Tíminn - 23.03.1975, Blaðsíða 30

Tíminn - 23.03.1975, Blaðsíða 30
30 TfMíftN Sunnudagur 23. marz 1975. kynnir: Tækjakost stúdíósins H1 jóðblöndunar borð: Toreseen 16rásir inn, 8 rásir út. Segulbandstæki: Scully 8 rásir, Scully 2 rásir (master tape) Magnarar: H/H Hátalarar: J. B. Lancing, studio monitor 4320 Bergmálstæki: E.M.T. 140, Revox tape echo Plötuspilarar: E.M.T. Quasi Mixer: Þa< » 1 lefu r enqinn fært ok :kur þel ta á s ilfurfati FYRSTA OG EINA ALVÖRUSTÚDÍÓiÐ Á ÍSLANDI Böövar Guömundsson heitir maöurinn sem hér sézt á myndinni, en hann er einn af eigendum fyrirtækisins. — Tlmamynd: Gunnar Gunnar og Dóri heita þessir félagar, sem hér sjást á myndinni, en þeir hafa nýlega sent frá sér tveggja laga plötu meö lögunum „Lucky Man” og ,,1’m just a Boy”. Gunnar og Dóri eru ættaöir úr Hafnarfiröi og hafa leikiö saman um alllangt skeiö, en sá fyrr- nefndi var eitt sinn í trióinu Trlólu. Plata þeirra félaga var tekin upp I H.B. „Stúdlói”, og sá Magnús Kjartansson um hljóöstjórn, en félagar hans I Júdasi önnuðust undirleikinn. Allan Heath Grapic Euqalisers: Flygill: Busendorf Það er allt kallað stúdió — Við höfum mætt skilningi hjá ráðamönnum þjóðarinnar, en litlum skilningi hjá öðrum ónafngreindum aðilum, sem við höfum þurft að leita til. — Fram til þessa hafa hinir og þessir sett upp segulbönd, hljóð- blöndunartæki og nokkur önnur tæki, og kallað það stúdió. Það er allt kallað stúdió, — og þetta nafn er fyrir löngu búið að missa sina raunverulegu merk- ingu, þvi svo virðist sem eina viðmiðunin sé sú, að tækin geti tekið upp hljóð. — Eitt sinn þurftum við að leita til bankastjóra og bárum að sjálfsögðu upp erindi okkar. — Hvað? Stúdió? Eru ekki allir að koma sér upp stúdióum? sagði maðurinn. Ekki eins og að kaupa notuð heimilistæki Nú-timinn hafði heyrt talsvert um þetta stúdió, áður en honum var hleypt inn um dyrnar hjá sjálfu fyrirtækinu. Og sannast sagna hafði Nú-timinn alls ekki gert sér i hugarlund, að stúdió þeirra fjórmenninga væri jafn vandað og raun bar vitni. Eða eins og samfylgdarmaður Nú- timans sagði: Ég hafði gert mér háleitar vonir, — en þetta er miklu, miklu meira en ég bjóst nokkru sinni við. Húsnæði stúdóisins er 200 fermetrar, — stúdiósalurinn er 80 fermetrar og hljóðstjórnun- arklefinn 40 fermetrar, en auk þess er skrifstofa og rúmgóð setustofa. — Stúdíóið er fyllilega sam- bærilegt, hvað frágang og húsakynni varðar, við öll 8-rása stúdió i heiminum, öll 16-rása stúdió — og raunar öll hljóð- stúdió, sem til eru. — Ég las nýlega i skólablaði viðtöl við tvo kunna listamenn, og spurningarnar sem fyrir þá voru lagðar, voru nákvæmlega eins. Hvern- ig hófst þú þinn feril? Hvað er skemmtileg- ast...— Fyrsta spurningin hjá ykkur verður sennilega eitthvað á þessa leið: Hver var að- dragandinn að stofnun stúdiósins? Ekki satt? —Ég held það sé ráð, að þú spyrjir, Sigurjón, —ég skrifa og Jónas, Jón Þór og Böðvar svara. Það gæti verið ágætis verkaskipting. Ekki kunni Nú-tlminn svar við þvi. — Það þarf að velja rétta augnablikið og réttu mennina með sér, til þess að svona fyrir- tæki verði að veruleika. Það hefur oft verið talað um að stofna stúdió, en þegar á hólm- inn hefur