Tíminn - 23.03.1975, Blaðsíða 18

Tíminn - 23.03.1975, Blaðsíða 18
. 'A\ C\ ................. 18 TÍMINN Sunnudagur 23. marz 1975. M(nn 09 malefni Skattalækkunin Loðnuvertíö er senn að ljúka. Loönuskip að veiðum. Tímamynd Róbert Stefna Fram- sóknarmanna í kjaramálum Segja má, að þvi hafi verið haldið fram af hálfu Framsókn- arflokksins frá öndverðu, að drýgstu kjarabætur til handa launþegum, væru þær, sem fengj- ust, án beinnar kauphækkunar. Þessi afstaða flokksins stafar ekki af þvi, að hann sé andvigur eðlilegum kauphækkunum, enda hefur hann margsinnis átt þátt i að stuðla að þeim. Að verulegu leyti rekur þetta viðhorf flokksins rætur til samskipta hans við sam- vinnufélögin, en höfuðmark þeirra er að tryggja neytendum sem ódýrastar vörur og þjónustu og auka þannig kaupmátt laun- anna. I samræmi við þetta, hefur flokkurinn ekki aðeins unnið að þvi að styðja samvinnuhreyfing- una, heldur t.d. unnið að þvi á margvislegan hátt á sviði hús- næðismálanna, að sem flestir gætu eignazt eigin ibúðir með sem hagkvæmustum kjörum. Fyrsta sporið i' þeim efnum var stigið með byggingar- og land- námssjóði 1928, en siðan fylgdu verkamannabústaðalögin i kjöl- farið, sem voru sett með Alþýðu- flokknum, þá lögin um bygging- arsamvinnufélög og loks núver- andi húsnæðislánakerfi, en frum- drögin að þvi voru sett i tið Stein- grims Steinþórssonar sem félags- málaráðherra. Sameiginlega hef- ur þetta stuðlað að þvi, að senni- lega er það óviða, að eins margir einstaklingar eigi hlutfallslega sitt eigið húsnæði og á Islandi. Það er að þakka hinni opinberu aðstoð, sem hefur verið veitt með framangreindum lögum. Skattalækkun í stað kauphækkana Það hefur verið afstaða Fram- sóknarflokksins i sambandi við þá kjaradeilu, sem nú er á dag- skrá, að reynt yrði að finna leiðir til að bæta kjör láglaunafólks, án meiriháttar kauphækkana. Miki- ar kauphækkanir myndu auka verðbólguna, þvi að i kjölfar þeirra fylgdu óhjákvæmilega nýj- ar verðhækkanir, og jafnframt myndu þær stefna atvinnuvegun- um I hættu, þvi að þeir þola ekki auknar byrðar að ráði. Fyrir þjóðfélagið, atvinnuvegina og launþegana eru beztu kjarabæt- urnar nú fólgnar i aðgerðum, sem ekki hafa áhrif til hækkunar, hvort heldur er á kaupgjald eða verðlag. Það er i anda þessarar stefnu, að rikisstjórnin hefur ákveðið að beita sér bæði fyrir lækkun beinna og óbeinna skatta i þeim tilgangi að veita láglaunastéttun- um verulegar kjarabætur, sem draga tilsvarandi úr þörf þeirra fyrir mikla kauphækkun. Jafn- framt verður stefnt að auknum fjölskyldubótum, en i nokkru öðru formi en áður. Þrátt fyrir þessar ráðstafanir verðurað vísu nokkur kauphækkun til láglaunastétt- anna eftir sem áður óhjákvæmi- leg, en hún þarf ekki að verða eins mikil og ella. Þvi er hér tvimæla- laust stefnt i rétta átt i glimunni við hinn mikla efnahagsvanda, sem nú er fengizt við. Lækkun ríkis- útgjalda Að sjálfsögðu er ekki hægt að lækka skatta án þess að dregið verði nokkuð úr útgjöldum rikis- ins, þvi að það væri engin lausn að ætla að afla rikinu aukinna tekna Istað þeirra, sem eru felldar nið- ur. Margir óttast að þetta geti orðið til þess, að dregið verði of mikið úr opinberum framkvæmd- um eða að horfið verði að ein- hverju leyti frá byggðastefnunni. Jafnvel geti þetta orðið til þess að atvinnuleysi komi til sögunnar. Það er hins vegar eindreginn á- setningur rikisstjórnarinnar, að þetta verði hvorki til að veikja at- vinnuöryggið eða að skerða byggðastefnuna. Á móti lækkun framlaga til opinberra fram- kvæmda, verður þvi að koma að atvinnuvegunum verði séð fyrir nægjanlegu starfsfé, jafnt rekstr- arlánum sem stofnlánum, svo að þeir geti starfað af fullum þrótti, og bætt þannig það atvinnutap, sem kann að hljótast af nokkrum samdrætti opinberra fram- kvæmda. A undanförnum árum hefur oft verið rætt um það, að rfkiskerfið þendist út óeðlilega mikið og ekki væri