Tíminn - 23.03.1975, Síða 27

Tíminn - 23.03.1975, Síða 27
Sunnudagur 23. marz 1975. TÍMINN 27 Noröurlandamóti i tugþraut og fimmtarþraut kvenna i Finnlandi, svo og þátttaka i Evrópumóti unglinga i Grikklandi og Evrópubikar- keppni i fjölþrautum i Barcelona á Spáni. Auk þess var leitaö fyrir sér um að fá erlendar stjörnur á R ey k j a v ikur le ika n a, sem áformað er að halda I fjórða sinn i sumar. Ótalin eru svo hin fjölmörgu mót með innlendri þátttöku. Þá var ákveðið á ársþingi á Akureyri i haust að stuðla að aukinni útbreiðslu út á landsbyggðinni, og nú er t.d. verið að senda út dreifibréf i þvi sambandi og bjóða félögum að- stoð. Svo er ákveðið að landsliðs- menn fari i hringferð um landið og keppi á ýmsum stöðum. Nú hlýtur einhver að spyrja, hvað kostar þetta allt, hvernig farið þið að koma þessu öllu i verk, enda erum við loks komin að kjarna málsins. A siðasta starfsári nam kostnaður af rekstri samb. tæpum þrem- ur milljónum króna, og beinn styrkur frá þvi opinbera var 450 þúsund krónur. Aðgangseyrir vegna móta var um 200 þúsund krónur. Rúmlega tvær milljónir króna öfiuðust með ýmsu móti og með aðstoð góðra manna. Ef hægt verður að framkvæma allt, sem ákveðið var á siöasta ársþingi verður rekstrarkostnaður FRl á þessu ári, a.m.k. 4 milljónir króna og áætlaðir styrkir eru 600 þúsund krónur. Frá siðustu ára- mótum hefur stjórn sambandsins reynt ýmsar undirbúningsleiðir i fjáröflun og nýlega var skipuð sérstök fjáröflunarnefnd, sem i eru örn Eiðsson, formaður sam- bandsins, Svavar Markússon, gjaldkeri og Þorvaldur Jónasson, fundarritari. í stuttu máli sagt, árangur fjáröflunar hefur verið sáralitill og á FRÍ þó marga velunnara, sem stutt hafa sam- bandið dyggilega undanfarin ár. Kunnum við þeim mönnum beztu þakkir fyrir. Sem dæmi um neikvæðar undirtektir má nefna synjun norræna menningarmála- sjóðsins á styrk vegna Kalott - keppninnar. Sjóðurinn styrkti þessa keppni smávægilega i fyrra. Einnig hefur verið sagt upp auglýsingu á númer keppnisfólks. Sumum kann að þykja okkar erfiðleikar i „spriklinu”, eins og sumir segja hégómalegir saman borið við aðra erfiðleika i þjóðfélaginu, en við, sem leggjum fram mikla vinnu I fristundum okkar, hver fyrir sina iþrótt, erum ekki öll á sama máli. Likamsrækt og keppnisiþróttir eru snar þáttur i öllum menningarþjóðfélögum og ómiss- andi öllu æskufólki. Allar þjóðir leggja mikið upp úr þvf að eiga á að skipa afreksfólki, sem vekur aðdáun og hrifningu. Dag einn barst stjórn FRt til boð frá fyrirtæki hér i bæ, er áður hafði stutt okkur með fjár- framlögum. Þetta tilboð átti eftir að valda okkur miklum vanda. Rolf Johansen & Co bauð okkur eftirfarandi I nafni R.J. Reynolds Tobacco Company: Fyrir hvern tóman Winston vindlingapakka sem FRt skilar fyrirtækinu á timabilinu 15. marz til 15. júni fær sambandið 3 krónur. Hér var vissulega mikil fjárvon á ferð, en sæmir það mönnum, sem vinna að iþróttamálum að þiggja slikt? FRt eins og önnur samtök iþróttafólks vinnur gegn tóbaks- og áfengisnautn. Stjórnin leggur mikla áherzlu á reglusemi og okkur er ánægja að skýra frá þvi, að slíkt er auðvelt innan raða frjálsiþróttafólks, þar sein neyzla tóbaks og áfengis er hrein undan- tekning. Málið var rætt á mörg- um fundum og upp kom staðan, ef við þiggjum þetta tilboð og vel tekst til, er vissulega hægt að koma mörgu i verk en á móti kemur ef við höfnum tilboðinu verðum við einfaldlega að draga saman seglin. Slikt er erfitt, þegar höfð er i huga sú uppbygging, sem unniö hefur verið að sl. ár, og byrjuð var að bera ávöxt. Við gerðum okkur grein fyrir þvl, að menn yrðu ekki á eitt sáttir, ef tilboðinu yrði tekið, enda engum i stjórninni ljúft. Loks var málið þó tekið til endanlegrar afgreiðslu, og samykkt af öllum í aðalstjórn, en fyrsti varamaður, sem situr stjórnarfundi gat ekki sætt sig við þá niðurstöðu, og sagði af sér. Það þótti okkur leitt, en virðum og skiljum hans afstöðu. Það fór eins og okkur grunaði, að ýmsir urðu vonsviknir, er söfnunarherferðin hófst, og margir hafa látið stór orð falla i okkar garð. Við skiljum það vel, að menn séu okkur ósammála, þetta var erfið ákvörðun, og við vorum lengi i vafa, hvað gera skyldi. Sumt af