Tíminn - 23.03.1975, Síða 5
Sumiudagur 2'.i. marz 1975.
- TÍMINN
5
4
Þeir læra að klifra
í fjöllum
Það er ýmislegt hægt að læra,
eins og sjá má á þessari mynd.
Hún er tekin hjá íþróttaklúbbi
skammt frá Munchen, þar sem
mönnum gefst tækifæri til þess
að læra að klifa fjöll. Það er
eðlilegt, að menn á þessum slóð-
um, hafi áhuga á sliku, en skiða-
iþróttin er lika einnig mikið
stunduð, en Alpafjöllin eru að-
eins i um 100 kilómetra fjar-
lægð. A hverju ári leggja um 500
manns stund á fjallaklifur, und-
ir eftirliti og leiðsögn kennara.
Kennslunni er skipt i byrjenda-
hópa og framhaldsflokka. Sex
„fjallageitur” kenna nemend-
unum, og geta þeir á nokkrum
mánuðum tekið sex stig i fjalla-
klifrinu. Þegar öllum sex stig-
unum hefur verið náð, eru þeir
tilbúnir til þess að reyna við
sjálf Alpafjöllin, og á þeim þá
ekki að vera hætta búin þótt þeir
komizt þar upp i þrjfi eða fjögur
þúsund metra hæð. „Kletta-
veggirnir”, sem mennirnir eru
að spreyta sig á hér á myndinni
eru nokkuð erfiðir viðfangs, svo
ekki sé meira sagt, en bó hefur
tveimur tekizt að komast upp
ippinn.
4
Hollendingurinn
fljúgandi
Juliana Hollandsdrottning
dvaldist i vetrarleyfi sinu i
Gstaad með dóttur sinni Mar-
griet og f jölskyldu hennar. Ekki
sást drottningin þó úti á skiðum,
þvi hún hefur aldrei verið dug-
leg við þá iþrótt. En dóttursyn-
irnir flugu yfir snjóbreiðurnar,
eins og Hollendingurinn fljúg-
andi, og þeir eru hinir mestu
skiðagarpar. Sérstaklega er
hinn sjö ára gamli Maurits tal-
inn efnilegur. Segist Juliana
drottning verða þreytt af þvi
einu að horfa á drenginn, hvað
þá ef hún færi sjálf að iðka
skiðaiþróttina. Hér á myndinni
eru Pieter og Margriet með son-
um sinum þremur, Pieter
Christiaan, þriggja ára, Bern-
hard, fimm ára, og Mauritz sjö
ára.
*
Ljósmæður eða
Ijósfeður
Ljósmæður i Þýzkalandi eru nú
mjög æstar vegna hugmyndar,
sem fram hefur komið um að
„ljósfeður” skuli I framtiðinni
taka á móti börnum, en það er
þýzka heilbrigðisráðuneytið,
sem hefur komið fram með
þessa hugmynd. Aðalástæðan,
sem konurnar bera fram gegn
þessu máli er, að karlmenn
skuli yfirleitt fá að vera við-
staddir fæðingu ungbarns. Flest
böm i Þýzkalandi fæðast nú orð-
ið á fæðingardeildum, svo það
verða ekki mörg, sem sjá dags-
ins ljós i fyrsta skipti i nærveru
ljósmæðra. 99% allra barna i
Hamborg, t.d. fæðast á fæðing-
ardeildum eða heimilum. Það
er ekki lengur algengt, að börn
fæðist i heimahúsum, og þess
vegna ætti ekki að verða mikil
barátta milli kynjanna um það,
hver fær áð táka á móti börnum
framtiðarinnar.
►
★
Nerjungri —
ný borg í Jakutíu
Gerð gefur verið áætlun um
nýja stóra borg i suðurhluta
Jakutiu, sem er sjálfstjórnar-
hérað i Austur-Siberiu. Verk-
fræðingarnir hafa lagt til að
bærinn heiti Nerjungri, en það
er nafn á fljóti i sama héraði,
þar sem fundizt hafa steinkol.
Einnig eru tilbúnar áætlanir
um orkuver, sem á að tryggja
hinum nýja bæ rafmagn og hita.
Skammt frá bænum er endastöð
Bam-Tynda-Berkatit járn-
brautarinnar, en hún er ein
grein hinnar 3200 kilómetra
löngu leið Bajkal-Amur járn-
brautarinnar, sem nú er i bygg-
ingu. Þegar sú járnbraut er
tilbúin mun úrvinnsla hinna
miklu náttúruauðæfa i Jakútiu
aukast verulega.
m m
IHfl