Tíminn - 06.04.1975, Blaðsíða 37

Tíminn - 06.04.1975, Blaðsíða 37
Sunnudagur 6. apríl 1975. TÍMINN 37 Hvað er gert til að hindra flugrán og önnur rán, sem stofna oft fjölda manns í lífshættu? Er eftirlitið á flugvöilum og við landamæri nógu strangt? Þessu svarar blaðamaðurinn bandariski, Ron Layton með ákveðnu NEI-I. Hann ferðaðist með konu sinni og smyglaði vopnum — til að sanna mál sitt — milli þriggja heimsálfna, án þess hann væri tek- inn fastur i eitt einasta skipti. Fer frásögn hans hér á eftir. Vopn af öllum tegundum, banda- risk, þýzk, sovézk, kinversk og Israelsk, voru seld á lágu verði. t útstillingaborðum, var fjöldi af gulmáluðum vopnum, ásamt nokkrum i venjulegum lit, „sem ekki voru til sölu.” Afgreiðslufólkið leit mig grun- samlegum augum vegna mynda- vélarinnar sem ég bar, og var auðsjáanlega taugaóstyrkt vegna hennar, enda var mér bannað að taka myndir. En ég fékk aftur á móti leyfi til að kaupa 1920-likan af Thompson vélbyssu, sem glæpaflokkur A1 Capone gerði fræga á sinum tima, einnig Sterl- ing vélbyssu, — brúsa með al- gengri byssu-oliu og mikið af tómum patrónuhulstrum. Þau sýndu mér einnig hvernig vélbyssumar virkuðu og hvernig ætti að hlaða þær. Fljótlega smitaðist ég af ákafa vopnasafn- arans og flýtti mér á hótelið til að athuga feng minn nánar. Seinna fékk ég svarta Browning skammbyssu, sjálfvirka, senda á hótelið. Hvað myndi skæruliði hafa gert? En snúum okkur nú aftur að Haneda flugvellinum. Japönsku lögreglumennirnir voru aðeins nokkra metra frá mér. Hvað myndi skæruliði hafa gert I minum sporum? Hann myndi að sjálfsögðu ferð- ast með Pan Am flugfélaginu! Ég beygði farangursbörunum snar- lega til hægri og hélt yfir að af- greiðsluborði Pan Am. Þar voru engir lögreglumenn á verði og þar með var málið ákveðið. Ég skipti flugfarseðlunum yfir á bandariska flugfélagið, lét senda töskurnar minar og vopna-pakk- ann um borð I flugvélina og hálf- tima seinna sat ég um borð i vél, sem átti að halda til Hong Kong. Ég hallaði mér þægilega aftur á bak i sætinu og fór að hugsa um hvernig ég ætti að smygla vopn- unum f gegn um hið stranga eftir- litsem viðhaft er i brezku nýlend- unni I Kina. Stuttu eftir að flugvélin lenti fór ég i gegnum vegabréfaeftirlitið, og þvi næst kom farangur farþeg- anna, — þar á meðal vopnin min — inn i salinn á færibandi. Hvern af tollvörðunum ætti ég að velja og reyna að komast fram hjá? Ég kom fljótlega auga á ungan tollvörð, þar sem.hann stóð, og honum leiddist auðsjáanlega. Hann tók við fyrirmælum frá eldri tollverði, sem gaf fyrirskip- anir i allar áttir. Stundum lét ungi maöurinn erlenda farþega fara hjá án þess að lita á farangur þeirra. Þetta var minn maður! Ég tók aðra töskuna mina og setti hana upp á borðið fyrir framan tollverðina, og þegar ungi maðurinn ætlaði að fara að opna hana, sneri ég við, hljóp að færibandinu og náði i hina töskuna, en á meðan þurftu farþegamir i röðinni á eftir mér að biöa. Gamli tollvörðurinn kallaði til min að flýta mér, þvi ég taföi fyrir hinum farþegunum. Ég stanzaði og tók eina mynd af honum. Tollvörðurinn varð ösku- vondur, en það var einmitt ætlun- in. Ég þóttist ekki heyra i honum, setti hina töskuna fyrir framan unga tollvörðinn og hljóp siðan