þvi, sem um okkur, er skipum stjórn FRt, hef- ur verið sagt og skrifað undan- farna daga ber ofstækisblæ og er viðkomandi ekki til sóma. Einnig hafa verið dregnar fram nei- kvæðari hliðar þessarar fjár- öflunar i fjölmiðlum og hjá öðrum aðiluin. Þetta greinarkorn er alls ekki nein afsökun heidur skýring á erfiðleikum þeirra, sem að iþróttamálum starfa á íslandi i dag. Með þökk fyrir birtinguna. örn Eiðsson, formaður, Sigurður Björnsson, varaformaður, Svavar Markússon, gjaldkeri, Þorvaldur Jónasson, fundar- ritari, Páll ól. Pálsson, ritari Sigurður Helgason, form. út- breiðslunefndar Magnús Jakobs- son, formaður laganefndar.” í MIJNIÐ ibúðarhappdrætti H.S.i. 2ja herb. íbúð að verðmæti kr. 3.500.000.- Verð miða kr. 250. Auglýsið Tímanum Nýkomnar Einnig Felgur á Fíat Jyrir, 850-127-128-125-132 LadQ G. S. varahlutir Ármúla 24 - Reykjavik - Slmi 365101 Leikmenn Helsingör: Tóku Islands- ferð fram yfir Spónarferð Jörgen Petersen „íslandsbani" og félagar hans úr Helsingör taka þátt í 4ra liða keppni, ásamt Víking FH og Haukum, hér um páskana JÖRGEN PETERSEN og félagar hans úr danska 1. deildarliðinu Helsingör, eru væntanlegir til lands- ins um páskana og taka þátt i f jögurra liða keppni, sem fer fram í Laugar- dalshöllinni og íþróttahús- inu í Hafnarfirði. Ásamt Helsingör taka nýbakaðir íslandsmeistarar Víkings, Evrópulið FH og gestgjaf- arnir Haukar, þátt í keppn- inni. Helsingör-liðið, sem hef ur verið um 30 ára skeið i hópi beztu liða Dana og ávallt leikið i 1. deild, kem- ur frá borginni Helsingör við Eyrarsund. Margir þekktir og snjallir leik- menn leika með liðinu og má þar fyrstan nefna Jörgen Petersen, —--- .'255 FLEMMING LAURITZEN . . . hinn snjalli markvörður Helsing- ör, leikur með danska landsliðinu i Laugardalshöllinni i kvöld. „Islandsbanann”, sem við köllum en hann var eitt sinn talinn bezti handknattleiksmaður heims. Þá leika hinir snjöllu landsliðsmenn Thor Munkager og Flemming Lauritzen, markvörður, með lið- inu. Meðal annarra leikmanna, sem koma hingað með Helsingör- liðinu, er vinstri handar skyttan Irving Larsen.sem er einn aðal- markaskorari liðsins og vakti mikla athygli með danska HM- liðinu i A-Þýzkalandi, en i HM- keppninni var honum likt við hinn snjalla Rúmena — Gruia. Fyrir- liðinn Johnny Bersntsen, er gamalreyndur leikmaður með landsliðinu og þá má nefna ung- lingalandsliðsmanninn Ilans Pedersen, sem er vinstrihandar- maður og maður framtiðarinnar i Danmörku. Helsingör-liðið hefur farið margar keppnisferðir um Evrópu og var talsvert skrifað um Is- landsferð liðsins i dönskum blöð- um fyrir stuttu, en þá tóku leik- menn liðsins Islandsferðina fram yfir Spánarferð og vakti það nokkra athygli á þeim timum, sem allir vilja fara til sólar- landanna. Þá má geta þess, að liðið er tal- ið það allra skemmtilegasta i dönskum handknattleik, og sést það bezt á þvi, að um 2 þús. áhorfendur koma að jafnaði á leiki liðsins og nokkur hópur mun fylgja liðinu til Islands. Helsing- ör-liðið, sem i er góð blanda af linumönnum, gegnumbrotsmönn- um og langskyttum, auk þess sem hinn frábæri landsliðsmarkvörð- ur Flemming Lauritzen.stendur i marki liðsins. Kvennalið Helsingör er einnig með i ferðinni, en liðið, sem kem- ur hér i boði Fram, er meðal toppliða i dönskum handknattleik og er liðið nú i 2. sæti i 1. deild kvenna. Fyrsti leikdagur 4-liða keppn- innar hefst i Hafnarfirði á skirdag — 27. marz. Þá leikur kvennalið Helsingör gegn Haukum kl. 19.30 og slðan leika: Haukar — Helsingör FH — Vikingur Þá verður leikið i Hafnarfirði laugardaginn 29. marz og leikur unglingalandslið kvenna eða Val- ur, gegn kvennaliði Helsingör og hefst sá leikur kl. 14.30, en strax á eftir leika: Haukar — Víkingur FH — Helsingör Mótinu lýkur siðan 2. i páskum i Laugardalshöllinni og fyrst mun kvennalið Fram mæta Helsingör kl. 14.00 og siðan leika : Haukar — FH Vikingur. — Helsingör Það lið, sem ber sigur úr býtum i mótinu hlýtur fagran bikar til eignar. -------------------« IRVING LARSEN . . . hinni snjöllu vinstrihandarskyttu Helsingör, hefur verið likt við Rúmenann snjalla, Gruia. Hann er einn aðalmarkaskorari Hels- ingör.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.