Fréttablaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
LAUGARDAGUR
ÁRSAFMÆLI Landsnefnd UNICEF býður
til barnaafmælis í tilefni af eins árs afmæli
sínu í dag. Afmælið verður í Skaftahlíð 24
milli 15 og 16 og verður boðið upp á af-
mælisköku, djús og blöðrudýr frá dýpstu
frumskógum Afríku.
DAGURINN Í DAG
12. mars 2005 – 69. tölublað – 5. árgangur
HAFÍS VIÐ GRÍMSEY Grímseyingar
sóttu í gær vír til Dalvíkur og var ætlunin að
strengja hann fyrir höfnina til að verja báta
og hafnarmannvirki fyrir hafís sem nálgast
eyjuna. Sjá síðu 2
KASPAROV HÆTTIR Skáksnillingur-
inn Garrí Kasparov segist hættur tafl-
mennsku þar sem hann hafi ekki lengur
að neinu að stefna á þeim vettvangi.
Hann ætlar að helga sig stjórnmálabaráttu
í Rússlandi. Sjá síðu 4
SAMSTARFIÐ YRÐI SKRÝTIÐ For-
maður Félags fréttamanna segir vanda-
samt að sjá hvernig samstarf fréttamanna
og nýráðins fréttastjóra geti gengið upp
án átaka og sérkennilegra vinnubragða.
Sjá síðu 2
Kvikmyndir 54
Tónlist 50
Leikhús 50
Myndlist 50
Íþróttir 42
Sjónvarp 56
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Viðar Friðfinnsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Hefur átt
hundrað bíla
● bílar
151.000
117.000
*Landið allt skv. fjölmiðlakönnun Gallups, feb. 2005.
Fjöldi lesenda
á laugardögum*
VEÐRIÐ Í DAG
ÞAÐ VERÐUR SVELLKALT Í DAG
OG NÆSTU DAGA og blæs af norðri.
Bjart og þurrt syðra en lítilsháttar él fyrir
norðan. Sjá síðu 4
Dan Rather hættur störfum:
Í örmum
almættisins
SÍÐA 30
▲
Ein radda guðs
horfin á braut
SÍÐA 28
▲
Frægir tónlistarmenn snúa
baki við tónlistinni:
VIÐSKIPTI Hópur íslenskra fjár-
festa hefur keypt tvö spænsk
lyfjafyrirtæki sem sérhæfa sig í
þróun og framleiðslu samheita-
lyfja. Íslenska fyrirtækið Invent
Farma kaupir fyrirtækin, en for-
ystumaður hópsins er Friðrik
Steinn Kristjánsson, stofnandi
Omega Farma sem nú tilheyrir
samsteypu samheitalyfjafyrir-
tækisins Actavis.
Velta félaganna er 4,5 milljarð-
ar króna, en þau voru samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins í eigu
risafyrirtækisins Procter &
Gamble. Kaupverð er trúnaðar-
mál, en gera má ráð fyrir að verð-
mæti viðskiptanna liggi á bilinu
sjö til átta milljarðar króna.
Fyrirtækin Inke og Laboratori-
os Lesvi eru í Barcelona og starfa
samtals hjá þeim 290 manns. Inke
sérhæfir sig í þróun og framleiðslu
virkra lyfjaefna og á fjölda fram-
leiðslueinkaleyfa. Helstu markaðir
þess eru í Evrópu, Bandaríkjunum
og Japan. Laboratorios Lesvi fram-
leiðir samheitalyf, bæði undir eig-
in vörumerkjum á Spáni og undir
vörumerkjum annarra. Sam-
kvæmt íslensku fjárfestunum
hefur Lesvi náð merkum áföngum
í þróun á margvíslegum samheita-
lyfjum. Með félögunum fylgja við-
skiptasambönd, en meðal við-
skiptavina eru lyfjafyrirtækin
Bayer, Merck sem á í samstarfi við
Decode, Ratiopharm, Sandoz og
Stada.
Allir lykilstarfsmenn fyrirtæk-
isins halda áfram störfum hjá
fyrirtækinu og hafa tekið tilboði
íslensku fjárfestanna um kaup á
þrettán prósenta hlut í félaginu.
Invent Farma er alfarið í eigu
íslenskra fjárfesta, en auk Frið-
riks eru meðal annarra í eigenda-
hópnum Jón Árni Ágústsson, fyrr-
verandi stjórnarmaður Omega
Farma, Ingi Guðjónsson, forstjóri
Lyfju, og Frosti Bergsson, stofn-
andi og fyrrverandi stjórnarfor-
maður Opinna kerfa.