gætt nægilegrar hagsýni og sparnaðar i starfrækslu þess. Sumt af þvi, sem hefur verið sagt um þetta, hafa verið sleggjudóm- ar, en annaö hefur átt rétt á sér. Þess vegna er ekki óeðlilegt, þeg- ar þrengir að i þjóðarbúskapnum, að rikisstjórnin fái heimild til þess að glima við þá þraut að lækka rikisútgjöldin. Þessi heim- ild er þó takmörkuð við það skil- yrði, að fjárveitinganefnd Aiþing- is fallist á niðurskurðartillögur rikisstjórnarinnar. Þannig hefur þingið tryggt rétt sinn til að fylgj- ast með og að hafa endanleg áhrif á það, sem gert verður. Kjaradeilan Þess ber að vænta, að umrætt frumvarp rfkisstjórnarinnar verði til þess að greiða fyrir lausn þeirrar kjaradeilu, sem nú stend- ur yfir. Mikil nauðsun er á þvi, að báðir aðilar sýni þar sanngirni. Atvinnurekendum má vera ljóst, að óhjákvæmilegt er að ganga nokkuð til móts við kröfur lág- launafólks. Launafólk verður á sama hátt að gera sér þess grein, að það er ekki hagur þess, að svo nálægt verði gengið greiðslugetu atvinnuveganna, að þeir stöðvist meira og minna. Verst af öllu er atvinnuleysið. Areiðanlega gerir meginþorri þjóðarinnar sér ljóst, að nú eru erfiðleikatimar, og þvi verður að gera fleira en gott þykir. Það ber að meta, þegar stjórnarvöld reyna að gera sitt bezta. Stjórn- arandstæðingar bregðast þvi miður við vandanum á þann veg, að það mætti oft næstum halda, að þeir vildu auka hann. Svo er þó vafaiaust ekki, þótt þeir láti áróð- urssjónarmiðin móta stefnu sina. Málamiðlun Ólafur Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins, gat þess i útvarpsumræðunum á fimmtu- dagskvöldið, að efnahagsmála- frumvarp rfkisstjórnarinnar væri að sumu leyti byggt á málamiði- un, eins og jafnan er um þess kon- ar frumvörp samsteypustjórna, en endurspeglar ekki algerlega þá stefnu, sem hvor flokkur fyrir sig myndi helzt kjósa, ef hann mætti einn ráða . ,,Ég bendi þó á”, sagði Ólafur Jóhannesson, ,,að i þessu frumvarpi er að finna sum þeirra atriða, er voru i' efnahags- málafrumvarpi þvi, er ég beitti mér fyrir sl. vor, en þá hlaut ekki fylgi”- 1 framhaldi af þessu, er rétt að upplýsa það, að Framsóknar- menn hefðu talið, að ýmis ákvæði gætu betur farið á annan veg. Einkum má nefna það, að þeir hefðu kosið, að annað hvort yrði tekjuskatturinn nokkru hærri á hæstu tekjum eða skyldusparnað- urinn hærri á þeim. Þetta kemur að sjálfsögðu til nánari athugunar I meðferð þingsins. Efnahagslægðin mun ganga yfir Rétt þykir að rifja upp sérstak- lega eftirfarandi kafla i ræðu Ólafs Jóhannessonar: Ég vona, að þessar aðgerðir beri tilætlaðan árangur. Við erum að sumu leyti i efnahagslegri lægð, þótt að öðru leyti séum við betur á vegi staddir en margar þjóðir, þar sem atvinnuleysi er orðið tilfinnanlegt, en hér er ekki enn hægt að tala um það. Ég er ekki i vafa um, að efnahagslægðin mun ganga yfir, enda höfum við oft átt við meiri erfiðleika að etja, þó að sveiflan sé stór frá þvi, sem bezt var. Með góðum vilja og samstilltu átaki munum við sigr- ast á þeim erfiðleikum, sem nú er við að fást. Það má þó ekki búast við of snöggum umskiptum. Það verður að geta viss meðalhófs i öllum efnahagsaðgerðum. Ann- ars getur slegið i baksegl. Annars vegar er nokkur samdráttur nauðsynlegur um sinn, og á hinn bóginn þarf að gæta þess, að hann verði ekki svo mikill, að hann leiði til atvinnuleysis eða stofni viðurkenndri byggðastefnu i nokkra tvisýnu. Þetta meðalhóf getur verið vandþrætt. Við skul- um heldur ekki gleyma þvi, sem reynslan hefur kennt okkur, að við erum mjög háðir efnahags- framvindunni i umheiminum. Og það lögmál má heldur aldrei gleymast, að þjóðfélagið i heild getur ekki til lengdar eytt meira en það aflar. Furðulegar ræður Furðulegt var að hlusta á ræðu- menn Alþýðubandalagsins I út- varpsumræðunum, þegar þeir voru að úthúða efnahagsaðgerð- um rikisstjórnarinnar. Þetta var furðulegt af þeirri ástæðu, að