Fréttablaðið - 13.02.2005, Blaðsíða 1
LETTAR VIÐ VINNU ÁN TILSKIL-
INNA LEYFA Vinnumálastofnun hefur
kært fyrirtækið GT-verktaka til sýslumanns-
ins á Seyðisfirði. Fyrirtækið er með fjóra
Letta í vinnu á Kárahnjúkum án dvalar- eða
atvinnuleyfa. Samkvæmt talsmanni GT-verk-
taka telur fyrirtækið sig vera réttum megin
við lögin. Sjá síðu 2
FRAMSÓKNARFÓLK ÁNÆGT MEÐ
SINN MANN Ef skoðanakönnun um
hversu vel fólk telur að Halldór Ásgrímsson
hafi staðið sig sem forsætisráðherra er
greind eftir stuðningsfólki flokka kemur í
ljós að framsóknarfólk er langánægðast
með sinn mann. Stuðningsfólk Vinstri
grænna og Frjálslynda flokksins er óá-
nægðast. Sjá síðu 4
AFRÍKU SKORTIR UNGT ÁRÆÐI
Afrísk ungmenni hafa skipt miklu máli í
stjórnmálabaráttu í álfunni en það skilar sér
ekki í áhrifum þeirra á landsstjórnina.
Vandamál afrískra ungmenna eru að þau
hafa ekki atvinnu, eiga engar eignir og
kjósa í flestum tilfellum ekki. Sjá síðu 6
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Kvikmyndir 18
Tónlist 18
Leikhús 18
Myndlist 18
Íþróttir 14
Sjónvarp 20
SUNNUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
13. febrúar 2005 – 41. tölublað – 5. árgangur
DREGUR ÚR VINDI AUSTANLANDS
og verður hæg breytileg átt um miðbik
dagsins. Snýst í SV átt syðra með kvöldinu.
Sjá síðu 4
EIVÖR OG KASA Eivör Pálsdóttir flytur
eigin lög ásamt KaSa-hópnum í nýjum út-
setningum Hilmars Arnars Hilmarssonar á
tónleikum í Salnum, Kópavogi klukkan 20 í
kvöld.
Karlar 20-40 ára
Me›allestur dagblaða
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004
MorgunblaðiðFréttablaðið
61%
33%
ÍRAK Írösku kosningarnar eru af-
staðnar en ekkert lát er á bardög-
um og voðaverkum. Það sýna at-
burðir síðustu daga. Á aðeins einni
viku hafa rúmlega 200 manns látið
lífið, flestir í árásum vígamanna
en aðrir í bardögum vígamanna við
bandaríska hermenn og íraska
þjóðvarðliða.
36 manns hið minnsta létust í
gær. Sautján þeirra fórust í
bílsprengjuárás við sjúkrahús í
Musayyab, bæ sextíu kílómetra
suður af Bagdad, þar sem meiri-
hluti íbúanna eru sjía-múslimar.
Hann er hins vegar á svæði þar
sem búa hvort tveggja sjíar og
súnníar og mikið er um árásir víga-
manna úr röðum súnní-múslima.
Bardagar milli vígamanna og
bandarískra hermanna í Mosul
reyndust mannskæðir. Níu víga-
menn létust sem og tvær konur
þegar sprengjur frá bardögunum
lentu á heimilum þeirra. Þá fund-
ust lík sex íraskra þjóðvarðliða og
sex kúrdískra öryggisvarða í borg-
inni. Þeim hafði verið rænt, þeir
bundnir og skotnir. Fyrr í vikunni
létust tólf lögreglumenn í sjálfs-
morðsárás og í desembermánuði
einum fundust lík 150 lögreglu-
manna og þjóðvarðliða í borginni.
Mannfallið í Írak hefur verið
mikið í vikunni og aðeins einu sinni
farið undir tuttugu manns. Það var
á miðvikudag þegar minnst níu
manns létu lífið. Mest var mann-
fallið á fimmtudag þegar 50 manns
létu lífið í bardögum og árásum.
- bþg
BLAÐAMANNAVERÐLAUN Blaðamanna-
verðlaun ársins 2004 voru afhent á
Pressuballi á Hótel Borg í gær-
kvöld. Það var Árni Þórarinsson,
Morgunblaðinu sem hlaut Blaða-
mannaverðlaun ársins 2004 að
þessu sinni. Hlaut hann verðlaunin
fyrir ítarlega og greinargóða frétta-
skýringu um forsetatíð Ólafs Ragn-
ars Grímssonar í aðdraganda for-
setakosninganna síðastliðið sumar.
