Fréttablaðið - 13.02.2005, Page 13
Ragnar Fjalar Sævarsson er fram-
kvæmdastjóri prentfyrirtækisins Sam-
skipta. Hann hefur sinnt því starfi dag-
lega í tvö ár og dreymt það á nóttunni.
„Við prentum nánast allt milli himins og
jarðar. Ef þú þarft að láta prenta eitthvað
þá geturðu komið til okkar,“ segir Ragnar
Fjalar brosandi. Hann segir starfsmenn
fyrirtækisins vera vel á fjórða tuginn enda
sé það staðsett á þremur stöðum á höfuð-
borgarsvæðinu. Þó kveðst hann ekki vera á
stöðugum þeytingi á milli. „Ég er með gott
fólk og það eru aðrir sem sjá um að reka
útibúin. Mín skrifstofa er í Síðumúlanum
en ég kíki auðvitað á hina staðina líka. Svo
er maður náttúrlega á fundum allan lið-
langan daginn víðsvegar um bæinn.“
Þegar blaðamaður vill vita hvað gerist á
fundunum svarar hann. „Það er verið að
semja um hitt og þetta, bæði við okkar birg-
ja og að hjálpa sölumönnum að ná í og
viðhalda viðskiptum. Skemmtilegt? Já, ann-
ars væri maður ekki í þessu.“ Hann viður-
kennir þó að mikið áreiti fylgi starfinu,
mikil ábyrgð og lítill friður. „Maður er í
starfinu 24 tíma á sólarhring því mann
dreymir það á nóttunni. Í góðu draumunum
er maður að gera góða hluti og svo fær
maður martraðir inn á milli.“
Tími fyrir áhugamálin er takmarkaður
hjá Ragnari Fjalari en hann kveðst líka eiga
fjölskyldu sem hann þurfi að sinna. „Það
má segja að ég sé „atvinnu verðandi
golfari,“ segir hann. „Ég hef aldrei komist á
völlinn en það kemur að því!“
Ekki er hægt að sleppa honum án þess
að spyrja hann hvort hann sé barnabarn
sr. Ragnars Fjalars Lárussonar. „Já, það pass-
ar. Við erum þrír sem heitum þessu nafni en
auk þess eru margir Fjalarar í ættinni.“ ■
Mikið áreiti og mikil ábyrgð
atvinna@frettabladid.is
Listin að hámarka frammi-
stöðu er yfirskrift námsstefnu
sem haldin verður á Hótel
Nordica á Suðurlandsbraut
miðvikudaginn 2. mars. Þar
eru viðskiptamönnum
kenndar aðferðir íþrótta-
manna, þar sem geta ein-
stakling-
anna er
nýtt til hins
ýtrasta. Fyrirlesari er Krish
Dhanam, aðalfyrirlesari Zig Zigl-
ar corporation, sem hefur vakið
óskipta athygli sem einn af
fremstu fyrirlesurum Bandaríkj-
anna. Námsstefnan er ætluð
stjórnendum, þjálfurum, skóla-
mönnum, markaðs- og sölu-
mönnum og starfsmanna-
stjórum. Hægt er að skrá sig á
námskeiðið á www.starf.is
Starfsmenntaráð hefur auglýst
eftir umsóknum um styrki
vegna starfsmenntunar í at-
vinnulífinu. Markmiðin sem
gengið er út frá við val á verk-
efnum eru að verkefnin nái til
sem flestra, að þau mæti sýni-
legri þörf á endurmenntun og
unnin í samvinnu ólíkra aðila.
Þeir sem eiga rétt á að sækja
um styrk eru meðal annars
einstök fyrirtæki og einkaaðil-
ar sem standa fyrir starfs-
menntun í atvinnulífinu, og
starfsmenntaráð einstakra
atvinnugreina.
Umsóknar-
frestur er til 18.
mars næstkomandi.
Sprotaþing verður haldið
föstudaginn 18. febrúar þar
sem fjallað verður um framtíð
og forsendur sprotafyrirtækja á
Íslandi. Þingið er haldið af
Samtökum sprotafyrirtækja og -
iðnaðarins í samstarfi við iðn-
aðar- og viðskiptaráðuneyti,
menntamálaráðuneyti og fyrir-
tæki og stofnanir. Þingið verður
haldið í höfuðstöðvum Marels
hf., Austurhrauni 9 í Garðabæ
og stendur milli kl. 13 og 17.
Þingið er opið en tilkynna þarf
þátttöku á netfangið skran-
ing@si.is eða í síma 591 0100.
Ragnar Fjalar hefur mikinn metnað fyrir hönd fyrirtækisins og segir framkvæmdastjórastarfið 24 stunda
vinnu á sólarhring.
LIGGUR Í LOFTINU
í atvinnu
MEST LESNA ATVINNUBLAÐ LANDSINSER ÞÍN ATVINNUAUGLÝSING HÉR?
studentamidlun.is BLS. 2
Geðfatlaðir fá störf BLS. 2
Bandaríkjamenn öruggir í starfi BLS. 2
Herferð gegn fölsurum BLS. 2
SMÁAUGLÝSINGAR
byrja í dag á bls. 18
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er sunnudagur 13. febrúar,
44. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 9.29 13.42 17.56
AKUREYRI 9.22 13.27 17.32
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
STÖRF Í BOÐI
Sölumenn
Lögfræðingur
Tölvusérfræðingur
Verkstjóri
Þjónustufulltrúi
Sölu- og þjónustufulltrúi
Yfirflugkennari
Sálfræðingur
Grafískir hönnuðir
Kennarar
Sérfræðingar
Lyfjafræðingur
Rekstrar- og tæknistjóri
Ræstingar
Rafvirkjar
Málmiðnaðarmenn
Vörustjóri
Sölustjóri
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
Lengri vinnuvika
í Frakklandi
Verkalýðsfélög í Frakklandi eru á mót löggjöf Chirac.
Ríkisstjórn Jacques Chirac,
forseta Frakklands, hefur
kosið með umdeildri vinnu-
löggjöf um að lengja vinnu-
vikuna í landinu. Nú er
vinnuvikan 35 stundir en
Chirac vill lengja hana í 48
stundir sem er hámark inn-
an Evrópusambandsins.
Forráðamenn verkalýðs-
félaga óttast að þessi nýja
löggjöf gefi fyrirtækjum
tækifæri til að ráða vinnu-
stundum. Yfir þrjú hundruð
manns mótmæltu um síð-
ustu helgi en Chirac vonar
að öldungadeildin sam-
þykki löggjöfina í næsta
mánuði. Þá verður hún að
lögum í landinu öllu. ■
Chirac forseti er ekki vinsæll
meðal alþýðunnar í Frakklandi
þessa dagana.