Tíminn - 23.03.1975, Side 40
Nútíma búskapur þarfnast
BHUEl
haugsugu
Guóbjörn
Guöjónsson
SIS-FODIJR
SUNDAHÖFN
m
Bc ffi[~
fyrirgóúan mai
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖO SAMBANDSINS
40% AFLANS EKIÐ Á BROTT
TIL VINNSLU ANNARS STADAR
— Fiskurinn «■»
hlýtur að vera
stórskemmdur,
þegar á
leiðarenda er
komið, segir
Sigurður Jónsson
hafnarstjóri í
Þorlókshöfn
gébé Reykjavík — 23 netabátar
eru nú geröir út frá Þorláks-
höfn, en auk þeirra ianda þar
margir aökomubátar, og er afla
þeirra ekiö til heimavinnslu-
stööva á Suöurlandi. Afli hefur
veriö fremur lélegur, það sem
af cr vertiöinni, enda gæftir ver-
iö mjög slæmar. Þö hefur verið
róiö, hvenær sem veður leyföi.
«
Fiskurinn er mun vænni nú
heldur en verið hefur. Sækja
sumir bátanna á miðin austur af
Vestmannaeyjum, og landa
annan hvern dag, en aðrir sækja
styttra og landa á hverjum degi.
Að sögn hafnarstjórans I Þor-
lákshöfn, Sigurðar Jónssonar,
eru þar nú starfandi fjórar fisk-
vinnslustöövar, Meitiliinn hf„
Glettingúr hf„ Hafnarnes hf. og
Þorláksvör hf„ en aðeins Meit-
illinn hefur frystihús, hinar
stöövarnar setja mestan hluta
afla sins í sait.
— Um höfnina I Þorlákshöfn
fóru 65.546 tonn árið 1974, við
lestun og losun á vörum og fisk-
afurðum. Landað var 49.337
tonnum af fiski, en þar af voru
aðeins 30 þúsund tonn unnin i
fiskvinnslustöðvunum fjórum i
Þorlákshöfn, sagði Sigurður. —
Austur til Selfoss, Eyrarbakka
og Stokkseyrar var um 6.500
tonnum af fiski ekið á bifreið-
um, en bátar, gerðir út frá þess-
um stöðum landa gjarna i Þor-
lákshöfn. Til Reykjavikur og
Suðurnesja voru flutt um 11 þús-
und tonn af fiski á árinu 1974.
bað er mun ódýrara að flytja
fiskinn til vinnslu i heimahöfn-
um á bifreiðum heldur en að
sigla með hann, en rýrnun er
mjög mikil, þótt ekki hafi farið
fram nákvæm athugun á þvi,
hve mikil hún er. — Það þyrfti
að koma á löggjöf um að landað
skuli ikössum og fiskurinn flutt-
ur þannig. Það gefur auga leið,
að þegar fiskur er fluttur á bif-
reiðarpalli, t.d. frá Þorlákshöfn
til Akraness, i misjöfnu veðri,
þá hlýtur rýmun hans að vera
mjög mikil, sagði Sigurður. —
Aflinn er fluttur á bifreiðum allt
frá Stokkseyri suður i Sand-
gerði. Sem dæmi má nefna, að
fiskur er u.þ.b. 3—4 stiga heitur,
þegar honum er skipað upp á
bifreiðarpalla, en eftir langan
akstur i góðu veðri getur hann
verið orðinn allt að 14 stiga heit-
ur, þegar honum er sturtað á
plön I vinnslustöð.
Vegurinn til Þorlákshafnarer
fyrir neðan allar hellur, svo sem
flestum er kunnugt, sérstaklega
afleggjarinn niður i þorpið og
um Þrengslin, og er þvi aug-
ljóst, hve illa fiskurinn fer við
að hristast i kös á bifreiðarpöll-
unum langar leiðir. Hann hlýtur
að vera stórskemmdur, þegar
hann loks kemst i vinnslustöð,
sagöi Sigurður að lokum.
Hér er veriö aö landa úr netabátum I Þorlákshöfn á bifreiðar, sem siöan flytja aflann til heimavinnslustöðva.
Timamynd: Gunnar
KARLMENNINGARNEYZLA
Á SAUÐÁRKRÓKI
Framlag verkakvennafélagsins til Sæluvikunnar
G.Ó. Sauðárkróki. — Sæluvika
Skagfiröinga hefst á Sauðárkróki
6. april nk. og lýkur 13. aprfl. Þar
verða m.a. sýndir tveir sjónleikir,
kvikmyndasýningar veröa alla
dagana og dansleikir fjögur
kvöld.
Leikfélag Sauðárkróks sýnir
gamanleikinn Ærsladrauginn eft-
ir Noel Coward. Leikstjóri er Kári
Jónsson. Þá sýnir Verkakvenna-
félagið Aldan á Sauðárkróki nýtt
leikrit eftir Hilmi Jóhannesson,
sem hann hefur samið fyrir
Verkakvennafélagið ölduna til
flutnings á sæluvikunni á þessu
alþjóðlega kvennaári. Hilmir er
einnig leikstjóri.