aftur að færibandinu til að ná i pappaöskjuna með vopnunum. Gamli tollvörðurinn horfði á reiðilegur á svip og hristi höfuðið yfir atferli þessa brjálaða banda- riska ferðamanns. Þegar ég kom svo með öskjuna til unga tollvarð- arins, veifaði hann mér i gegn um toileftirlitið án þess að lita á far- angur minn. Ég var sloppinn i gegn. Næsta skref var svo að koma vopnunum til Bandarikjanna. Ég gat ekki sent þau sem fragt, þvi allt slíkt er rannsakað I röntgen- tækjum. Nokkrum dögum seinna sendi ég farangurinn með skipi. Vopnapakkinn var þá á botni stórrar ferðatösku. Farangurinn var fyrst væntanlegur til Miami i Bandarikjunum eftir einn mánuð. Fyrirlækið Replica Models Inc. er til húsa i kassa-lagaðri bygg- ingu við Franklin Street i Alex- andriu, Virginia. Byggingin er greinilega byggð með það fyrir augum að vera sem sterklegust og öruggust. Þúsundir af eftirlik- ingarvopnum eru geymd þar, og fullkomið elektroniskt þjófakerfi er I byggingunni. Eigandi þessa fyrirtækis og for- stjóri, milljónamæringurinn Tom Nelson, vildi i fyrstu'ekki gefa mér viðtal, hvað þá að láta taka af sér mynd, en að síðustu gaf hann eftir, með viðtalið. — Fyrirtæki okkar gengur stór- kostlega vel, sagði hann. — Við framleiðum sjálfir vopn i Japan og Formósu og árlega seljum við mörghundruð þúsund vopn til allra heimshluta. Bezta sölu- varan i augnablikinu eru gömul vopn frá kúreka-timanum. — Við eigum vörur á markaðinum i öllum evrópskum löndum, já, jafnvel á Spáni, þar sem innflutningslögin eru mjög ströng, sagði Nelson. — Ég efast ekki um að eitthvað af þessum vopnum er notað til rána, en væri það ekki gott að glæpamenn notuðu alltaf eftirlikingarvopn til rána sinna? Þá myndu, jú enginn særast! Hann gaf mér bréf frá verzlunarráöuneytinu, sem „gaf honum grænt ljós” fyrir þessa starfsemi sina. Eftir þessa heimsókn, fór ég til Florida, til að freista þess að smygla japönsku vopnunum i gegn um bandariska tollinn. Hver sér muninn? — Opnið töskurnar! skipaöi tollvörðurinn. Hann grunaði mig bersýnilega um smygl. Hann gróf vopna-pakkann upp úr töskunni Vopnaverzlun I Tokyo. Lögreglustjórinn Rocky Pomerance á Miami Beach ásamt aðstoöarmanni sinum Larry Cotzin, athuga vopnin. Laytner-hjónin sýna hér töskuna og vopnin sem þau smygluðu um þvera og endilanga Evrópu. Til hægri á myndinni eru Laytner-hjónin meö vopnin á nýja flugvellin- um I Paris. og skipaði mér að opna hann. — Þér verðið mjög undrandi þegar þér sjáið hvað er i honum, sagði ég og tók eftir að hendur minar skulfu. — Sjáið til, þetta er eins konar tómstundastarf mitt. Þetta eru likan af vopnum — ekkert til að fjargviðrast yfir. Siðan sýndi ég honum bréfið frá ráðuneytinu. Hann las það vandlega, rann- sakaði siðan vélbyssurnar af miklum áhuga og sagði að þær væru listasmiði. Siðan rann- sakaði hann töskur minar betur. Hann hafði greinilega meiri áhuga á að finna fíkniefni. Að siðustu kvaddi hann mig og fór heim að borða. Ég var kominn i gegn. Bréf Nelsons hafði gert kraftaverk. Hvað hefði gerzt ef einhver hermdarverkamaður heföi getað notfært sér það og verið með ekta japanska byssu? Hver hefði séð muninn? Ég tók siðan vopnin og hélt til Miami, þar sem ég ákvað að lofa reyndum lögreglumönnum að skoða þau. Lögreglustjórinn