Tíminn - 06.04.1975, Blaðsíða 19

Tíminn - 06.04.1975, Blaðsíða 19
Sunnudagur 6. aprll 1975. TÍMINN 19 Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Ritstjórn- arfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri: Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Rit- stjórnarskrifstofur I Edduhúsinu við Lindargötu, slmar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aðalstræti 7, slmi 26500 — af- greiöslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð I lausa- sölu kr. 35.00. Askriftargjald kr. 600.00 á mánuði. \Blaðaprenth.f, Þar eru máttarviðirnir 1 þúsund ár voru íslendingar þrautlúnir erfiðis- menn frá barnæsku, báru fæstir úr býtum nema skorinn skammt, þegar vel lét, en dóu drottni sin- um, þegar harðnaði á dalnum. í þokkabót lágu þeir undir refsivendi hrokafullra yfirvalda og urðu að sitja og standa og deyja eins og singjarnir kaup- menn heimtuðu. Þeir, sem undir þyngstu oki skjögruðu, voru til fæstra fiska virtir, en virðingin var sjálftekinn réttur fárra lærðra manna i embættisstétt og þeirra, sem réðu yfir búðarvöru, jörðum og fiskiverum. Kóngurinn i Kaupinhöfn og þeir, sem voru honum við hönd, útdeildu hinum æðstu embættum, eftir þvi sem vindar náðarinnar blésu, háyfirvöldin náðu sér niðri á þeim er lægra stóðu i embættisstiganum, sýslumenn, hreppstjór- ar og prestar voru með nefið niðri i hvers manns aski i umdæmum sinum, jarðeigendur og umboðs- menn settu leiguliðum sinum kostina og húsbænd- urnir á heimilunum voru með vanmáttugan arm reiddan yfir hjúum og börnum á sinni litlu lóð. Úrhrak alls undirmálslýðs voru þurfalingarnir, sem hver, er það kaus, gat skeytt á skapi sinu. Þetta er hin dökka hlið þjóðfélagsins gamla, sem við þekkjum aðeins af lestri bóka og skjala. Það er sjálfsagt matsatriði hvenær fyrst bryddir á morgunroða nýs tima. öll straumhvörf i lifi og sögu þjóða eiga sér langan aðdraganda. En mannréttindabaráttan hófst óumdeilanlega af fullum þunga, þegar áhrifa byltinganna á megin- landi Evrópu tók að gæta hér úti á eylandi okkar i Atlantshafi, þótt margur áfanginn næðist ekki fyrr en á dögum þeirra, sem nú eru uppi, og að sjálf- sögðu sé enn margt, sem ekki hefur tekizt að skipa á þann veg, sem til mannfélagsbóta horfir. Vegurinn frá hinu gamla samfélagi, þar sem hver tróð á öðrum, er býsna langur. Samt er ekki einsætt nema nokkuð eimi eftir af þeim hugsunar- hætti, sem lifshættir þeirra tima þrýstu inn i vit- und fólks kynslóð eftir kynslóð. Sé um skyggnzt og lagðar við hlustir, kann einhvers staðar að vera grunnt á þeim hugsunarhætti, sem vel mætti vera erfðagóss frá liðinni tið, að það sé á einhvern hátt óæðra að vinna með höndunum heldur en húka til að mynda á skrifstofum og busla i pappirsdyngj- um. Það hrekkur upp úr sumum, að þeir séu ,,bara” verkamenn eða ,,bara” húsmóðir, svo að nokkuð sé nefnt. Fólk úr verklýðsstétt lætur sér lynda að kalla sig „vinnuþega”, eins og þess eins sé þágan, og hina „vinnuveitendur”, sem ráða fyrirtækjum. Margir foreldrar hafa tilhneigingu til þess að þrýsta börnum sinum til langskóla- náms, jafnvel þótt þeim sé kvöl að langri setu á skólabekk og hæfileikar þeirra hneigist i aðra átt, og jafnvel meðal uppreisnargjarnasta hluta ungu kynslóðarinnar, skýtur grár selshausinn iðulega upp kolli, likt og úr gólfinu á Fróðá: óvirðing á þeim, sem vinna hörðum höndum. Staðreyndirnar eru þó ekki flóknar: