Tíminn - 06.04.1975, Blaðsíða 33
Sunnudagur 6. aprll 1975.
TÍMINN
33
stuldi kórónunnar og
bað það hjálpar. Einn
huldumannanna gekk út
úr hópnum og kom til
hennar.
— Við skulum veita
þér og þeim, sem þér
þykir vænt um, aðstoð
okkar, mælti hann.
— En risinn er ósigr-
andi, og enginn kemst
upp á Svarta fjall, sagði
Brid gamla.
— Við getum sigrað
risann, sagði þá huldu-
maðurinn. Biddu andar-
tak, sagði hann svo.
Hann hvarf inn i hæðina,
og kom aftur að vörmu
spori með þrjá hluti:
skikkju, skó og sverð.
— Þessi skikkja gerir
þann, sem hana ber, ó-
sýnilegan, sagði hann.
Skórnir hafa þann mátt,
að sá, sem hefur þá á
fótum, getur tekið eins
stór skref og hann vill,
ogsverðið er svo mátt-
ugt, að sá sem hefur það
i hendi, þarf ekki annað
en að snerta óvin sinn
með sverðsoddinum til
þess að hann detti dauð-
ur niður. Risinn þekkir
mátt þessa sverðs.
— En ég vil engan
drepa, sagði Brid, jafn-
vel ekki risann.
— t>ú þarft ekki að
drepa hann, þvi að hann
verður strax hræddur,
þegar hann sér sverðið,
og lætur kórónuna af
hendi. Færðu Shane
þessa hluti og biddu
hann að skila mér þeim
aftur, þegar hann er bú-
inn að nota þá.
Brid þakkaði huldu-
manninum kærlega
fyrir hjálpina og flýtti
sér til hallarinnar. Hún
afhenti Shane skikkj-
una, skóna og sverðið og
sagði honum, hvernig
hann ætti að beita þeim.
Shane lagði nú af stað,
og brátt kom hann að
vatninu við Svarta fjall.
Risinn hafði verið i
ránsferð og var nú á
heimleið. Shane sá hann
nálgast og flýtti sér að
bregða yfir sig töfra-
skikkjunni. Risinn klof-
aði yfir hann án þess að
sjá hann, og yfir vatnið
fór hann i einu skrefi.
Siðan kleif hann upp
fjallshliðina og hvarf.
Shane setti nú upp
skóna og komst auðveld-
lega yfir vatnið. Hann
stóð við rætur fjallsins,
þegar risinn birtist
skyndilega.
— Hvernig vogar þú
þér að koma hingað,
krilið þitt?
— Ég er kominn til að
ná i kórónu konungsins,
sem þú stalst frá hon-
um! Fáðu mér hana
strax, sagði Shane
borginmannlega.
Risinn rak upp trölla-
hlátur. — Þú ert svei
mér hugaður, sagði
hann. Veiztu ekki, að ég
get kreist úr þér liftór-
una eins auðveldlega og
að drepa flugu?
Shane dró sverðið
góða úr sliðrum og
sagði:
— Ég þarf heldur ekki
annað en að snerta þig
með sverðsoddinum til
þess að þú dettir dauður
niður.
Risinn skrækti af
hræðslu, þvi að hann
þekkti strax sverðið og
vissi, að Shane hafði
hann nú algerlega á
valdi sinu.
— Ég skal uppfylla
allar óskir þinar, ef þú
sliðrar þetta hræðilega
verð, sagði hann.
— Það geri ég ekki
fyrr en þú hefur afhent
mér kórónuna, svaraði
Shane.
Komdu með mér,
sagði risinn, og fylgdi
Shane að litlum helli,
þar sem hann hafði falið
kórónu Flanns konungs.
Shane hélt sverðinu i
hægri hendi, og með
þeirri vinstri greip hann
kórónuna. Risinn fylgdi
honum með augunum,
og þegar Shane greip
kórónuna, gerði hann sig
liklegan til að ráðast á
hann. Shane sveiflaði
sverðinu ógnvekjandi,
og risinn varð svo
hræddur, að hann stökk
út úr hellinum. Þegar
hann kom i hellismunn-
ann, varð honum fóta-
skortur, svo að hann féll
niður i vatnið við fjalls-
ræturnar. v
Shane hélt nú heim-
leiðis, glaður i bragði, en
fyrst fór hann og skilaði
skikkjunni, skónum og
sverðinu góða til huldu-
fólksins. Hann þakkaði
þvi kærlega fyrir lánið
og flýtti sér síðan til
hallarinnar með kórón-
una. Þar var honum tek-
ið með kostum og kynj-
um og konungurinn varð
svo glaður, að hann
samþykkti þegar ! stað
að Shane gengi að eiga
Eimer prinsessu.
Þegar Shane var
spurður, hvernig hann
hefði farið að þvi að ná
kórónunni frá risanum,
sagði hann aðeins, að
það væri leyndarmál,
sem hann mætti ekki
fyrir nokkurn mun
ljóstra upp. Og við það
sat.
Nú var slegið upp kon-
unglegu brúðkaupi i
höllinni, og allir voru
glaðir og hamingjusam-
ir.
Heilsurækt Atlas,
æfingatlmi 10-15 min. á dag.
Arangurinn sýnir sig eftir
viku tima.
Likamsrækt Jowetts heims-
frægt þjálfunarkerfi sem
þarfnast engra áhalda eftir
George F. Jowett heims-
meistara i lyftingum og
glimu. Bækurnar kosta 500
kr. hvor. Vinsamlegast send-
ið gjaldið I ábyrgðarbréfi.
Likamsrækt, pósthólf 1115,
Reykjavik.
Ódýr í innkaupi - og rekstri
Benzínkostnaður þriggja bifreiða, miðað
við 30.000 km akstur:
Bifreið, sem eyðir 16,5 I ó 100 km:
282.150 KR
Bifreið, sem eyðir 11 I ó 100 km:
188.100 KR.
Renault 4 Van,
sem aðeins eyðir 5,5 I ó 100 km:
94.050 KR.
Suðurlandsbraut 20 * Sími 8*66*33
JOHNS-MANVILLE
er nú sem fyrr vinsælasta og öruggasta glerull-
areinangrun á markaðnum i dag. Auk þess fáið
þér frian álpappir með. Hagkvæmasta
einangrunarefnið i flutningi. Jafnvel flugfragt
borgar sig.
Munið Johns-Manville I alla einangrun.
Sendum hverf á land sem er.
glerullar-
9 einangrun
Hringbrout 121 . Simi 10 600
COCKPIT
BRllun 260
Stereo-samstæða í sér gæðaflokki.
Ennþá fáanleg á eldra verði.
Sími sölumanns 18785.
L 480
30wött
7,9 lítra
eða
L 620
40 wött
15 lítra
RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS HF.
Ægisgötu 7 — Sími 17975/76