Tíminn - 06.04.1975, Blaðsíða 1
FB-Reykjavík. Aflinn i nokkrutn
helztu verstöðvum hér Suðvest-
anlands er heldur meiri nú en I
fyrra, samkvæmt þeim upplýs-
ingum, sem vigtarmenn á hinum
einstöku stöðum gáfu Timanum.
Mestmegnis er hér um netafisk
að ræða, og er þetta mjög góður
fiskur, að sögn vigtarmannanna.
Aflahæsti báturinn á vertiðinni til
þessa mun vera Bergþór með 812
lestir.
Þorlákshöfn
Aflinn fyrstu þrjá mánuði árs-
ins I Þorlákshöfn var 6528 lestir,
en á sama tima i fyrra var hann
5471 lest. Mestmegnis er þetta
netafiskur. Loðnuaflinn á sama
tima var 13.970 lestir. Aflahæsti
báturinn i Þorlákshöfn er
Brynjólfur með 542,6 lestir.
Grindavik
Frá áramótum til 1. apríl höfðu
komið á land i Grindavik 8100
lestir i 1270 sjóferðum. A sama
tima i fyrra var aflinn aðeins 6781
lest úr 1224 sjóferðum. Aflahæsti
báturinn i Grindavík er Geirfugl
með 679 lestir. Mest af þessum
afla er netafiskur. 1 Grindavik
höfðu á sama tima komið á land
Framhald á bls. 39.
Manstu gamla daga
BÁTAAFU MEIRI
NÚ EN í FYRRA
Æk er Alfreð Clausen söngvari tekinn tali, en
|| ÉT _ hann var um árabil einn eftirsóttasti
ÆÆ0 skemmtikraftur landsins.
íslenzkir rithöfundar
I DAG
er rætt viö Böðvar Guðlaugsson, se
þekktastur er fyrir gamanbragi sina.
Ný tækni ryður sér til rúms í leiðsögn
á ferðalögum
Segulbönd í stað
leiðsögumanna?
— verður prófað við fyrsta tækifæri á
stytztu leiðunum, segir Úlfar Jacobsen,
ferðaskrifstofueigandi
BH-Reykjavik. — ,,Það er hug-
myndin að setja þetta til reynslu I
bilana hjá mér við fyrsta mögu-
lega tækifæri, og þá gæti það jafn-
vel orðið í sumar,” sagði Úlfar
Jacobsen, hinn kunni ferðaskrif-
stofueigandi og öræfagarpur. Og
það, sem hér er um að ræða, er
segulbandsspóla sem sett er I
samband i langferðabifreiðum og
flytur leiðarlýsingu á um-
hverfinu, sem ekið er um. Þessar
spólur eru nú framleiddar viða
um heim, og eru allt að 5 rása,
þ.e.a.s. geta flutt leiðarlýsinguna
á fimm tungumálum i einu, og
geta farþegar valið sér tungumál
i heyrnartækjum við hvert sæti.
Með þessu eru leiðsögumenn
óþarfir i viðkomandi bifreiðum,
þar eð bifreiðarstjórinn stjórnar
segulbandsspólunni (kassettunni)
og slekkur á henni, ef hann verður
fy-rir ófyrirsjáanlegum töfum.
„Þetta er mikið þarfaþing og
Inuk sýnt á lista-
hátíð í Frakklandi
— verður sýnt á aðalsviði Þjóðleikhússins
hefur flesta kosti,” sagði úlfar i
viðtali við blaðið. „Að visu má
segja sem svo, að leiðsögumaður-
inn geti oft komið að liði, i af-
brigðilegum tilfellum og eins ef
bifreiðarstjórinn er ómælandi á
erlendum tungum, en siðari til-
fellið er nú orðið næsta sjaldgæft,
það veit ég um bifreiðarstjórana,
sem hjá mér starfa, og fæstir
leiðsögumenn kunna nokkuð til
viðgerða, sem eru heldur ekki i
þeirra verkahring, svo að þeir
geti aðstoðað bilstjórann.”
Kostnaðurinn við leiðsögumenn?
„Það er nefnilega hann, sem
lengi hefur verið okkur ferða-
skrifstofumönnum þyrnir i aug-
um, þvi að okkur hefur fundizt
hann alltof stór hluti af rekstrin-
um á ferðalögunum. Það var
alltof mikið að greiða leiðsögu-
manni fimm þúsund krónur á
dag, ekki eftir nema 10-12 þúsund
fyrir bifreiðarstjórann og J
bifreiðina eins og siðasta ár,”
sagði Úlfar Jacobsen. „Þetta
hefur bilstjórunum likað illa, þvi
að ferðin hvilir að mestu á þeirra
herðum.”
Úlfar Jacobsen gerir ráð fyrir
stórauknum ferðalögum hér-
lendra ferðamanna hérlendis i
sumar. Hann tjáði blaðinu, að
hann byggist við allt að helmingi
fleiri útlendingum i sumar en i
fyrrasumar, og vafalitið myndi
þeim Islendingum fjölga til
muna, sem ferðuðust um landið.
gébé Reykjavik — Leikritið INUK
— Maðurinn, hefur notið geysi-
Atriði úr hinu vinsæla leikriti
legra vinsælda og hvarvetna ver-
ið tekið með kostum og kynjum,
þar sem það hefur verið sýnt.