Í flokki Rannsóknarblaða-
mennsku ársins 2004 varð Kristinn
Hrafnsson, DV, hlutskarpastur.
Hlaut hann verðlaunin fyrir upp-
lýsandi fréttir af örlögum íslensks
drengs, Arons Pálma Ágústssonar, í
fangelsi í Texas.
Bergljót Baldursdóttir, RÚV –
Fréttastofu útvarpsins, Morgun-
vaktinni hlaut verðlaun fyrir bestu
umfjöllun ársins 2004, ítarlega og
fróðlega úttekt á stöðu og velferð
aldraðra á Íslandi. - ss
Forngrískar grímur:
Bjóða upp á nýjar aðferðir í nútímaleikhúsi. Í Grikklandi til forna voru þær notaðar til að sýna svipbrigði í
stórum hringleikahúsum. Í Mýrarljósi eru þær notaðar í landi hinna dauðu.
Þrjátíu manns
falla daglega
Rúmlega 200 manns hafa fallið í árásum og bardögum í Írak síðustu vik-
una. Í gær féllu nær 40 í bardögum, sprengjuárásum, tilræðum og
mannránum sem enduðu með morðum.
Blaðamannaverðlaun ársins 2004:
Verðlaunað fyrir umfjöllun um Ólaf
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Enska úrvalsdeildin:
Eiður hetja
Chelsea
FÓTBOLTI Okkar maður Eiður Smári
Guðjohnsen var hetja Chelsea í
gær þegar liðið lagði Everton á
útivelli en Eiður skoraði eina
mark leiksins þeg-
ar rúmar 20 mín-
útur voru til
leiksloka. Þetta
var langþráð
mark fyrir Eið
Smára því hann
hafði ekki skorað
fyrir Chelsea í
deildinni frá því í
jafnteflisleiknum
gegn Arsenal
þann 12. desem-
ber síðastliðinn.
Eiður Smári lék allan leikinn í
gær og lét mikið að sér kveða.
Hann brenndi af tveimur dauða-
færum áður en markið leit dags-
ins ljós og hefði auðveldlega getað
skorað þrennu í leiknum.
Með sigrinum náði Chelsea tólf
stiga forystu í ensku úrvalsdeild-
inni en Manchester United getur
minnkað bilið niður í níu stig ef
liðið nær sigri gegn erkifjendun-
um í Manchester City í dag.
- vig
Bresku
kvikmyndaverðlaunin:
Valdís
verðlaunuð
KVIKMYNDIR Valdís Óskarsdóttir
hlaut bresku kvikmyndaverð-
launin fyrir klippingu á banda-
rísku myndinni Eternal Sunshine
of the Spotless Mind. Aldrei áður
hefur Íslendingur hlotið Bafta
verðlaunin. Myndin var einnig
verðlaunuð fyrir besta uppruna-
lega handritið.
Það var myndin The Aviator
sem hlaut Bafta verðlaunin sem
besta kvikmyndin. Jamie Foxx
var valinn besti karlleikarinn
fyrir leik sinn í myndinni Ray og
Imelda Staunton var valin besta
leikkonan fyrir leik sinn í mynd-
inni Vera Drake. ■
Dominos-karlinn
gefur út bækur í
Færeyjum
SÍÐA 22
▲
Galdrar fram
nornatónlist
SÍÐA 22
▲
Ernst S. Olsen: Barði Jóhannsson:
SÍÐA 12
▲
EIÐUR SMÁRI
GUÐJOHNSEN
MANNFALL Í GÆR
17 létust í bílsprengjuárás í Musayyab.
12 lík þjóðvarðliða og Kúrda fundust í
Mosul.
9 vígamenn féllu í bardögum við Banda-
ríkjaher í Mosul.
2 konur létust þegar sprengjur féllu á
hús þeirra í Mosul.
2 fundust myrtir á leiðinni til Bagdad,
sjía-klerkur og sonur hans.
1 kona lést í bílsprengjuárás í Bagdad
1 lést í tilræði í Basra, þekktur dómari.
VINNINGSHAFAR BLAÐAMANNAVERÐLAUNANNA Það voru þau Kristinn Hrafnsson, Bergljót Baldursdóttir og Árni Þórarinsson sem
hlutu verðlaun Blaðamannafélags Íslands á Hótel Borg í gærkvöld. Ragnar Axelsson hlaut verðlaun blaðaljósmyndara fyrir mynd ársins.