
svið tilfinninga: ótta, vonar, ósigurs
og vinninga, hláturs og harma.
Þetta er glæsilega hugsuð og
velbyggð leiksýning sem er
öllum þeim til sóma sem að
henni standa.“
PBB DV
Viðskiptavinir KB banka fá 20% afslátt af
miðaverði á Híbýli vindanna í febrúar.
Mikill áhugi á verkinu hjá
erlendum listasöfnum.
Sýning á Archive – Endangered
Waters, listaverki Rúríar sem
vakti heimsathygli á Feneyjatví-
æringnum á Ítalíu árið 2003 verð-
ur opnuð í Listasafni Íslands í dag.
Verkið hefur ekki verið sýnt á
Íslandi áður, en staldrað við á
heimleið bæði í Museum het
Domein í Hollandi og Passage de
Désir í París. Rúri segir að það sé
vissulega gaman að sýna verkið
hér, einkum eftir að búið er að
setja það upp. Það er þó handlegg-
ur, því það samanstendur af 52
myndrömmum með 47 íslenskum
fossum – með hljóðmynd og öllu
saman. Hljóð hvers foss var tekið
upp úti í náttúrunni – og því býsna
mikilfenglegt að upplifa verkið.
Sýningin í París vakti gífurlega
athygli, 580 manns mættu á opn-
unina, sem er mjög mikið í París
nema þegar um frægar safnsýn-
ingar er að ræða. Sýningin fékk
mikla umfjöllun og í kjölfarið
hafa borist fyrirspurnir um verk-
ið frá nokkrum löndum, t.d.
Þýskalandi, Austurríki, Spáni,
Englandi og Bandaríkjunum. Svo
veit maður ekki hvað verður.
Reyndar var verkið á leið til
Þýskalands þegar því var snúið
hingað heim.
„Ég varð að flytja það heim
áður en ár væri liðið frá því toll-
skírteini var gefið út. Það hafði
fengist framlenging á skírteininu
til þess að sýna verkið í Hollandi
og Frakklandi og hefði þurft enn
eina framlengingu til að sýna það
í Þýskalandi. Ég var búin að fá
mjög skýr skilaboð um að sú
framlenging fengist ekki. Ég
þurfti að flytja það heim til þess
að fá ekki ofur-refsitolla. Það var
tíu sinnum ódýrara að flytja
verkið heim og aftur út – en að
lenda í refsitollum. Þá var tæki-
færið auðvitað notað til þess að
sýna verkið hér heima, því það
hefur verið stefna Listasafns
Íslands síðustu árin að sýna Feyn-
eyjaverkin sem fara héðan.“
Þegar Rúrí er spurð hvort verk
hennar fari síðan til Þýskalands,
segir hún það mjög óvíst. „Niður-
staðan er sú að sýningarsalurinn
er í miklum vafa um hvort það
eigi að leggja í þann kostnað að
flytja verkið aftur út. Þetta er
gremjulegt vegna þess að við
þurfum á því að halda að íslensk
myndlist sé gerð gjaldgeng er-
lendis. Það er mjög algengt að er-
lend gallerí óski eftir því að fá ís-
lensk verk til sýninga, þótt þau
séu ekki alltaf svona stór. Tolla-
málin hér hafa verið akkilesar-
hæll fyrir íslenska listamenn. Ef
við viljum að íslensk menning sé
þekkt í umheiminum verðum við
að finna leiðir sem gera henni það
kleift.“
Rúrí segir þó ánægjulegt að
miklar fyrirspurnir um verkið
séu í gangi í Þýskalandi. Hún
segir það hafa verið skemmtilega
upplifun í París hvað áhorfendur
voru hrifnir af verkinu. „Þetta var
fólk sem er vel að sér í myndlist,
geip inntak þess mjög fljótt og
hafði skoðun á því. Það var gaman
fyrir mig að finna að verkið hefur
ríkan tilgang.“ ■
DETTIFOSS Einn af íslensku fossunum 47 sem Archive – Endangered Waters
samanstendur af.
Myndlistarmaðurinn
sem píslarvottur?
HRINGRÁS Ekkert fer meir í taugarnar á
rómantíkerum en gagnrýni – og gagnrýn-
um listamönnum er verst við alla róman-
tík, nánast skammaryrði.
FJÖLSKYLDUVÆN MENNINGARMIÐSTÖÐ Börnin
og fjölskyldan setja svip sinn á Gerðuberg næstu vik-
urnar.