Tíminn - 06.04.1975, Blaðsíða 35

Tíminn - 06.04.1975, Blaðsíða 35
Sunnudagur 6. aprfl 1975. TÍMINN Í5 Mdnudagsmynd Hdskólabíós: Fræg ísraelsk kvikmynd — hlaut tilnefningu til Oscarsverðlauna 1973 gébé Rvik— Mánudagsmynd Há- skólabiós næstu mánudaga er israelska myndin „Rósa — ég elska þig”. Kvikmynd þessi hefur hlotið mest lof israelskra kvik- mynda siðan Israelsmenn hösl- uðu sér völl meðal kvikmynda- framleiðenda. Myndin hefur hvarvetna fengið frábærar við- tökur hjá gagnrýnendum og al- menningi, ekki aðeins fyrir leik og leikstjórn heldur einnig myndatökuna, sem bregður m.a. upp listrænum myndum, lir elztu hverfum Jerúsalemborgar. Aðalhlutverkið, Rósu, leikur 23 ára gömul leikkona, Michal Bat- Adam að nafni, en hún er nú ein þekktasta leikkona i ísrael, og hlaut hún verðlaun sem bezta leikkonan 1973 fyrir þetta hlut- verk. A móti henni leikur Gabi Ottermann, sem leikur piltinn Nissam, en leik hans hefur verið lýst sem „ótrúlega góðum”. Leikstjóri myndarinnar er Moshe Mizrahi sem er einn fremsti maður ísraels á sinu sviði. Efni myndarinnar byggist að nokkru á Móse-lögmáli, sem er mjög rikt i siðum og hugum ísra- elsmanna, þótt fornt sé orðið. Rósa er tvitug kona sem misst hefur mann sinn. Lögmálið segir, að hún verði að giftast mági sin- um, bróður manns sins, þvi ó- kvæntir bræður látins manns eiga að viðhalda ætt hans með þvi að kvænast ekkjunni. En hvernig á að hlýða þessu boðorði, þegar eini bróðirinn er aðeins 11 ára? A ekkjan að biða unz mannsefnið hefur náð 18 ára aldri, er orðinn myndugur og getur gert skyldu sina samkvæmt lögmálinu? Páskaferðalagíð endaði illa — urðu að skilja 4 jeppa eftir við Langjökul gébé Rvik — Um páskana fóru nokkrir menn frá Borgarnesi og nágrenni, i ferðlag á jeppum upp á Langjökul. Höfðu þeir með sér vélsleða og skildu bifreiðarnar eftir fyrir norðan Langjökuls- enda, og héldu til Hveravalla. Er mennirnir komu að bifreiðunum aftur reyndist ekki unnt að losa fjóra jeppa, en þeir voru festir i snjó. Nokkur snjókoma hafði ver- ið meðan mennirnir voru á Hveravöilum og neyddust þeir til að skilja bilana eftir. Eina ferð hafa mennirnir síöan farið til að sækja bifreiðarnar, en urðu frá að hverfa vegna þoku. Lagt var síð- an upp aftur um hádegi á föstu- dag, og mennirnir eru ekki vænt- anlegir fyrr en seinni hluta dags á laugardag. Það var á miðvikudagskvöldið var, að nokkrir menn lögðu upp til þess að freista að ná i jeppana fjóra. Þeir komust inn að Hólma- vatni þar sem þeir eyddu nóttinni I veiðikofa. Morguninn eftir, var komin svo mikil þoka, að þeir gátu ekki aðhafzt annað en að halda til byggða á ný. Kristleifur Þorsteinsson, Húsa- felli, fór með 8—10 mönnum um hádegi á föstudag til að ná i jepp- ana. Sigrún Bergþórsdóttir kona Kristleifs, sagði i viðtali við Tim- ann, að þeir væru ekki væntanleg- ir fyrr en i fyrsta lagi á laugar- dag. Sagði Sigrún, að þeir hefðu haft beltadráttarvél og snjósleða með I förinni. GUFUGLEYPIR FYRIRLIGGJANDI - VERÐ KR. 19.240- HEKLA HF. Laugavegi 170—172 — Simi 21240. Breytt skipan Bréfaskólans 1 fréttabréfi frá Sambandi is- lenzkra samvinnufélaga segir, að unnið sé að breyttri skipan Bréfaskólans. Eru aðilar að hon- um nú orðnir sex talsins: Sambandið, A.S.t. B.S.R.B., Far- manna og fiskimannasamband íslands, Stéttarsamband bænda, og Kvenfélagasamband íslands. Eignaraðild Sambandsins og A.S.l. er 30% en hinna fjögurra 10% og aðild að stjórn skólans i sömu hutföllum. Eftirtaldir menn hafa verið kosnir i skólastjórnina, en tvö félagasamtök eiga eftir að kjósa sina fulltrúa: Frá Sambandinu: Gunnlaugur P. Kristinsson, Axel Gislason og Ölafur Sverris- son, frá A.S.I: Bolli Thoroddsen, Stefán ögmundsson og Þórunn Valdimarsdóttir, frá B.S.R.B. Birna Bjarnadóttir og Danfel Guðmundsson frá Farmanna og fiskimannasambandi Islands. Skólastjóri Bréfaskólans er Sigurður A. Magr.ússon. Aðalfundur Krabbameinsfélags Vestur-Skaftafells- sýslu verður að Leikskálum i Vik, sunnu- daginn 13. april kl. 16. Stjórnin. Aðalfundur Dansk- íslenska félagsins verður haldinn i Norræna Húsinu þriðju- daginn 15. april n.k. og hefst kl. 20,30. Venjuleg aðalfundarströf. Að fundarstörfum loknum verður sýnd kvikmyndin „Kort over Danmark”. Stjórnin. Auglýsið Tímanum TEKKNESKA BIFREIDAUMBODID A ISLANDIH/E AUÐBREKKU 44 - 46 — SlMI 42600 LANGDRÆGAR BÍLATALSTÖÐVAR UNCXE mpttwsr.) rtAntorri rn «jnc m><no VSWWW>-vvv>v>*. XI XI XI XI aiimarr talstöövar i bíla, frá hinum heimskunnu amerísku f jarskipta- Clll I I Idl L tækjaverksmiöjum, er um árabil hafa framleitt fullkomnustu talstöðvar i farþegaflugvélar. 2irm2rr er6talrasa' kristalstýrðalsmárastöð (einungis transistorar), dll I I Idl L sem hentar íslenzkum aðstæðum einkar vel. Hún er langdræg, þolir mikinn kulda, lítil um sig, einföld i notkun, örugg, byggð úr sömu fullkomnu rafeindahlutunum og flugvélatalstöðvar. PlirmPirr'talstöð ma setia * bvaða bíl sem er og tala yfir landið þvert og dll I I Idl Lendilangt, hvort sem menn vilja beint á milli bíla eða um simakerfi Landssímans. Stöðin hefur hlotið samþykki Pósts- og simamálastjórnarinnar til notkunar hérlendis, samkvæmt reglum hins nýja SSB fjarskiptakerfis, en einn aðalkostur þess er margföld langdrægni á við eldra DSB kerfið. 3irmarrta,stöðvar eru ómissandi fyrir þá, er vilja vera i góðu og dll I I Idl L traustu talsambandi þegar nauðsyn krefur. oci&ai Laugavegi 178 simi 38000 Hagstætt verð — Leitið allra nánari upplýsinga

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.