Al- þýðubandalagið fylgdi þeim úr- ræðum, sem núverandi rikis- stjórn hefur beitt og það deilir nú mest á, meðan það tók þátt i rikisstjórn. Núverandi rikisstjórn glimir við sömu erfiðleikana og vinstri stjórnin, að þvi breyttu að þessir erfiðleikar hafa enn magnazt, bæði af völdum erlendra verð- breytinga og grunnkaupshækkan- anna á siðastliðnum vetri. Þetta var fyrirsjáanlegt á siðastliðnu sumri, þegar rætt var um endur- reisn vinstri stjórnarinnar, og réð þar mestu um að hinir ábyrgðar^ minni forystumenn Alþýðu- bandalagsins létu það skerast úr leik. Þeir óttuðust að þvi gætu fylgt óvinsældir að glfma við vandánn. I höfuödráttum hefur núverandi rikisstjórn beitt sömu úrræðum og vinstri stjórnin gerði, eða var búin að marka, áð- ur en hún fór frá. Þess vegna var það furðulegt að heyra þá Ragnar Arnalds og Lúðvik Jósepsson eyða nær öllum ræðutima sinum til að ófrægja þá stefnu, sem þeir fylgdu i tið vinstri stjórnarinnar.' Sama stefnan Núv. stjórn hefur skert visitölu- bætur, eins og vinstri stjórnin gerði með bráðabirgðalögum á siðastliðnu vori. Hún hefur lækk- að gengið, eins og vinstri stjórnin gerði haustið 1972, og siðar með þvi að auðvelda aukið gengissig. Núv. stjórn hefur hækkað sölu- skattinn nokkuð, hækkað nokkuð bensinskattinn, og lagt verðjöfn- unargjald á raforku til þess að tryggja nægilegt fjármagn til að- kallandi framkvæmda og kjara- jöfnunar. Allar þessar skatta- hækkanir var Alþýðubandalagið búið að fallast á I tið vinstri stjórnarinnar, þótt þær næðu ekki fram að ganga sökum stöðvunar- valds þáverandi stjórnarand- stöðu i neðri deild. Þannig má rekja það, að núverandi rikis- stjórn hefur enn ekki gert neitt það i efnahagsmálunfi', sem vinstri stjórnin og flokkar hennar voru ekki búnir að framkvæma eða leggja drög að á einhvern hátt. Þvi er óhætt að fullyrða, að svo að segja allt það, sem núver- andi rikisstjórn hefur aðhafzt i efnahagsmálum til þessa, hefði verið gert, ef vinstri stjórn hefði verið áfram við völd. Það er hægt að fullyrða vegna þeirra aðgerða, sem hún var búin að framkvæma og vegna þeirrar stefnu, sem flokkar hennar voru búnir að móta i stjórnarmyndunarviðræð- unum á siðastliðnu sumri, og fylgt hefði verið, ef hinir öfga- fyllri og ábyrgðarminni leiðtogar Alþýðubandalagsins hefðu ekki komið I veg fyrir að ný vinstri stjórn kæmi til valda sökum ótta við, að nýjar efnahagsaðgerðir yrðu óvinsælar. Þrjú brotthlaup Það hefur nú gerzt þrisvar sinnum, að Alþýðubandalagið hefur skorazt undan stjórnarþátt- töku, þegar erfiðleikar hafa farið vaxandi. Raunar hét það ekki Al- þýðubandalag, heldúr Samein- ingarflokkur alþýðu — Sósialista- flokkurinn, þegar það lék þann leik i fyrsta sinn. Það stóð að ný- sköpunarstjórninni svonefndu, sem hér kom til valda 1944. Þá átti þjóðin gildari gjaldeyrissjóði en nokkru sinni fyrr og siðar. Eftir tvö ár var hann farinn i súg- inn vegna hóflausar eyðslu. Þá hljóp Alþýðubandalagið úr stjórninni. 1 annað sinn gerist þetta haustið 1958, þegar Alþýðu- bandalagið hafði tekið upp núver- andi nafn sitt. Þá hafði vinstri stjórn farið með völd i rúm tvö ár. Sumarið 1958 höfðu sjálfstæðis- menn fengið hægri krata og Moskvu-kommúnista i lið með sér til að koma fram óraunhæfri grunnkaupshækkun. Um haustið varð þvi að gera efnahagsráð- stafanir. Þá skarst Alþýðubanda- lagið úr leik og rauf stjórnina. I kjölfar þess kom 12 ára timabil viðreisnarst jórnarinnar svo- nefndu. Nú i sumar lék Alþýðubanda- lagið þennan leik i þriðja sinn. Rétt er að geta þess, að hinir á- byrgari foringjar Alþýðubanda- lagsins voru þessu andvigir og sennilega hafa þeir Lúðvik Jósepsson og Magnús Kjartans- son verið i þeim hópi. En þeir létu undan hinum ábyrgðarminni. Óbreyttir liðsmenn Alþýðubanda- lagsins voru hér ekki neitt spurðir ráða, enda hefði þá farið á aðra leið. Þ.Þ.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.