Fréttablaðið - 29.01.2005, Side 56

Fréttablaðið - 29.01.2005, Side 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT 2. sýning 13. febrúar kl. 19 – FÁAR SÝNINGAR Miðasala á netinu; www.opera.is Netfang miðasölu; midasala@opera.is • Sími miðasölu: 511 4200 Banki allra landsmanna Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is Hreint skipulag 20. janúar til 20. febrúar SLUGIS geymslukassi 35x27x13 sm 245,- RIGGA fataslá 118x160 sm 1.490,- RUTER strauborð 108x33x90 sm SLUGIS geymslukassi með hjólum 56x35x30 sm 785,- PRESSA þvottaklemmur 21 stk. 125,- 690,- Sænskar kjötbollur með kartöflum, týtuberjasultu og rjómasósu, 10 stk. 490,- 895,- JÄLL þvottakarfa 41x43x64 sm BUMERANG herðatré 8 stk. 490,- 895,- MANGEL þurrkgrind 81x54x90 sm LINNAN hirsla 30x22x34 sm 550,- IK E 27 16 8 0 1. 20 05 © In te r IK EA S ys te m s B. V. 2 00 5 350,- PRESSA strauborð fyrir borð 73x32x13 sm ANTONIUS hirsla 44x54x77 sm 3.265,- SKUBB hilluhengi 15x120x35 sm 1.190,- Hjarðeðlið Það er alveg sama hversu margarpopphljómsveitir syngja um það að maður eigi að vera maður sjálfur og það er alveg sama hversu margir sál- fræðilega þenkjandi einstaklingar fjalla um mikilvægi þess að maður finni sjálf- an sig. Efli sérkenni sín. Ekkert af þessu skiptir nefnilega máli þegar hjarðeðli mannsins er annars vegar. Málið er nefnilega það að við erum meira eða minna öll eins. Að minnsta kosti erum við miklu meira eins en við þorum að viðurkenna. Held ég. ÉG skal bara nefna dæmi. Um daginn hélt ég að ég væri mikill sérvitringur. Alveg á skjön við samfélagið. Ég var nefnilega spá í að skrá mig á námskeið um Íran og Kóraninn og þess háttar. Maður hefði haldið að fáir hefðu áhuga á því nú á þessum tímum þegar allir eru uppteknir af því að kaupa hús og innrétta íbúðir. En nei takk. Það var ekki þannig. Greint var frá því í frétt- um, áður en ég hafði hreyft legg eða lið, að metþátttaka væri á námskeið- inu. Íslendingar voru allt í einu orðnir sérstakir áhugamenn um Kóraninn (eða Kóralinn eins og einn góður mað- ur kallaði hina merku bók). Þetta er alltaf svona. ALLTAF er maður eins og allir aðrir. ÉG keypti mér brúnan leðurjakka einu sinni. Las það auðvitað skömmu síðar í tveggja mánaða gömlu tísku- blaði að nú væru allir í brúnum leður- jökkum vegna þess að Brad Pitt hefði verið í svoleiðis jakka í einhverri bíó- mynd. Hvernig stendur á þessu? Er maður kannski bara læmingi? Hóp- dýr? Stekkur fram af bjargbrúninni á sama tíma og allir aðrir? Í öllu falli leið mér nákvæmlega þannig þegar ég ætlaði einu sinni að græða peninga. Það var í gegnum keðjubréf. Fleiri höfðu fengið sömu hugmynd. Ég reyndist vera aftastur í keðjunni, sem var ekki gott. NÆRRI undantekningalaust þegar mér finnst einhver stelpa sæt kemur í ljós að öllum öðrum strákum finnst hún sæt líka. Maður má ekki eiga neitt í friði. Ég man til dæmis eftir von- brigðunum einu sinni þegar ég sá það í blaði, sem menntaskólastrákur, að stelpan sem ég var hrifinn af var valin af einhverjum ljósmyndara sem ein af kynþokkafyllstu stelpum Íslands. Hvurs lags eiginlega er þetta? Í EINA skiptið sem mér hefur tekist að vera eitthvað spes var þegar allir unglingar áttu BMX-hjól. Þá átti ég nefnilega hjól sem bar skammstöfun- ina CBX og var framleitt í Bandaríkj- unum rétt áður en BMX-æðið byrjaði. En þá kom upp alveg spánnýtt vanda- mál. Mér leið alltaf hálf asnalega á hjóli sem hét ekki sama nafni og öll hin. ÞETTA er hjarðeðlið. Maður getur rakið dæmin endalaust. Allan daginn. Allan ársins hring. Ég hélt til dæmis á tímabili að ég tilheyrði minnihlutahópi með því að vera á móti því að Ísland styddi Íraksstríðið. En það var nú al- deilis ekki. Hjörðin veit nefnilega sínu viti og er alls ekki jafn vitlaus og sum- ir halda. Sem betur fer. ■ BAKÞANKAR GUÐMUNDAR STEINGRÍMSSONAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.