Tíminn - 23.03.1975, Blaðsíða 10

Tíminn - 23.03.1975, Blaðsíða 10
TÍMIN’N Sunnudagur 23. marz 1975.' 10 I rr blindir og hárlausir við fæðingu, og opna ekki augun fyrr en eftir 16 daga. Tennurnar þroskast aftur á móti mjög fljótt, og ungarnir geta farið að éta sjálfir mat, sem þeir finna i búrinu eftir 10. dag. Þeg- ar þeir eru orðnir þetta gamlir ,er ágætt að strá hafragrjónum á botn búrsins, og þá nærast þeir gjarnan á þeim. Annars þroskast ungarnir mjög fljótt, og það verð- ur að taka þá frá móðurinni ekki siðar en 21-24 dögum eftir fæðing- una. Ekki má hreyfa við hreiðrinu fyrstu 10 dagana eftir að ungarnir fæðast. Strax og þeir eru farnir úr þvi er þó rétt að hreinsa búrið vel. Hamstrar verða venjulega ekki miklu eldri en tveggja ára. Kvendýrin geta tekið upp á þvi að drepa unga sina og stafar það af ýmsu. Til dæmis má nefna, að þau drepa ungana af hreinum ótuktarskap, af þvi að þau eru hungruð, og fá ekki nægilegt fóður, og þriðja ástæðan getur verið hræðsla eða taugaveiklun. Ekki er talið ráðlegt að hamstrarnir gangi lausir i ibúð- um. Margar hættur eru þá á leið þeirra. Hvað eftir annað hafa hamstrar komizt upp undir elda- vélar og önnur rafmagnstæki og komizt þar i snertingu við- raf- magn, sem hefur að sjálfsögðu leitt þá til dauða. Sumum hefur lika orðið á að stiga ofan á hamst- urinn sinn, og enginn vildi vist verða fyrir sliku óhappi að óþörfu Þá má lika geta þess, að hamstrarnir leggjast á húsgögn og fatnað, og sömuleiðis gólftepp- in og naga allt i sundur, sem fyrir þeim verður. Grein til að naga Hamstrar safna matnum sam- an i poka, sem eru utan á hálsi þeirra. Þeir setja matinn i poka og bera hann svo út i hornið á búr- inu, þar sem þeir hafa aðsetur sitt. Þar ýta þeir matnum upp aftur, og geyma hann. Fái þeir nægilegt fæði, og séu þeir einir i búri, gera þeir þetta þó ekki allt- af, þvi hér er i rauninni um sjálfs- bjargarviðleitni að ræða. Þeir eru að safna saman mat fyrir framtiðina. Eitt er nauðsynl. að hafa i búr- inu hjá hamstrinum, en það er trjágrein, eða viðarbútur, sem hann getur dundað sér við að naga. Hamsturinn er nagdýr, og hann þarf að fá að nota tennurnar annars geta þær þroskazt um of, og þá getur verið hætta á að hann biti illa, ef hann verður hræddur við eiganda sinn, eða einhvern annan, sem ætlar að handfjatla hann. Það er ágætt að ná sér i smátrjágrein úti i garði, og leyfa dýrinu að naga hana. Litið er hægt um sjúkdóma að segja hjá hömstrum. Þeir deyja venjulega, ef þeir eru orðnir tveggja ára, þar sem lifstimi þeirra er ekki lengri, og þar sem þeireru ekki dýrari en áður hefur verið nefnt, er sennilega bezt frá mannúðarsjónarmiðiséð að aflifa dýrið, ef það veikist fremur en að vera að reyna að lækna það, og láta það þá kannski kveljast leng- ur en nauðsynlegt er. i Marsvín eða naggrísir Naggrisir eru halalausir, hafa fjórar tær á framfótunum og 3 á afturfótunum. Eyrun eru stutt. Fullvaxin dýr geta verið frá 600 til 800 grömm að þyngd og 24 til 30 cm. á lengd. Venjulegast eru karldýrin stærri en kvendýrin. Villtir naggrisir eru venjulega rauðbrúnir að lit, en ljósari að neðan. Tamdir naggrisir eru til i fjöldamörgum litbrigðum, og eru flekkóttir naggrisir venjulegast- ir. Hárið er á venjulegustu