Tíminn - 06.04.1975, Síða 31
Sunnudagur 6. apríl 1975.
TÍMINN
31
HLJÓAAPLÖTUDÓMAR
NÚ-TÍAAANS
★ ★ ★ ★ ★
fannst, aö betur mætti fara.
Það er ekki á hverjum
morgni, sem fjársjóöi rekur
á fjörur mlnar. Svo er þó aö
þessu sinni og fjársjóðurinn,
sem ég nefni svo, er plata
Gene Clark: Coliector Seri-
es: Early L.A. Sessions.
Plötu þessa gerði Gene
Clark á árunum 1966-1967
(kom út 1967) og hét hún
,,Gene Clark with the Gosdin
Brothers”. A plötunni eru
honum til aðstoðar menn
eins og Chris Hillmann,
Doug Dillard, Jerry Kale,
Leon Russel og Clarence
White.
Platan þótti á sinum tlma
vera töluvert á undan sinni
samtið, og þvi fór fyrir henni
eins og mörgum öörum
undan-samtlðarpiötum, að
hún seldist lítið.
Það var slðan á þvi herr-
ans ári 1972, að forráöamenn
CBS töldu, að nú væri rétti
timinn til að endurútgefa
plötuna.
Hún var þá hljóöblönduð á
ný, og Gene Clark lagfærði
ýmislegt, sem honum
★ ★ ★ ★ ★
Slöan var hún gefin út undir
nafninu: „Collectors Series:
Early L.A. Sessions. Núna,
— þremur árum eftir að hún
var gefin út i Bandarlkjun-
um, — kemur hún hingað til
lands I fyrsta sinn.
Þessi plata er gott dæmi
um þá miklu breytingu og
áhrif, sem The Byrds höfðu á
þróun rokktónlistar á þess-
um árum, þvi eins og kunn-
ugt er var Clark einn af
stofnendum The Byrds, en
hann og Roger McGuinn áttu
mestan þátt I mótun og sköp-
un tónlistar The Byrds á ár-
unum 1964-1966.
Early L.A. Sessions er einn
af gimsteinum bandarlskrar
West-Coast-rokk tónlistar,
þar sem vandvirkni og mikl-
ir hæfileikar ganga ljósum
logum I hverju lagi.
Þessi plata Gene Clark
hefur sögulegt gildi hvað
þróun tónlistar síöara ára-
tugs áhrærir og á plötunni er
að finna rætur margs sem
við hlustum á þessa dagana.
— G.G.
★ ★ ★ ★
★ ★ ★ +
Gerðu það, þar til þú ert orð-,
inn ánægður (Do it ’till you-
’re satisfied) — þetta lag
með soul-hljómsveitinni B.T.
Express hefur klifið flesta
vinsældarlista vestra og við-
ast hvar náð á tindinn. Áður
en lagið var gefið út, var
hljómsveitin fáum kunn, en I
þeim efnum hafa heldur en
ekki orðið þáttaskil.
Hljómsveitin sem er skip-
uð sjö manns, sex körlum og
einni konu, var nauðbeygð til
að láta meira I sér heyra, og
útkomuna úr þvi dæmi er að
finna á þessari LP-pIötu sem
að sjálfsögðu ber heiti hins
fræga lags.
Þótt ýmislegt sé að finna á
þe ssari plötu, sem hæla
mætti, virðist sem platan
hafi verið gerð I flýti til að
fylgja eftir vinsældum ,,Do
it....” — ogsum þeirra eru að
minum dómi mun athyglis-
verðari en hið fræga lag. Það
breytir þvi hins vegar ekki,
að slik vinnubrögö eru
stórvarasöm, eins og mörg
dæmi hafa sannað. Soul-tón-
list B.T. Express hefur þó
yfir sér ákveðinn „sjarma”,
flutningur tónlistarinnar er
með miklum ágætum og
þrátt fyrir gallana er þvl
ekki að neita, að hljómsveit-
in er ein af betri soul-hljóm-
sveitunum vestra. — G.S.
