Tíminn - 06.04.1975, Blaðsíða 5
Sunnudagur 6. apríl 1975.
TÍMINN
5
Tasjkent — borg
sem þolir
jarðskjálfta
Rikisstjórn sovétiýðveldisins
Usbekistan, sem er i Mið-Asiu,
hefur samþykkt heildaráætlun
um stækkun höfuðborgarinnar
lýðveldisins, Tasjkent, til ársins
2000 Hin forna Tasjkent, sem
upphaflega var reist i upphafi
timatals okkar, varð fyrir mikl-
um skaða i jarðskjálfta árið
1966, er nær þriðji hluti alls
ibúðahúsnæðis eyðilagðist. Af-
leiðingar jarðskjálftans sjást nú
hvergi lengur, og auk þess hefur
ibúðafjöldi i bænum aukizt um
75%. Eftir 1970 hafa 200.000
manns flutt inn i nýjar ibúðir, en
jafngildir um það bil einum af
hverjum sjö íbúum borgarinn-
ar. 1 dag er Tasjkent falleg
borg. Nýju byggingarnar, sem
eru mjög þægilegar eru þannig
byggðar, að þœr eiga að þola
jarðskjálfta, sem er allt að 9 stig
að styrkleika. Enda þótt bygg-
ingarkostnaður hækki verulega
þess vegna er húsaleiga hin
sama og annars staðar i land-
inu. Heildaráætlunin gerir ráö
fyrir sérstæðum byggingum,
þar sem nútima stefnum i húsa-
gerðarlist eru samræmdar
heföbundnum þjóðlegum bygg-
ingarstil. Verkfræðingarnir
hafa lika tekið tillit til hins hlýja
loftslags. Ræktaðir verða nýir
skemmtigarðar með gosbrunn-
um og tjörnum, og samanlagt
gróðursvæði mun jafngilda 38
fermetrum á hvern ibúa. Nýjar
akbrautir, með vel skipulagðri
umferð, og neðanjarðarbraut,
sem reyndar er þegar byrjað að
byggja, mun tengja nýja ibúða-
hverfið við miðborgina og
skemmtigarðana.
Þeir hugsa
um börnin
Nokkrir strætisvagnar i Paris
hafa að undanförnu verið búnir
sérstökum stólum fyrir börn.
Þessir stólar eru mun hærri
heldur en þeir stólar, sem fyrir
eru i vögnunum, og gera þeir
þvi börnum kleift að sjá út um
gluggana á vögnunum á leið
þeirra um borgina.
Brautzt inn
vegna feimni
við konur
Maður nokkur var handtekinn
fyrir innbrot i Paris nýlega.
Lögfræðingur mannsins bar það
fyrir rétti, að ástæðan fyrir inn-
brotinu væri sú, að hann væri
feiminn við konur. Lög-
fræðingurinn útskýrði þetta
nokkru nánar. Hann sagði, aö
maðurinn væri mjög upp-
buröarlaus i návist kvenna, og
þess vegna hefði hann fengið
óslökkvandi löngun til þess að
komast yfir sem mest af bókum
og myndum af þeirri tegund,
sem seldar eru i klámmynda-
búðum. En það er ekki nóg að
láta sig langa. Maðurinn þorði
ekki heldur að ganga beint til
verks og fara inn i einhverja
hinna mörgu verzlana, sem
verzla með þessar vörur og
biðja um það, sem hann langaði
i, svona um hábjartan daginn,
þegar von var á öðrum við-
skiptavinum. Þess vegna greip
hann til þess óyndisúrræðis að
brjótast inn að næturlagi. Við
innbrotið notaði maðurinn litið
kúbein. Mjög táknrænt verkfæri
sagði dómarinn, éftir að hafa
kannað kúbeinið og úrskurðaði
þegar, að maðurinn yrði að leita
aðstoðar sálfræðings. Dómur-
inn, sem maðurinn fékk var
mjög venjulegur, eftir þvi sem
dómar gerast i Frakklandi.
Hann hljóðaði upp á eitt ár i
fangelsi, og þar af falla fimm
mánuðir þegar niður, nema
maðurinn brjóti eitthvað af sér
eða hegði sér illa i fangelsinu.
Góð matarlyst
A svinabúi Clarke-fjölskyld-
unnar, sem býr skammt frá
Birmingham i Bretlandi, er að
sjálfsogðu alltaf mikill fjöldi
aligrisa. HúnSally litla, sem við
sjáum á meðfylgjandi myndum,
ásamt hundum fjölskyldunnar,
neitaði þegar i upphafi að sætta
sig við aðbúnaðinn i svinasti-
unni. Henni fannst ekki nógu
rúmt um sig, og þar að auki er
hún svo pjöttuð, að hún gat alls
ekki sætt sig við svinariið þar.
Hún gerði þvi uppreisn, og
krafðist þess að litið yrði á hana
sem virðulegan hund i framtið-
inni. Þetta var látið eftir henni,
og nú spókar hún sig með ,,hin-
um” hundunum og nýtur lifsins.
Alvöruhundarnir voru ekkert
sérlega hrifnir af Sally i upp-
hafi, en nú eru þau mestu mát-
ar. Eitt er þó það i fari Sallyar,
sem hundarnir hafa aldrei getað
sætt sig við, hún hefur nefnilega
svo góða matarlyst, að þegar
komið er að máltið, ræður hún
ekki við sig, og það kemur oft
illilega niður á hundunum, eins
og glöggt má sjá á myndunum.