Tíminn - 06.04.1975, Blaðsíða 3

Tíminn - 06.04.1975, Blaðsíða 3
Sunnudagur 6. apríl 1975. TÍMINN 3 FÓLK er viOfangsefni Leifs Þorsteinssonar, ljósmyndara, á sýningu hans i Bogasal Þjóðminjasafnsins dagana 5. til 13. aprfl, og bregður hann þar upp um 70 svart-hvitum ljósmyndum, svipmyndum af mann- lifi sem orðið hefur á leið hans um viða veröld. Hér er um að ræða 2. einkasýningu Leifs, en hann hefur tekið þátt i fjölmörgum sýningum. Merkastur er þó hlutur Leifs i heimssýningunni i Osaka f Japan árið 1972, er hann sýndi 150 myndir frá tslandi, en þar var um að ræða feikn- arlega vinnu á sviði ljósmyndaiistarinnar. — Timamynd: Gunnar. KVEIKTU í SINU OG SKEMMDU FYRIR 50 ÞÚS. — lá við 2 1/2 milljón kr. tjóni SJ—Reykjavik. A föstudag varð sennilega um 50.000 kr tjón af sinubruna i landi Votmúla i Flóa, og mildi að ekki varð 2 1/2 milljón króna skaði. Talsvert er um að óvitar og stálpaðir ung- lingar eða jafnvel fullorðnir kveiki i sinu að gamni sinu og er ástæða til að vara fólk við að vera á verði gagnvart sliku, að sögn lögreglunnar á Selfossi og Páls Lýðssonar oddvita i Litlu- Sandvik, en vatnsleiðslur liggja nú á jörðu um allan Flóann og beðið er eftir að frost fari úr jörðu til þess að unnt verði að grafa þær niður. Sandvikurhreppur mun fá vatn frá Selfossi og var búið aö leggja plastleiðslur um land Votmúla og_Jórvikur um 2-3 km vegalengd. Var þarna þó nokk- uð mikið af efni og sverustu leiðslurnar fjórar tommur. A föstudag sást til ferða tveggja ungra manna sem voru að reyna að kveikja i sinu hér og þar, en tókst ekki fyrr en efst i landi Votmúla. Það vildi til að starfsmaður Ræktunarsam- bands Flóa og Skeiða, Guð- mundur Jónsson i Björk var á ferð skammt frá brunastaðnum um hálfáttaleytið um kvöldið og tókst að slökkva eldinn. Að sögn Páls Lýðssonar brann leiðslan sundur á tveim stöðum, annars vegar er tveggja metra kafli gerónýtur og hins vegar 7-8 metra kafli. Kvað hann senni- legt að þyrfti að skipta um leiðsluna á um 60 metra kafla, en það kostar um 50.000 kr. — Þetta hefði þó getað farið verr og eldurinn læst sig eftir allri linunni, sem hefði verið 2 1/2 milljón króna bit, sagði Páll. Land Jórvikur er mjög bitið af hestum og þar gekk þvi illa að kveikja eld, en Votmúlaland hefur verið friðað fyrir hrossa- beit, og þar var þessi fina sina og logaði vel i. Að sögn virðist ikveikja i sinu vera smitandi. Bændur eru sumir hverjir að brenna sinu og fara þá með gát, en aðrir taka þetta eftir þeim i kjánaskap. T.d. lá við að skemmdir yrðu á Selfossi á föstudag, er börn voru að kveikja i sinu, en hingað til hef- ur ekki orðið tjón að sliku. Mál þetta er i rannsókn. Sveitarstjórnir og menningarmól Afmælisráðstefna Sambands islenzkra sveitarfélaga um sveitarstjórnir og menningar- mál, hefst með setningarathöfn i Þjóðleikhúsinu i dag (sunnudag) kl. 17.00. Páll Lindal, formaður sambandsins, setur ráðstefnuna, en slðan flytur Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráðherra, erindi um rikisvald og sveitarstjórnir. Siðan taka ýmis skemmtiat- riði við, sem lýkur með sýningu á leikritinu „Hvernig er heilsan?” i Þjóðleikhúsinu. Á mánudagsmorgun verður ráðstefnunni haldið áfram, á Hótel Sögu. Birgir Thorlacius, ráðuneytisstjóri, flytur fyrsta erindið, en siðan munu fimm fulltrúar sveitarstjórna taka til máls um hlutverk sveitar- stjórna i menningarmálum. Tæplega 150 manns hafa tilkynnt um þátttöku á ráðstefn- unni. ÞAU ERU KOAAIN! PIOIVIfEO* tækin sem allir hafa beðið eftir eru loksins komin aftur Við gefum 3ja ára ábyrgð Góðir greiðslu- skilmálar Viðgerðar- og tækni- þjónusta á * staðnum Einnig höfum við fengið mjög góða háfalara frá danska fyrirtækinu Orta Fon og bandariska fyrirtækinu KLH Heimsþekkt H-R 99 HOME STEREO PIONEER HLJÓMTÆKJA Laugavegi 66 SX- 535 2 CHANNEL RECEIVER PIONEER PL- 71 DIRECT DRIVE TURNTABLE PiOIMEER CT-5151 STEREO CASSETTE DECK PIONEER

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.