Tíminn - 23.03.1975, Blaðsíða 12

Tíminn - 23.03.1975, Blaðsíða 12
12 TÍMINN Sunnudagur 23. marz 1975. Tóbaksponta séra Sæmundar Hólm. Afburöa fallegur gripur. hann dýrgripum safnanna og hvernig þeir vörpuöu ljósi á menningu þjóöanna. Um þessar mundir voru islenzkir forngripir mjög i hættu. Margir voru sendir úr landi og aðrir voru eyöilagðir innanlands vegna þess, að fáir sáu gildi þeirra né höfðu ánægju af fegurð Hstgripa. Þeir, sem skildu gildi þeirra, sáu oft ekki önnur ráð þeim til varðveizlu en að senda þá til Danmerkur, á Þjóðminjasafnið þar, en þá var Island aðeins hluti af hinu danska riki, og því var þessi hugsun ekki óeðlileg. Sigurði var ljóst, hve rúið land- iö var að verða af forngripum og listgripum og þvi skar hann upp herör og beitti sér fyrir stofnun innlends forngripasafns. Hann birti i Þjóðólfi 24. april 1862 greinina „Hugvekja til íslendinga”, þar sem hann hvetur til stofnunar þjóðlegs forngripa- safns. Þar með var Isinn brotinn. Arangurs af baráttu hans var ekki lengi að biða. Sr. Helgi Sigurðsson á Jörva, sem var einnig mikill áhugamaður um vemdun forngripa, sendi landinu að gjöf nokkra valda og dýrmæta gripi, sem visi að forngripasafni, og þökkuðu stiftsyfirvöldin hon- um gjöfina með bréfi dags. 24. febrúar 1863. Frá þeim degi telst safnið stofnað. Þótt Jóni bókaverði Árnasyni væri falið að annast safnið meðfram sinu starfi varð þó reyndin sú, að Sigurður málari tók það algerlega að sér. Allt til dauðadags var hann lifið og sálin i safninu, helgaði þvi starfskrafta sina og annaðist eins og helgi- dóm. En Sigurður var ekki aðeins safnmaðurinn, sem reynir að draga hluti til safnsins og efla það að fjölda gripa og koma þvi til mikils vaxtar. Hann var ekki siöur visindamaðurinn, sem reynir jafnframt að krefja hvern hlut sagna, grandskoða hann og láta hann skýra frá öllu þvi, sem hann getur tjáð um menningu liöinna kynslóða. Þetta er það, sem setur megineinkennið á safn- störf Sigurðar, og til vitnis eru hinar afar merku skrár, sem hann samdi um safnið og annaðist útgáfu á, svo og ritgerðir hans menningarsögulegs efnis, sem hann samdi sumar hverjar að verulegu leyti með hliðsjón af safngripum. Nokkrar þeirra eru prentaðar, en aðrar liggja óprentaðar. Sigurður var hinn gerhuguli visindamaður Hann var fjöl- fróöur og viðlesinn, svo sem tilvitnanir hans i erlend rit sýna. Eftirmyndir hans af lýsingum miðaldahandrita sýna einnig, Framhald á bls. 31. Mynd þessa af Gfsla fræðimanni KonráOssyni svarf Siguröur með þjalaroddi I blágrýtisstein. Þá hefur Sigurður verið kornungur, þvi að myndina gerði hann áður en hann hélt utan til Kaupmanna- hafnar til náms, en utan hélt hann sextán ára gamali 1849. Sagt er, að Siguröur hafi gert sams konar mynd af Nielsi skálda, en sú mynd er nú týnd og tröllum gefin. Otskorin fjöl af Ströndum. Furöuverurnar á fjölinni eru llkast til ættaöar úr einhverjum sögnum, sem nú eru ókunnar. Fjölin hefur verið i kirkju. — Timamyndir Róbert. Róðukross úr Draflastaðakirkju i Fnjóskadal, ættaður frá Limoges i Frakklandi, en þar voru smiöað- ir forkunnarfagrir smeltir kross- ar. Þessi var smlðaður um 1200, eða á þrettándu öldinni önd- veröri. Upphaflega voru steinar i grópunum, en þeir hafa verið fjarlægðir og eru nú ekki eftir nema steinarnir i augum Krists. Krossinn er þvi ekki nema svipur hjá sjón. ógrynni af kaþólskum kirkjumunuin hefur þó fengið enn verri útreiö og verið eyðilagðir ineð öllu. En þótt Sigurður væri einn bezti listamaður þjóðarinnar á 19. öidinni fór þó svo innan tiðar, að hann lagði teikningu og málaralist að mestu á hilluna, en nú höfðu önnur áhugamál tekiö við, söfnun og varðveizla forn- minja, barátta fyrir endurnýjun kvenbúningsins, leikstarfsemi, skipulag bæjarins og rannsóknir á ýmsum þáttum I menningar- sögu Islendinga. Málaralistin varð að þoka. Liklegt má telja, að kynni Sig- urðar af söfnum I Danmörku á námsárunum hafi opnað augu hans fyrir gildi menningarsögu- legra verðmæta. Þar kynntist p jO ' Y"'u '1 f Sýning á gripum mm úr Þjóðminjasafni (slands frá árum Sigurðar Guðmundssonar %ið safnið, 1863-1874 jóðminjasafni Islands, sal l5.-30.mar*19 ___WkMM itffc' f wr Siöastliðið haust voru 100 ár liöin frá andláti Sigurðar Guðmundssonar málara, sem venjan er að nefna frumkvööui að stofnun Þjóðminjasafnsins, en hann lézt 7. sept. 1874, aö- cins 41 árs að aldri. Þá voru ellefu ár liðin frá stofnun safnsins og hafði hann annazt það frá upphafi, þótt Jón Arnason væri i orði kveðnu forstööumaður þess jafnframtþvl að vera bókavöröur við Stiftsbókasafnið. Sigurður Guömundsson fæddist að Hellulandi I Skagafirði9. marz 1833. Snemma kom i ljós aö hann var óvenju listfengur, og gerði hann á unga aldri teikningar af ýmsum þekktum mönnum og svarf jafnvel mannamyndipistein með þjalaroddi. Varð þessi frá- bæri hagleikur hans til þess að ættingjar hans studdu hann til náms I Listaháskólanum i Kaupmannahöfn, en þangað sigldi hann haustið 1849. Sigurður kom heim að loknu námi 1858, og frá námsárum hans og fyrstu árum eftir heimkomuna eru til eftir hann margar teikningar og málverk af ýmsum þekktum íslendingum, og að auki nokkur málverk og altaristöflur, sem hann málaði sér til lifsviður- væris eftir altaristöflunni i Rey kj a vikurdóm kirk ju.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.