Tíminn - 23.03.1975, Page 36

Tíminn - 23.03.1975, Page 36
36 • ' 'Kl'VH \ \ Sunnudagur 23. marz 1975. „Orð guðs til þín" — verða einkunarorð norræns stúdentamóts, sem haldið verður hér d sumri komanda SVALUR 1 mörg ár höfum við Pinta unnið saman, árangur V okkar hefði verið einskisl ef þú hefðir ekki komið![ En til þess að J komast að leyndt^jnRnWí^í okkar. verðurðu^V_< að fara með Pint& j -sundferð. (H v‘?f Oagana 6.-12. ágúst á sumri komanda mun verða haldið fjölmennt norrænt, kristilegt stúdentamót i Reykjavik. Er þaö Kristilegt Stúdentafélag, sem sjá mun um framkvæmdahliö mótsins. 1 viðtali við Timann tjáði séra Jón D. Hróbjartsson skólaprest- ur, sem starfar hjá Kristilegu Stúdenta- og Skólasamtökunum, K.S.F. og K.S.S. að búizt væri við milli 600 og 1000 erlendum gestum á mótið, sem haldið mun i Menntaskólanum i Hamrahlið og nálægum skólum. Jón sagði enn fremur, að það væru norrænu kristilegu stúdentasamtökin, sem stæðu að þessu móti. bannig stúdentamót væru haldin árlega, en ekki hefðu Islendingar séð sér fært að halda slikt mót sðan árið 1950. Yfirskrift mótsins að þessu sinni er ,,Orð Guðs til þin”. Vildu aðstandendur mótsins með þvi leggja áherzlu á að orð Guðs væri lifandi og skapandi, eina nýta kjölfesta mannsins nú sem endra- nær. Munu margir þekktir ræðumenn taka þátt i móts- störfum. bareru einna þekktastir herra Sigurbjörn Einarsson biskup tslands, og hinn kunni sænski biskup Bo Giertz, sem halda mun bibliulestra um 3 greinar trúarjátningarinnar. Auk þess mun þátttakendum verða skipað i 15 umræðuhópa um hin margvislegustu málefni, svo sem „Vandamál þjáningarinnar”, „Trúarlifið— sálarlifið”, „Get ég trúað”, o. fl. bá má og nefna, að á kvöldsamkomunum mun al- menningi verða heimilaður aögangur. Ekki verða þátttakendur rót- festir við Hamrahliðarskólann þótt mótið verði haldið þar, þvi einn mótsdaganna er áætluð ferð um Suðurlandsundirlendi til Skálholts, þar sem þátt verður tekið I messugjörð. Eftir mótið mun einnig verða völ á þátttöku I fjölda landkynningarferða til hinna ýmsu hluta landsins. Einnig munu nokkrir hópar stúdenta og ræðumanna ferðast um landið i þvi augnamiöi að halda samkomur. Séra Jón gat þess varðandi undirbúning mótsins, að sá þáttur hefði staðið i meir en eitt ár. Gengið hefði verið frá ýmsum veigamiklum atriðum t.d. samningum við Flugleiðir um mannflutninga milli landa, við stjórnvöld um skólahúsnæði það, sem nýtt verður. bá hefðu fyrir nokkru verið sendir 2300 dag- skrár- og auglýsingabæklingar til Norðurlananna, en auk þess hefði islenzkur kynningarbæklingur verið prentaður i stóru upplagi. Væri hann að fá i HI og öðrum æðri menntastofnunum. bátt- tökufrestur er til 15. mai, en þátt- taka skal tilkynnt á skrifstofu Kristilegs Stúdentafélags. bar er einnig allar nauðsynlegar upplýsingar að fá. Að lokum kvaðst séra Jón vera bjartsýnn á að mótið myndi takast giftusamlega. Hann hefði orðiö var við mikinn áhuga hér heima jafnt sem erlendis. Sökum sérstööu Islands, áleit hann, að mjög margir erlendir stúdentar myndu koma til þessa mikla stúdentamóts i Reykjavik. — bað vona ég að verði til eflingar kristni á Islandi, sagöi hann að lokum. -SAÞ ^bú verður að Vlæra merkjari’tól ókkar Pinta fyrst . Svalur, til að s. honum. Strok á bakið; þýðir hæg ferð, l^létt klapp þýðir full ferð. ^ Ö, hvalurinn getur gertj miklu meira, hann skilur öll merki. / Lærðu þau Engar áhyggjj

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.