Vinnan er blessun, bæði þjóðfélagi og einstaklingum. Sam- félagið þarfnast starfsams fólks á öllum sviðum þjóðfélagsins. Það er jafngöfugt starf að draga net, flaka þorsk, hamra járn i smiðju og gefa hey á garða, ef það er vel af hendi innt, og það, sem meira er: Þessi störf og önnur þeim hliðstæð eru þjóðfélagsundirstaðan: Verðmætasköpunin, sem öllu heldur uppi. Bókmenning og fjölþættar listir eru þjóðinni vissulega liftrygging,fjörefni. Þjón- ustustörf eru nauðsyn, en þó baggi, ef fleiri eru við þau bundin en þörfin krefur. En hendurnar, sem vinna framleiðslustörfin, gefa allt sem til þarf. — JH Gorm Raabo Larsen og Lars Prahm, Information: Verður reynt að ráða veðri og loftslagi í náinni framtíð? AAengunin hefur þegar valdið breytingum í gufu- hvolfinu, og af þeim getur stafað veruleg hætta Loftmynd af Noröur-Evrópu, send frá gervihnetti 7. aprfl 1974. Við reynum að segja fyrir um veðrið. Eftir nokkur ár förum við ef til vill að reyna af ásettu ráði að valda þvi veðri, sem viö þurfum á að halda. En við höfum I raun áhrif á veðriö nú þegar með hinni miklu loftmengun, en við vitum ekki, hverjar af- leiðingarnar verða. Gorm Raabo Larsen og Lars Prahm gera hér á eftir nokkra grcin fyrir veöur- rannsóknum yfirleitt. Þeir starfa báðir á dönsku veður- stofunni. Annar vinnur við tölvuspár, en hinn fæst eink- um við athuganir á aðferð- um til þess að kanna dreif- ingu og útbreiðslu þeirra efna, sem valda loftmeng- un. VIÐVARANIR um veður og ýmsar reglur um veðurlag eru kunnar allt frá þvi i fornöld. Veðurfræði nútimans hófst þó ekki i alvöru fyrr en eftir að Torricelli fann upp loftvogina og unnt varð að mæla loft- þrýstinginn. Næsta skref var svo gerð veðurkorta eftir veðurathugunum á sama tima á mörgum stöðum á stóru svæði. Tilkoma sfmskeytanna og aukin notkun þeirra hafði einnig ákaflega mikla þýðingu i þessu sambandi. Ahugi hersins á veðurspám olli þó mestu um örar fram- farir i veðurathugunum og veðurspám. Fransk-brezki flotinn eyðilagðist að mestu i stórviðri við Krimskaga árið 1854. Þegar i ljós kom, að unnt var að rekja braut stórviöris- ins um Evrópu þvera allt til Svartahafs, lá sú niðurstaða beint við, að unnt hefði verið að koma i veg fyrir afhorðið, ef kostur hefði verið að vara við veðrinu með simskeytum. Styrjaldirnar á okkar öld hafa sannað enn ótvfræðar mikilvægi góðrar veðurþjón- ustu fyrir herinn og það ómetanlega gagn, sem af henni er. Danska veðurstofan heyrir til dæmis enn undir varnamálaráðuneytið. ALÞJÓÐLEGU veðurfræði- samtökin (World Meteorologi- cal Organization eða 'WMO), sem lúta Sameinuðu þjóðun- um, samræma allar veðurat- huganir og rannsóknir og safna öllum niðurstöðum. Al- þjóðlegu veðurfræðisamtökin eru sennilega umfangsmestu samtök um samvinnu i tækni og visindum. Veðurspár og viðvaranir byggjast enn fyrst og fremst á hreyfilögmáli Newtons. Þar er út frá þvi gengið, að hreyfing einhvers ákveðins hlutar eða efnis standi i beinu hlutfalli við allt afl, sem á hann verkar. Mikilvirkustu öflin i loft- hjúpnum umhverfis jörðina eru þyngdarafl hennar og þrýstingur andrúmsloftsins, auk þeirra áhrifa, sem snún- ingur jarðar hefur. Séu þessi öfl þekkt og áhrifadreifing þeirra, er fræðilega séð unnt að reikna út, hvernig hreyfingarnar i lofthjúpnum verða. Tilkoma tölvunnar og þróun hefur gert þetta við- ráðanlegt i framkvæmd. TÆPAST þarf að taka fram, að ekki er með