i Miami Beach heitir Rocky Pomerance og er mjög ákveðinn maður. En þegar ég fór að spyrja nærgöngr ulla spuminga um vopnaeftirlit og bauðst til að ná i nokkur út I bil, þá kallaði hann á menn til að- stoöar. Eftir nokkrar minútur kom ég með vopnin i svörtum gitarkassa inn á skrifstofuna aftur, en þar voru þá staddir, auk Rocky, að- stoöarlögreglustjórinn Larry Cot- zin og fiknilyfjasérfræðingurinn frá FBI, Ivan Wurms. Tveir þeir siðarnefndu voru vopnaðir. Hægt og varlega, og án þess að koma nálægt gikknum, þá tók ég Thompson-vélbyssuna út úr kass- anum. — Þér eruð handtekinn! — Hamingjan góða, þetta er Thompson! kallaði Cotzin upp. — Þér eruð handtekinn, sagði Pomerance, ef þér hafið ekki byssuleyfi. Þögn rikti, meðan ég rétti Cotzin vélbyssuna sem rann- sakaði hana gaumgæfilega. — Augnablik, sagði Cotzin, sem er sérfræðingur um vopn, Þetta litur út..Þetta er llkan! Þú gætir rænt banka með þetta að vopni! Ég opnaði kassann til fulls. — Meinið þér að þetta séu allt eftirlikingar! spurði Pomerance. Þetta er hreint og beint ótrúlegt. Lögreglumaður, sem sæi yður með svona vopn i höndum, myndi halda að þér ætluðuð að skjóta hann, og þvi gripa sjálfur til vopna. Á þessu augnabliki gekk yfir- varðstjórinn Dennis Goddard inn á skrifstofuna. Undrunarsvipur færðist yfir andlit hans þegar hann sá vopnin. Pomerance spurði hann hvað hann myndi gera, ef einhver heföi miðað á hann Thompson vélbyssunni. — Ég myndi skjóta hann niður, þegar i stað, svaraði yfirvarð- stjórinn. Til Evrópu með vopn. Ég bjóst við að ég myndi lenda i erfiðleikum með að senda vopnin frá Bandarikjunum til Evrópu, en þar hafði ég rangt fyrir mér. Á alþjóðaflugvellinum i Miami, hafði enginn áhuga á töskunni með vopnunum, sem komið var með öðrum vörum um borð i risaþotuna DC 10, sem ’átti að flytja okkur til Spánar. Flugvélaræningi hefði ekki lent i neinum vandræðum þarna, þvi að þarna var hreint og beint ekk- ert öryggiseftirlit. Við biðum i langri röð þangað til okkur var hleypt um borð i vélina, og ég hefði getað haft með mér stóra handtösku fulla af vopnum og sprengiefni. Það var furðulegt að fylgjast með þessu eftirlitsleysi. Morguninn eftir fékk ég annað állka furðulegt efni til umhugs- unar. Ég hafði heyrt mikið um hve öryggiseftirlitið I Madrid væri strangt, og rétt var það að þama voru vopnaðir verðir. Toll- verðirnir litu út. fyrir að vera harðskeyttir náungar, en þegar ég kom nær þeim, sá ég að þeir litu mjög þreytulega út. Þeir litu aöeins ofan i litla handtösku sem ég bar, en hún var full af timarit- um og dagblöðum og þóttust þar með búnir að skoða farangur okkar. Ferðist maður með lest i Suður- Evrópu, er auðvelt að smygla vopnum með sér. Það eru að visu tollverðir við öll landamæri en þeir opna sjaldan eða aldrei farangur ferðafólks. Bæði ítalir og Spánverjar hafa átt i vandræðum með skæruliða, en engin vandræði mættu okkur á leiðinni frá Madrid til Barcelona, og frá Sviss reyndist mjög auö- velt að komast til ttaliu. Farang- urinn var ekki rannsakaöur i eitt einasta skipti. Þegar við komum á Orly-flugvöllinn i Paris, vorum við mjög taugaóstyrk. Við höfö- um lesið um hinar umfangsmiklu varúðarráðstafanir, sem toll- verðir þar viðhöfðu, en þar var taskan