Fréttablaðið - 13.02.2005, Page 43
19SUNNUDAGUR 13. febrúar 2005
■ TÓNLIST
Hér er komið rökrétt framhald af
Meet the Parents. Það styttist í
brúðkaup Gaylords Fockers (Ben
Stiller) og Pamelu Byrnes (Blythe
Danner). Gaylord er kominn í náð-
ina hjá tengdapabbanum Jack
(Robert De Niro) og þá er bara
erfiði hlutinn eftir. Nú þarf hann
að kynna tengdaforeldra sína
fyrir sínum eigin foreldrum. Og
fyrir hrakfallabálk eins og hann
getur það engan veginn gengið
klakklaust fyrir sig, sérstaklega
þegar Fockerarnir eru alger and-
stæða hins beinstífa Jacks. Þau
eru kynóðir hippar, leiknir af
frægustu gyðingunum í Holly-
wood. Ólíkt syni þeirra sjá þau
enga ástæðu til að ganga í augun á
Jack og fyrir vikið er myndin full
af vandræðanlegum senum sem
einnig má túlka sem skot á hina
þreytandi baráttu pólitísku hreyf-
inganna tveggja í Bandaríkjun-
um, það er að segja ef maður er
einn af þeim sem oflesa einfaldar
fjölskyldugamanmyndir.
Meet the Parents var ófrum-
legur brandari sem heppnaðist
ótrúlega vel. Meet the Fockers er
framlenging á sömu hugmynd
og heppnast einnig furðuvel. Í
báðum tilvikum er góðu leikara-
vali að þakka. Enginn getur gerst
jafn vandræðanlega fyndinn og
Ben Stiller, og vil ég nota tæki-
færið og þakka honum fyrir frá-
bær afköst. Hann lék nánast í
annarri hverri gamanmynd sem
kom út á síðasta ári. Robert De
Niro gerir lítið annað þessa dag-
ana en að leika í léttum gaman-
myndum og framhaldi þeirra.
Hann stendur sig að sjálfsögðu
vel þar eins og annars staðar,
enda fæddur leikari. En það eru
samt hinir eldri Fockerar sem
eiga þessa mynd. Dustin Hoffman
er frábær sem pabbinn sem hegð-
ar sér eins og barn og leikur hlut-
verkið áreynslulaust. Hann er
reyndar alltaf sannfærandi, en
hér hefur maður á tilfinningunni
að hann sé að leika sjálfan sig.
Barbra Streisand passar fullkom-
lega í hlutverk sólbrúna kynlífs-
fræðingsins sem geymir forhúð
sonar síns í möppu. Átta ára leik-
hlé virðist hafa gert henni gott.
Titillinn er þó eiginlega það
besta við myndina. Það er eitthvað
dásamlegt við það að sjá leikarana
koma fram í Jay Leno, og komast
upp með að segja dónalegasta
orðið í enskri tungu bara vegna
þess að það er skrifað öðruvísi.
Hugleikur Dagsson
Góður titill
MEET THE FOCKERS
LEIKSTJÓRI: JAY ROACH
AÐALHLUTVERK: ROBERT DE NIRO, BEN
STILLER, DUSTIN HOFFMAN, BARBRA
STREISAND
Niðurstaða: Meet the Parents var ófrumlegur
brandari sem heppnaðist ótrúlega vel. Meet
the Fockers er framlenging á sömu hugmynd
og heppnast einnig furðuvel. Í báðum tilvikum
er góðu leikaravali að þakka.
[ KVIKMYNDIR ]
UMFJÖLLUN
SÍMI 553 2075
– bara lúxus
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 3, 5.40, 8 og 10.20
Golden
Globe
verðlaun
Annette
Bening
sem
besta
leikkona
SÝND kl. 2 & 4 ÍSL.TAL - ATH! VERÐ 500 KR.
HLAUT TVENN GOLDEN
GLOBE VERÐLAUN
7TILNEFNINGAR TILÓSKARSVERÐLAUNA
HHHH - H.J., MBL
HHHH - V.E., DV
HHHh - kvikmyndir.com
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14 ára
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14 ára Sýnd kl. 5.40 & 10.30 B.i. 14 ára
„Fullkomlega ómissandi mynd" S.V. MBL HHHHH
HHHH
Þ.Þ FBL
þ.á.m.
besta mynd,
leikstjóri
og handrit.