Sýningar á leikritinu eru nú í allt
orðnar yfir sextiu talsins, að sögn
Sveins Einarssonar Þjóðleikhús-
stjóra. Fimmtudaginn 10. april
verður það sýnt á aðalsviðinu i
Þjóðleikhúsinu i fyrsta skipti. Þá
hefur verið ákveðið að fara með
leikritið á Alþjóðlegu leiklistar-
hátiðina i Nancy i Frakklandi.
Þetta er i fyrsta skipti sem is-
lenzkum leikflokki er boðin þátt-
taka i Alþjóðlegu leiklistarhátið-
inni, sem verður i vor. Hingað til
lands kom maður á vegum hátið-
arinnar, til að sjá Inuk,og varð
hann, eins og allir aðrir, mjög
hrifinn.
— Þá hafa Grænlendingar sýnt
mikinn áhuga á að fá leikflokkinn
til Grænlands, en enn mun allt ó-
ráðið um ferð þangað, sagði
Sveinn. — Eins mun i bigerð að
fara i leikferðalag til Sviþjóðar,
Noregs og Finnlands, á vegum
Norræna hússins, en það verður
háð styrkveitingu frá Norræna
menningarsjóðnum og þvi alls ó-
ákveðið enn.
Þá gat Sveinn þess, áð nýiega
hefði hann fengið upplýsingar um
það frá Vinarborg, að fjallað
verður um Inuk i útsendingu
Austurriska útvarpsins og verður
úrsendingin á esperantó. Þá
hefur einnig borizt bréf til Þjóð-
leikhússtjóra frá New York, þar
sem leitaðer upplýsinga um leik-
ritið og möguleika á að fá það
vestur.
Ferðaskrifstofa Úlfars hefurnú
yfir 10 fjallabilum að ráða. og
eru þeir allir hinir fullkomnustu
að gerð.
Kvað úlfar fyrirhöfnina við
að útbúa kassetturnar, er getið
er i upphafi fréttarinnar^ tiltölu-
lega litla,og sagist hann búast við
þvi, að fyrsta tilraunin yrði gerð
innan tiðar, og þá að likindum
með þriggja rása spólu, sem yrði
þá á einhverju Norðurlanda-
málinu, ensku og þýzku.
,,Við munum að sjálfsögðu
prófa þetta fyrst á leiðum innan
höfuðborgarsvæðisins og al-
gengustu leiðum út frá þvi, svo
sem eins og til Gullfoss og Geysis
þegar i þetta verður ráðizt. Ég
reyni að verða fyrstur með þetta
þvi að ég veit, að fleiri ferðaskrif-
stofur hafa hug á þessu.”
SLÖNGUR
BARKAR
TENGI
X ^*mrrrrn'/^ ....____II. i
Landvélarhf
Síðari ófangi
Mjólkórvirkjunar:
Tekinn í
notkun
í haust
GSAL-Reykjavik — A þessu
ári er ráðgert að taka i notkun
síðari áfanga virkjunar við
Mjólká 1 Arnarfirði, en sá
áfangi verður 5200 kflóvött að
sætrð. Virkjunin sem fyrir er
við Mjólká er 2400 kilóvött, —
og samtals verður þvi Mjóik-
árvirkjun 7600 kilóvött þegar
siðari áfanginn hefur verið
tekinn i notkun.
Að sögn Ömars Þórðarson-
ar, stöðvarstjóra Mjólkár-
virkjunar, eru framkvæmdir
ekki hafnar enn sem komið er
eftir veturinn, en við þvi búizt
að þær hefjist innan skamms.
Sagði Ömar, að hann hefði
ekki fengið upplýsingar hjá
Rafmagnsveitum rikisins um
það, hvenær áætlað væri að
taka siðari áfangann endan-
lega I notkun, — enda væri sér
I raun fyrirmunað að ræða um
virkjunina við blaðamenn,
eins og hann komst að orði.
Stöðvarhúsið sjálft er alveg
frágengið til vélaniðursetn-
ingar, en eftir er að fá vélarn-
ar , ganga frá pipusuðu og
öðru sem þvi við kemur.
— Okkur Vestfirðingum er
mikið I mun að virkjunin kom-
ist sem fyrst i gagnið, sagði
Ómar Þórðarson, stöðvar-
stjóri.
Kanna
möguleika á
lokuðu
sjónvarps-
kerfi á
Keflavíkur-
flugvelli
FB-Reykjavik. Oft hefur
verið rætt um að sjónvarps-
stöðinni á Keflavikurflug-
velli verði lokað, eða útsend-
ing hennar takmörkuð við
flugvallarsvæðið. Blaðið
hafði samband við Mead sjó-
liðsforingja á flugvellinum,
og sagði hann, að undan-
farna mánuði hefði farið
fram athugun á framkvæmd
þess að setja sjónvarpsút-
sendinguna i kapla, svo að
hún næði eingöngu til þeirra,
sem væru innan flugvallar-
svæðisins.
Sjóliðsforinginn sagði, að
athuganir þessar hefðu stað-
ið yfir undanfarna mánuði,
en engar niðurstöður væru
enn fyrir hendi. Yrði þessum
athugunum haldið áfram,
enda lægi ekki enn fyrir neitt
um það, á hvern hátt slikar
framkvæmdir yrðu fjár-
magnaðar.
Ekki sagði Mead sjóliðs-
foringi neitt hafa verið rætt
um að breyta útsendingum
útvarpsstöðvar herliðsins á
þann hátt, að ekki næðu út-
sendingum þess aðrir en
þeir, sem dveldust innan
vallarins.