Tíminn - 23.03.1975, Blaðsíða 9

Tíminn - 23.03.1975, Blaðsíða 9
' Siinnudagur 23. m'arz 1975. TÍMINN 9 okkar heimilisdyrin okkar heimilisdýrin okkar heimilisdýrin okkar Plastbúr henta bezt Hamstrar eru nagdýr, og þess vegna verða þeir að vera i búri, sem engin hætta er á að þeir kom- ist út úr. Til skamms tima hefur mest verið um járnbúr, sem grind hefur verið yfir. Þessi búr eru að sjálfsögðu ágæt, en þau geta ryðgað, og verða þá ekki sérlega skemmtileg. Það nýjasta á þessu sviði eru plastbúr. Þau fást margvisleg, og sum eru þannig gerð, að hægt er að kaupa alls kyns viðbætur við þau, svo hamstrarnir hafi svefnherbergi, stofu leikherbergi, matstofu og salerni. Hömstrunum ku þykja sérlega skemmtilegt að skjötast um i þessum búrum, og kunna vel að meta herbergin sin mörgu og góðu. Mjög nauðsynlegt er að búri hamstranna sé haldið mjög vel hreinu. Þeir þola heldur engan raka eða trekk, svo gæta verður þess að hvort tveggja þetta sé eins og vera ber. Á botninn i búr- inu setja margir kattasand, sem kemur i veg fyrir að slæm lykt komi af búrinu og ibúa þess. Sið- an er sag sett ofan á. Hamstrarn- ir búa sér til hreiur i einu horn- inu, og mjög gott er að láta þá fá sérstaka „hamstraull” úr gervi- efni, sem fæst i dýraverzlunum, til þess að búa hreiðrið til úr. Bómull hentar ekki til sliks, þótt margir noti hana. Sé hamstrabúrið af venjulegri gerð, þ.e. kassi eða járnbúr, þá þarf það að vera 50x25 cm stórt oghæðin. ca. 20 til 25 cm. Hægt er að komast af með kassa fyrir hamsturinn, en þá verða hliðarn- ar að vera rennisléttar, þvi hamsturinn getur auðveldlega klifrað upp þær, ef hann getur krækt klónum einhvers staðar i ójöfnur. Svo verður að hafa net yfir búrinu, svo hann komist ekki út úr þvi, þótt hann gæti komizt upp eftir hliðunum. Hamsturinn er alæta í búrinu verða svo að vera matarilát og drykkjarvatn. Búrið og matarilátin verða alltaf að vera hrein til þess að dýrinu geti liðið sem bezt. Ekki er nauðsyn- legt að hafa mjög heitt i herberg- inu, þar sem hamsturinn er hafð- ur. Honum liður hvað bezt i 20 stiga hita. Hamsturinn er alæta, en græn- meti er þó hans aðalfæðutegund, og það sem ráðlegast er að gefa honum. Bezt fellur honum við blöndu sólblómafræa, hafra og mais, sem fæst i verzlunum, hon- um ætluð. Sumir hamstrar borða hnetur, en þó alls ekki all- ir. Þurrt brauð má gefa hamstrinum, og sagt er að venja megi hann á að borða hundakex. t bakgrunni þessarar myndar má sjá eina tegundina af hamstrabúrunum, sem búin eru til úr plasti. Sumir segja, að hamsturinn hafi gott af að fá eins og eina teskeið af hökkuðu kjöti á viku, en aðrir telja, að með þvi að venja hann á kjöt, geti hann átt til að éta sin eigin afkvæmi, þegar þau koma til sögunnar. Grænmetið er mjög þýðingar- mikil fæðutegund fyrir hamstur- inn. Hvitkál, gulrætur, blómkáls- blöð, spinat, og sallatblöð, eru æskileg, en þar sem erfitt getur verið að afla þessara fæðuteg- unda á veturna má gefa hamstrinum i staðinn epli, perur eða banan. A sumrin ætti ei að þurfa að gefa hömstrunum vita- min aukalega, en það er til sér- stakt vitamin, þeim ætlað, og nefnist það orovit. Vitamininu er stráð yfir matinn þeirra. Hamstrar drekka vatn, þótt þeir þurfi ekki mikið af þvi, sér i lagi ekki, ef þeir fá nægil. mikið af safariku grænmeti. En alla vega verður að gefa þeim ein- hverja vökvun, eins og öllum öðrum dýrum. Skinnið verður lika sérstaklega fallegt ef þeim er gefið ofurlitið af mjólk annað slagið. Ein teskeið af mjólk einu sinni á dag er ákaflega góð, ekki sizt fyrir kvendýr með unga. Gæt- ið þess vel, að mjólkin súrni ekki i drykkjarskálinni, þvi að hún gæti þá haft mjög skaðleg áhrif á dýr- ið. Hömstrum fjölgar ört Meðgöngutimi hamstra er 16 dagar. Auðveldlega má sjá, hvort kvendýrið sé ungafullt á þvi að búkurinn þykknar og breikkar. Venjulega fæðast 7-8 ungar, en i sumum tilfellum allt upp i 12 i einu. 1 fyrsta skipti þegar kvendýrið elur unga sina eru þeir ekki fleiri en 4-5. Oft má búast við að eitthvað af ungunum drepist, ekki sizt ef þeir eru mjög margir, enda hefur kvendýrið ekki nema 8 spena, og þá getur eitthvert af- kvæmið orðið út undan, ef þau eru mörg samtimis. Ungarnir eru Þetta er nýjasta tegund af hamstrabúrum, og eins og sjá má á teikningunum, er hægt að setja þau saman á margvislegan hátt. Tveir naggrisir gæða sér á fóðurköggium, sem þeim eru sérstaklega ætiaðir. (Timamyndir Gunnar)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.