5Tilnefningar tilÓskars-verðlauna
Sýnd kl. 3 og 8
HHH NMJ Kvikmyndir.com
HHHHSV Mbl
HHH – MMJ kvikmyndir.com HHHH – Ó.H.T. Rás 2
Sýnd kl. 2, 4.10, 6.15, 8.15 og 10.20
tilnefningar til Óskarsverðlauna, þ.á.m.
besta mynd, leikstjóri og leikari.11
HHHH - HJ, MBL. HHHH - Ó.Ö.H. DV
HHHH - Baldur, Popptíví
HHH1/2 - Kvikmyndir.is
HHH - Ó.H.T. Rás 2
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI
FRÁBÆR SKEMMTUN
Yfirnáttúrulegur spennutryllir af bestu
gerð sem vakið hefur gríðarleg viðbrögð
og slegið rækilega í gegn í USA og víðar.
VARÚÐ: YKKUR Á EFTIR AÐ BREGÐA.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
HHH - S.V. MBL.
400 kr. miðaverð á allar myndir kl. 12
um helgar í Sambíóunum KringlunniHÁDEGISBÍÓ
Annette Bening sem besta leikkona
Stórskemmtileg mynd þar sem
Annette Bening fer á kostum
Annette Bening & Jeremy Irons
1Tilnefning til Óskarsverðlauna
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR KL. 2 – AÐEINS 400 KR.
kl. 2 ÍSL. TAL - ATH!
VERÐ 400 KR.
Frumsýnd 17. febrúar.
"Mögnuð spennumynd um baráttu
upp á líf og dauða."
HHH - kvikmyndir.is
L.S. A SER. OF UNFORTUNATE EVEN. kl. 12 & 2.15 THE INCREDIBLES kl. 12 & 2.15 ísl. tal
WALT DISNEY KYNNIR
splunkunýtt ævintýri um
Bangsímon sem þú átt
eftir að “fríla” í botn!
kl. 12, 2, 4, 5 & 6.30 m. ísl. tali kl. 4.30 m. ensku tali
Sýnd kl. 6, 8.30, og 10.40 B.i. 16 Sýnd kl. 6.30, 8.30 og 10 B.i. 14
■ ■ LEIKLIST
14.00 Leikfélagið Snúður og
Snælda frumsýna leikritið Ástandið í
Iðnó.
■ ■ SÝNINGAR
15.00 Rakel Pétursdóttir safnfræð-
ingur verður með leiðsögn um sýning-
arnar í Listasafni Íslands, bæði sýningu
Rúríar Endangered Waters og sýning-
una Íslensk myndlist 1930-1945.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
Dave Grohl, forsprakki rokksveitar-
innar Foo Fighters, telur að árið
2005 muni endurvekja trú fólks á
góðri tónlist. Grohl hefur haft í nógu
að snúast undanfarið því hann kem-
ur við sögu á þremur nýjum plötum.
Nýjasta plata Foo Fighters er
væntanleg og verður hún tvöföld,
annars vegar með hörkurokki og
hins vegar með órafmögnuðum
lögum. Einnig spilar Grohl á
trommur í laginu Bad Boyfriend á
nýjustu plötu Garbage auk þess
sem hann trommar á fyrstu plötu
Nine Inch Nails í langan tíma.
„Þetta verður frábært tónlistarár.
Ég held að fólk eigi eftir að fá
meiri trú á tónlist. Öll sú tónlist
sem ég hef heyrt sem verður gefin
út á næstunni er ótrúlega góð,“
sagði Grohl.
Plata Garbage, Bleed Like Me,
kemur út 11. apríl og plata Nine
Inch Nails, With Teeth, kemur
einnig út í vor. Plata Foo Fighters
kemur aftur á móti ekki út fyrr en
í haust. ■
DAVE GROHL Dave Grohl er forsprakki rokksveitarinnar Foo Fighters.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/Þ
.Ö
.K
.
Frábært tónlistarár
í vændum