verið komið, — hafa ákveðnir, ónafngreindir aðilar runnið á rassinn með allt sam- an. 1 haust hafði ég spurnir af þvi, að Roger Arnhoff (stærsti og virtasti aðili norska stúdió- bransans) ætlaði að selja 8-rása tæki sin, og þá fékk ég Böðvar Guðmundsson með mér til þess að freista þess að láta drauminn verða að veruleika. Siðar bætt- ist Jónas R. Jónsson i hópinn, og fyrir stuttu kom Sigurjón Sig- hvatsson. Þessa fjóra heiðursmenn þarf Nú-tlminn vart að kynna fyrir lesendum sinum, en þess má þó geta, að bæði Jón Þór og Böðvar hafa um alllangt skeið unnið að hljóðupptökum og hljóðstjórn hjá sjónvarpinu, auk þess sem þeir hafa dvalið erlendis til þess að kynna sér ýmislegt varðandi þessi mál. — Ég og Jónas R. fórum svo út og sömdum við Roger um kaup á tækjunum, og sfðan hefur þetta verið vinna og aftur vinna, — og eltingarleikur við timann, segir Jón Þór. Oft talað um stofnun stúdiós Nú-timinn er staddur að Trönuhrauni 6 i Hafnarfirði, i nýju og glæsilegu hljóðstúdiói þeirra Jóns Þórs Hannessonar, Jónasar R. Jónssonar, Böðvars Guðmundssonar og Sigurjóns Sighvatssonar. Það var Sigurjón, sem átti upphafsorð þessarar greinar, og var spjótunum beint gegn Nú- Timanum, og raunar blaða- mannastéttinni iheild. En þetta voru gamanmál hjá Jonria i Brimkló, og við báðum hann þvi um að orða spurningarnar fyrir okkur. — Hvernig ætti að vera hægt að segja i örfáum orðum, það sem hefur verið að brjótast i manni i 10 ár? spyr Jón Þór. — Það hefur verið sagt, að 8- rása stúdió séu ekki nægilega góð, — það þurfi 16-rása stúdió. 1 þessu sambandi má nefna, að Sgt. Pepper plata Bitlanna var tekin upp i 4-rása stúdiói. Við eigum auðvelt með áð fjölga rásunum upp I tólf, og við höfum komið i 8-rása stúdió erlendis, sem eru ekki nema 8-rása stúdió að nafninu til, þvi öll aðstaða og frágangur hefur verið afar lé- legur. Frá okkar sjónarmiði hefur aðstaða i stúdói og frá- gangur þess afar mikið að segja, og við höfum þvi lagt mikla áherzluá að vanda til þess. — Hér höfum við öll nauösyn- leg tæki, sem krefjast góðrar hljóðupptöku, og áður en við settum tækin hér upp, voru þau öll yfirfarin, og það sem ekki var i fullkomnu lagi, var lag- fært. Að kaupa svona tæki notuð, er ekki eins og að kaupa notuð heimilistæki — þvi þessi tæki eru gerð með það i huga, að þau endist von úr viti. ,,tslandsstúdió” — Það virðast margir álita, að stúdió sé spurning um takka- fjölda, — þvi fleiri takkar, þvi betra stúdió. Þetta er eins og hér áður fyrr, þegar allir álitu að wattafjöldi i mögnurum hefði allt að segja um gæði tækisins. Það sem skiptir auðvitað höfuð- máli er að fyrir hendi séu menn, sem kunna á tækin og geta nýtt þau eins og kostur er. Sá maður, sem á ekki hvað minnstan þátt i þvi, að þetta stúdió er orðið að veruleika, er Roger Arnhoff. Hann hafði strax mikinn áhuga á „Islands- stúdióinu”, eins og hann kallaði það, og án hans góðvildar og fyrirgreiðslu hefði það kannski aldrei orðið að veruleika. Hann veitti okkur gjaldfrest, og hjá fyrirtæki hans standa okkur allar dyr opnar. Það er ekki svo litils virði að hafa jafn ágætan mann með i ráðum og Roger Arnhoff er.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.