Fyrirvarar eru í kaupsamn-
ingnum um samþykki samkeppn-
isyfirvalda á Spáni og er gert ráð
fyri að afstaða þeirra liggi fyrir í
apríl. Fyrirtækjasvið KB banka
hafði milligöngu um kaupin og
lánar bankinn til þeirra. - hh
Íslensk milljarðakaup í
lyfjaverksmiðju á Spáni
Íslenskir fjárfestar hasla sér völl í samheitalyfjaframleiðslu á Spáni með kaupum á tveimur lyfja-
verksmiðjum sem voru í eigu risafyrirtækisins Procter & Gamble. Kaupverðið er trúnaðarmál,
en gera má ráð fyrir að verðmæti viðskiptanna sé á áttunda milljarð króna.
SÖNGKEPPNI „Ég er himinlifandi.
Þetta er árangur sem mig
dreymdi ekki fyrir,“ segir Hildur
Vala Einarsdóttir, sem í gær bar
sigur úr býtum í Idol-stjörnuleit á
Stöð 2.
Hildur segist ekki hafa gert sér
grein fyrir því að staðan væri
hnífjöfn og ekki verið viss um
sigur fyrr en hún heyrði nafn sitt
nefnt þegar úrslitin voru tilkynnt
í gærkvöldi.
Hún atti kappi við Aðalheiði
„Heiðu“ Ólafsdóttur og hafði
betur í kosningu þar sem litlu
munaði þrátt fyrir að 135 þúsund
atkvæði væru greidd.
Hildur Vala söng lögin The Boy
Who Giggled So Sweet, Slappaðu
af og Líf; frumsamið lag Jóns
Ólafssonar við texta Stefáns
Hilmarssonar.
Hildur Vala er önnur Idolstjarn-
an á Íslandi, en Kalli Bjarni vann
Idolkeppnina í fyrra, sem var sú
fyrsta sem haldin var hérlendis.
Mikil stemning var í Smára-
lindinni í Kópavogi þar sem
keppnin fór fram. Hún bliknaði þó
í samanburði við kosningavökur
sem fóru fram, annars vegar á
Hólmavík þar sem stuðningsmenn
Heiðu voru og hins vegar í
Reykjavík þar sem stuðnings-
menn Hildar Völu voru saman
komnir. -aöe/-bþg
Hörkuspennandi keppni þar sem 135 þúsund atkvæði voru greidd:
Hildur Vala hrósaði sigri
● sýnd í borgarleikhúsinu
Houdini-sýning á Íslandi:
▲
SÍÐA 32
Töfrabrögð, sirkus-
listir, leikur og dans!
● endanlega staðfest
Stórtónleikar í Kaplakrika:
▲
SÍÐA 58
Franz Ferdinand
til Íslands
● segir ólafur stefánsson leikmaður ciudad
Meistaradeildin í handbolta:
▲
SÍÐA 54
Verðum að vinna
þessa keppni
Morgunblaðið:
Átök um
Árvakur
VIÐSKIPTI Hluthafar í Árvakri, út-
gáfufélagi Morgunblaðsins, vilja
ekki að nýr hópur fjárfesta, með
Meið og Einar Sveinsson innan-
borðs, eignist hlut í félaginu. Nú-
verandi hluthafar hyggjast nýta
forkaupsrétt á um sextán prósenta
hlut sem tilboð hefur verið gert í.
Hópur núverandi hluthafa með
Kristin Björnsson, stjórnarfor-
mann Straums, í fararbroddi legg-
ur áherslu á að þeir hlutir sem séu
falir falli í hendur núverandi hlut-
hafa en ekki utanaðkomandi aðila.
Þeir eru ósáttir við að stjórnarfor-
maður Íslandsbanka, viðskipta-
banka Morgunblaðsins, geri nafn-
laust tilboð í hlut í félaginu.
Fjárfestahópurinn er mjög
undrandi á neikvæðum viðbrögð-
um núverandi hluthafa. - hh / – þk
Sjá síðu 20
ÚRSLITIN TILKYNNT Hildur Vala Einarsdóttir, til vinstri, og Aðalheiður Ólafsdóttir, til hægri, biðu úrslitanna spenntar. Hildur fagnaði
þegar úrslitin voru tilkynnt á tólfta tímanum í gærkvöldi. Hún segist hafa gert sér vonir um sigur en ekki verið viss um hann fyrr en
úrslitin voru kynnt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M