með vopnunum ekki held- ur opnuð. Án nokkurra erfiðleika var henni komið fyrir i flugvél- inni, sem flutti okkur til London. En rétt skal vera rétt, — við sjálf vorum rannsökuð gaumgæfilega áður en við fengum að fara um borð I flugvélina, enginn heföi getað smyglað hinni minnstu gerð af skammbyssu á sér. A Heathrow-flugvelli komu enginn vandamál upp, þrátt fyrir að miklar varúðarráöstafanir hefðu átt að vera þar, eftir þvi sem viö höfðum heyrt. Við kom- um okkur fyrir á einu af stærstu hótelunum I London og settum töskuna með vopnunum inn i klæðaskáp. Á sama tima voru lögreglumenn frá Scotland Yard að leita að skæruliðum frá irsku samtökunum IRA i götum borgarinnar. Þegar við yfirgáfum London, þurftum við að fara I gegnum strangasta farþegaeftirlitið, sem við höfðum lent i til þessa. Orsök- in var sú, að einn af meðfarþeg- um okkar, hafði gleymt regnhllf sinni I veitingastofu flugvallarins. Þegarhann ætlaði að hlaupa til að ná I hana, óttuðust tollverðirnir að hann skildi eitthvað ólöglegt eftir i skjalatöskunni, sem hann haföi lagt á borðið fyrir framan þá. Taskan var opnuð með ýtr- ustu varkárni — en þar reyndist engin sprengja, heldur aðeins nokkur dagblöð. Og við héldum áleiðis til Paris. Farangurinn slapp enn einu sinni i gegn. Hinn nýi flugvöllur frönsku höfuðborgarinnar, er nefndur eft- ir Charles de Gaulle, og er mjög nýtízkulegur. Og tollverðirnir eru strangir. — Eruð þér með nokkuð ólöglegt? spurði tollvörðurinn mig. — Nei, svaraði ég sakleysis- lega. Ég var viss um að ég myndi vera heppinn einnig núna. En tollvörðurinn hikaði og horfði rannsakandi á mig. Mér krossbrá og fór að liða illa. Nú voru góð ráð dýr. Meiri Frakki en toll- vörður — Það er þá bara konan min, sagði ég i flýti. Og það gerði út um málið. Embættissvipur tollvarð- arins breyttist i bros, og hann lyfti hendinni að kaskeitinu i viröingarskyni við konu mina. Hann var þrátt fyrir allt meiri Frakki en tollvöröur. Frá Paris ferðuðumst við með lest til Þýzkalands. Þýzku toll- verðirnir voru ákveðnir en gerðu litið. í Hamborg tókum við bifreið á leigu og héldum noröur á bóg- inn. Aiit gekk eins og I sögu, þeg- ar við fórum yfir landamærin til Danmerkur, Sviþjóðar og Nor- egs, Frá Osló héldum við ferð okkar áfram til Stokkhólms, og þaðan með skipi til Helsinki. Finnsku tollverðirnir létu sér nægja að skoða vegabréf okkar. En þegar við komum með flugvél aftur til Stokkhólms, hélt ég eitt augnablik aö nú yrðum við stöðv- uö. A Arlanda-flugvelli var mað- urinn, sem var á undan mér í röð- inni, heldur betur tekinn I gegn. Verðirnir höfðu gjörsamlega endaskipti á farangri hans og mér leið bölvanlega þar sem ég stóð með vopna-töskuna við hlið mér. Endanlega var mér þó veifað i gegn, og hafði því heppnina með mér einu sinni enn. Þegar ég skrifa þetta, er ég staddur á heimili minu i Banda- rikjunum, og vopnin eru komin i safn mitt af vopnum frá öllum heimshlutum. Ef til vill mun þessi frásögn vekja umhugsun hjá ein- hverjum svo að unnt verði að hindra nokkur flugvélarán? Bjarga mannslifum? Það vona ég, þvi að grein min mun birtast i mörgum löndum, á mörgum tungumálum, sem fá vonandi yfirvöldin til að vakna. (Þýð.GB.)

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.