★ ★ ★ ★ ★
Upp úr 1970 kom fram I
Bandarikjunum nýtt afbrigði
soultónlistarinnar, svonefnt
soul-rokk. Earth, Wind and
Fire var ein af fyrstu hljóm-
sveitunum, sem hófu að leika
I soul-rokkstll, en áður hafði
hljómsveitin gefið út nokkr-
ar soul-plötur. Hljómsveitin
hefur aldrei vakið heimsat-
hygli en engu að slður er hún
vel þekkt I sinu heimalandi.
A íslandi þekkja hana fáir.
Driffjaðrir hljómsveitar-
innar eru bræðurnir Maurice
og Verdine White, en skraut-
fjaörirnar eru öllu fleiri.
Tónlistin sver sig I ætt við
það bezta, sem gert hefur
verið I soul-rokki, án þess þó
að nokkur hljómsveit eða
listamaður sé stæld þannig
að Earth, Wind and Fire
hljóti lýti af. Þeir virðast
kunna þá list að tileinka sér
aðeins það bezta frá öðrum,
s.s. Stevie Wonder, Billy
Preston, Sly and Family
Stone, — og sem skapandi
soul-rokktónlistarmcnn hafa
fáir komizt með tærnar þar
sem þeir hafa hælana.
Earth, Wind and Fire er
afburðahljómsveit með hrif-
andi tónlist,
G.S.
Það hefur löngum veriö út-
breidd skoðun hjá þorra
manna, að sú tónlist, er köll-
uð hefur verið jass-rokk eða
framúrstefnu-jass, sé eitt-
hvað voðalega tormelt, og
fráhrindandi. Fyrir alla þá
er ganga með slikar grillur,
er aðeins til eitt ráð:
Það er að fá sér eins og eitt
eintak af nýrri plötu Ramsey
Lewis, „Sun Goddess”, og
vlkka þar með sinn eigin
sjóndeildarhring, — eða öllu
heldur sinn eigin hljómdeild-
arhring.
A „Sun Goddess” flytur
Ramsey Lewis létta og
skemmtilega
„framúrstefnu”, þar sem
synthesizer og pianó leika
aðalhlutverkin, með dyggi-
legum stuðningi frábærs
bassaleikara og trommu-
leikara. A plötunni heyrist
einnig mikið I hefðbundnum
málmblásturshljóðfærum og
gítar er mikið notaður.
„Sun Goddess” er ákaf-
lega vönduð og forvitnileg
plata, sem ....án þess að
hlusta á. — G.G.
Jesse Colin Young, fyrrum
söngvari og aðalsprauta
hljómsveitarinnar Young-
bloods, er búinn að senda frá
sér nýja plötu, er hann nefnir
„Songbird”.
Þetta er þriðja sólóplata
Jesse Colin Youngs, og eins
og á hinum fyrri, bregzt hon-
um ekki bogalistin, hvað
gæði tónlistarinnar snertir,
— og vandvirkni. Enda fer
hann troðnar slóðir og leikur
þá tónlist, er hann átti mik-
inn þátt I að skapa, svonefnt
soft-rokk.
Sem fyrr er það sérstæð og
hljómfögur rödd Youngs, er
heillar mann mest ásamt
hinni miklu vandvirkni, er
liggur I öllum undirleik plöt-
unnar, þótt hann megi ef-
laust kallast eilitið hefð-
bundinn. En hvað um það, —
undir undirspilið fellur mjög
vel við falleg lög Youngs, og
útkoman er stórgóð.
Songbird er gullfalleg
plata og lifleg og minnir
mann á að sumarið er I nánd.
G.G.
í Hljómplötudeild Faco hefur lánað Nú-
tímanum þessar plötur til umsagnar
SAAASTARF
Við bjóðum góð greiðslukjör gegn
því að menn festi sér hús sem fyrst
og greiði inn á þau
ENSK SUMARHÚS
A-line — 5 tegundir —
Ótrúlega hagstætt verð
HJÓLHÝSI ÁRGERÐ 1975
Þýzk: Jet 3 tegundir — TE 3 tegundir
Ensk: Cavaliae 5 tegundir — Monza 7
— Scout2
Tjaldvagnar
Amerískir: Steury 2 tegundir —
Coleman 2 tegundir
Þýzkir: Camptourist
Af því takmarkaða magni — sem
kemur á þessu ári — er hluti kominn
Gísli Jónsson & Co. hf.
Sundaborg — Klettagöröum 11 — Simi 86644