neinu móti mögulegt að fylgjast með hverri einustu loftsmæð I gufuhvolfinu. Þar á ofan eru að verki i loftinu margvislegar breytingar og framvinda, sem hafa verður hliðsjón af við tölulegar veðurspár. Fræðilegar kannanir og margskonar tilraunir benda til, að ómögulegt muni reynast að segja fyrir um veður meira en um þaö bil hálfan mánuð fram i timann með þessu móti. „ALLIR tala um veðrið, en enginn tekur sig fram um að breyta þvi”, er orðið úrelt orð- tak. Við erum farnir að hafa áhrif á veðurlagið. Mennirnir nota gufuhvolfið sem eins kon- ar haug fyrir sivaxandi úr- gang. Við veitum út i loftið ryki og menguðum lofttegund- um gegn um reykháfa og með útblæstri bfla og flugvéla. Þessi úrgangur er oröinn það mikill, að veruleg hætta er á varanlegum og afdrifarikum breytingum i gufuhvolfinti. Mengunarefnin geta breytt samsetningu loftsins á þann veg I mjög mannmörgum borgum og þéttbýlum iðnaðarhéruðum, að það verði óhæft til innöndunar fyrir menn. Umfangsmikill iðnaður eykur svo sýruburð með úr- komu á stórum svæðum, að það getur valdið skemmdum á gróðurmold og dregið úr vexti skóga til dæmis. Eins getur þaö valdið verulegu tjóni á ýmisskonar lifi i fersku vatni. ÞEGAR litið er á jörðina sem heild, er nokkur hætta á, aö kolsýringur og rykmettun gæti hækkað eða lækkað meðalhitann i lofthjúpnum umhverfis hana. Einnig mætti hugsa sér, að síaukin orku- notkun næstu öld hækki meðalhitann töluvert. Breyting á meðalhitanum um aðeins tvær gráður eða svo, getur annað hvort valdið nýrri isöld, eða brætt það mikið af heimskautaisnum, að yfirborð heimshafanna hækki um nokkra metra. Allra siðustu ár hefur mönn- unum orðið ljós hættan á þvi, að mjög háfleygar flugvélar og ýmsar lofttegundir frá verksmiðjuiðnaði dragi veru- lega úr sigtun útfjólubláu geislanna, sem eru lifshættu- legir. Fullyrt hefur verið, að möguleikinn á þessari hættu hafi verið eitt af þvi, sem hamlaði gegn framkvæmd Bandarikjamanna á áætlun- um sinum um smiði hljóð- frárra þota til farþegaflutn- inga. Þekking okkar á þvi, hvaða áhrif loftmengunin hefur á gufuhvolfið, er enn ákaflega takmörkuð og götótt. Það er einmitt eitt af nútima- og framtiðarverkefnum veður- fræðinnar að kanna samhengi loftmengunar og veðurlags, eða öllu heldur áhrif hennar á veðurfar og loftslag. Þegar sú könnun er komin vel á veg, getum við sagt fyrir um þær afleiðingar, sem atferli mann- anna i hinum háþróaða iðnaði getur haft og hefur, en eru nú ókunnar og alls ekki tilætlað- ar. EITT er að kanna, skýra og sanna, hvaða breytingum við getum valdið eða völdum á gufuhvolfinu, án þess að ætl- ast til þess, hvað þá að gera það af ráðnum huga. Annað er að reyna visvitandi að valda breytingum á veðurfari eða loftslagi. Um alllangt skeið hafa verið gerðar ýmisskonar tilraunir með tilbúning skýja til þess aö auka eða minnka úrkomu á vissum, takmörkuðum svæð- um. Þá hafa einnig verið athugaðir i fullri alvöru margskonar möguleikar á verulegri breytingu loftslags á allstórum svæðum. I þvi sam- bandi má nefna áform um tröllauknar áveitur á eyði- merkur og sti'flun sunda milli úthafanna. Sú spurning, hvort við eig- um að reyna að stjórna veður- laginu I framtiðinni, hlýtur að verða ákaflega umdeild, bæði frá sjónarmiði visinda og stjórnmála, enda málið næsta viðkvæmt, og áhrifin sýnast geta orðið ærið margslungin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.