tegund- inni slétt og fremur stutt, en svo eru til naggrisir með stutt hrokkið hár og einnig angóranaggrisir. Búrið og umhverfið Það er mjög auðvelt að koma naggrisunum fyrir, þvi að þeir gera ekki miklar kröfur til um- hverfisins. Þeir klifra ekki, svo ekkert er á móti þvi, að hafa þá i sæmilega stórum kassa. Það verður samt að gæta þess að hvorki sé trekkur né raki, þar sem naggrisinn er hafður, og heldur ekki gólfkuldi. Hitastigið þarf ekki að fara yfir 20 stig. Marsvin eru tæpast stofudýr, þótt sumir hafi þau eflaust inni á heimilinum sinum. Hæfileg búrstærð fyrir naggris er 75x75 sm botnflötur, og hæðin þarf að vera um 50 cm. 1 þessu búri er rými fyrir karldýr og kvendýr. Naggrisirnir eru ekki nærri þvi eins hreinlegir og hamstrar, og þess vegna þarf að gæta þess betur, að búrin þeirra séu alltaf þurr og hrein, annars fer að koma af þeim vond lykt. Mataræðið Naggrisir borða nokkurn veg- inn það sama og kaninur. Þeir eru hrifnastir af heyi, en rétt er að gæta þess, að heyið sé vel þurrt og ekki mikið ryk i þvi, þar sem það getur farið illa i dýrin. Einnig telja sumir, að dýrunum falli ekki vel sterkt hey, þ.e.a.s. hey, sem ræktað hefur verið i miklum áburði. Auk heysins eru þurrt brauð og grænmeti ágætis fæða, en svo má bæta matinn með svo sem einni teskeið af möluðum höfrum á dag. 1 dýraverzlunum fást sérstakir fóðurkögglar, sem eru ætlaðir naggrisum, og inni- halda þeir þau efni og þann mat, sem dýrin þarfnast helzt og i réttu hlutfalli. Naggrisir verða að fá vatn, og gæta verður þess að það sé alltaf nýtt og ferskt. Þeim kemur vel, ekki siður en hömstrunum að fá ofurlitið af mjólk á hverjum degi, og fá þeir af þvi fallegri feld en ella. Naggrisirnir eru ekki nætur- dýr, eins og hamstrarnir, og þess vegna er bezt að gefa þeim mat að morgninum. Þeir þurfa lika að borða oftar en hamstrar, vegna þess að þeir borða litið i einu en þessi stað oftá dag. Ef skipter um fæðu til dæmis að vorlagi úr þurrfóðri i nýtt fóður er rétt að gera það ekki snöggl., þvi það getur haft slæm áhrif á dýrin. Bezt er að skipta um smátt og smátt með þvi að auka skammt- inn af nýja fóðrinu um leið og hitt er minnkað. Vitaminið Orovit hentar jafnt fyrir naggrisi sem hamstra. Ungarnir eru mjög sjálf- bjarga Meðgöngutimi naggrisanna er 62 til 72 dagar. Ef ungarnir eru margir er meðgöngutiminn styttri, en séu ungarnir t.d. einn eða tveir. Ungarnir geta verið frá einum upp i 6. Venjulegast er þó, að þeir séu 2-3. Séu ungarnir m jög margir er mikil hætta á, að þeir séu illa þroskaðir eða fæðist and- vana. Naggrisir hafa aðeins tvo spena, svo erfitt er fyrir marga unga að fá nægilega næringu frá móðurinni fyrst i stað. Þegar ungarnir fæðast eru þeir yfirleitt vel þroskaðir og búnir að fá hár, og augu þeirra eru opin. Tennurnar eru lika vel þroskað- ar, svo þeir geta strax i upphafi farið að éta, hvað sem er. Nýfæddir eru ungarnir 50-60 grömm að þyngd. Þetta er þó nokkuð misjafnt eftir þvi, hversu margir ungarnir eru hverju sinni. Hæfilegt er að taka ungana frá mæðrum sinum, þegar þeir eru orðnir þriggja vikna gamlir. Járnbúr meö hreiðurkassa, mjög hentugt fyrir hamstra, en má einnig nota fyrir hvltar mýs.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.