1 tilefni þessarar fyrirhuguðu
leiksýningar hefur Verkakvenna-
fél. Aldan sent eftirfarandi frétta-
tilkynningu:
Menningarneyzla
dreifbýlisalmúgans
Eftir að alþjóðlega kvennaárið-
hófst, hefur mikið verið karpað
um „stöðu” konunnar, bæði i for-
tið og nútið.
Verkakvennafélagið Aldan á
Sauðárkróki hefur prjónað svo-
litinn ilepp, I von um að auðvelda
þá eyðimerkurgöngu, sem þessar
umræður hljóta að verða. Einnig
til að karlmennirnir þurfi ekki að
verða eins sárfættir á eggjagrjóti
minninganna og bæði kynin geti
gengið nokkurn veginn upprétt
inn i rósrauðan bjarma morgun-
dagsins.
Verkakonur telja sig ekki færar
um að koma með nýjar og skarp-
legar hugmyndir um „stöðu kon-
unnar” — hins vegar gerðu þær á-
lyktun um „legu karlmannsins”,
þvi óneitanlega liggur hann vel
við höggi.
1 samræmi við alþjóðlegar
venjur er þetta eins tyrfið og hægt
er, enn fremur svotvirætt,að allir
geta skilið — eða misskilið — á-
lyktunina, sem er svona:
Konur andmæla ruddalegum
loddarahætti miðalda erfðavenju
nútima nægtaþjóðfélags. 1-
smeygilegur náungakærleikur
Gamla Adams ræður næstum ein-
göngu yfir samfélagslegu lifs-
mynztri almennings.
Félagið hefur fengið Hilmi Jó-
hannesson til að aðstoða við að
koma upp sýningu, þar sem þetta
er inntakið, og gefst öllum tæki-
færi að kynna sér þetta nánar á
sæluviku Skagfirðinga, sem hefst
6. april.
Nýverið hafa hækkað auglýs-
ingagjöld fjölmiðla, en almenn-
ingur hefur verið hvattur til að
gæta sparnaðar i hvivetna — að
þessum orsökum var ákveðið að
skammstafa nafn sýningarinnar,
nota aðeins fyrsta staf I hverju
orði — þá kemur út KARLMENN-
INGARNEYZLA — undir þvi
heiti verður þetta auglýst.
LANDSKEPPNI VIÐ FÆREYINGA
HEFST Á MORGUN
Gsal—Reykjavik. — Lands-
keppni I skák við frændur vora
Færeyinga hefur verið endan-
lega ákveöin, en þetta er i
fyrsta sinn, sem Færeyingar
og islendingar eignast liö I
landskeppni í skák, — og I
fyrsta sinn sem keppt er á tiu
borðum i landskeppni hér á
landi, en báöar þjóðirnar
munu senda tlu fulltrúa til
keppninnar.
Teflt verður i Hreyfilshús-
inu við Grensásveg og verða
tvær umferðir tefldar.
íslenzka sveitin mun ekki
verða skipuð öllum okkar
sterkustu skákmönnum þvi að
Ingvar Asmundsson, Ingi R.
Jóhannsson og Jón Kristins-
son hafa afþakkað boð um
þátttöku.
Hins vegar er sveitin engu
að siður skipuð mjög sterkum
skákmönnum, en meðal is-
lenzku fulltrúanna I lands-
keppninni má nefna Friðrik
Ólafsson, Magnús Sólmunds-
son, Björgvin Viglundsson,
Gunnar Gunnarsson, Braga
Kristjánsson, Guðmund
Ágústsson.
Fyrri umferð landskeppn-
innar hefst I Hreyfilshúsinu á
mánudagskvöld, en siðari um-
ferðin verður tefld á skirdag.
Milli umferðanna munu fær-
eyska landsliðið keppa við
sameiginlegt lið frá Hafnar-
firði, Kópavogi og Skáksam-
bandi Suðurlands.
Nokkrum erfiðleikum var
bundið að skipa islenzka
landsliðið, þar eð keppni á
Skákþingi stendur sem hæst i
landsliðsflokki, og enginn af
þeim skákmönnum, sem þar
teflir kemur þvi við að tefla
einnig i landskeppninni við
Færeyinga. Úrslit i landsliðs-
flokki á föstudagskvöldið voru
sem hér segir: Gunnar Gunn
laugsson vann Asgeir P.
Asgeirsson, skák Franks
Herlufsen og Jóns Þ. Þór fór i
bið, og hefur sá sfðarnefndi
betri stöðu, skák Braga
Kristjánssonar, og Helga
Ólafssonar var frestað, skák
Hauks Angantýssonar og
Björns Þorsteinssonar fór i
bið, og er staðan mjög tvisýn,
skák Jónasar Þorvaldssonar
og Ómars Jónssonar fór i bið,
og er Jónas með betra tafl i
biðskákinni, skák Júlfusar
Friðjónssonar og Margeirs
Péturssonar fór i bið og er
staðan tvisýn.
Biðskákir úr fyrstu tveimur
umferðunum verða tefldar i
kvöld.