Fréttablaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 28
D an Rather hætti sem aðalfréttaþulur CBS- sjónvarpsstöðvarinnar eftir 24 ára starf síð- asta miðvikudag, að sumra mati á lágpunkti ferils síns. Kvöld- fréttir CBS höfðu dregist aftur úr kvöldfréttum ABC og NBC í áhorfi og alvarleg mistök starfs- manna CBS við gerð fréttar í miðri kosningabaráttunni síðasta haust um meinta forrétt- indameðferð George W. Bush í Þjóðvarðliðinu fyrir rúmum þremur áratugum ollu Rather miklum álitshnekki. Rather lét af starfi aðal- fréttaþular 24 árum upp á dag eftir að hann tók við af Walter Cronkite, sem nýtur hvað mestr- ar virðingar bandarískra frétta- manna fyrr og síðar. Þar með lauk lengsta samfellda starfs- ferli nokkurs aðalfréttaþular stóru sjónvarpsstöðvanna. Rather, Peter Jennings á ABC og Tom Brokaw sem hætti fyrir skömmu sem aðalfréttaþulur NBC voru andlit fréttastofa sinna um tveggja áratuga skeið, risarnir í bandarískum sjón- varpsfréttum sem stundum voru kallaðir rödd guðs. Jenn- ings er einn eftir og óvíst hvað verður á CBS þar sem talað er um að tveir eða fleiri fréttaþulir segi fréttirnar í framtíðinni. Tími aðalfréttaþulanna kann því fljótt að vera á enda. Gifturíkur ferill Rather á að baki hálfrar aldar feril sem hefur um margt verið gifturíkur. Hann varð fyrstur til að segja frá því að John F. Kenn- edy Bandaríkjaforseti væri lát- inn, flutti fréttir af réttindabar- áttu þeldökkra í suðurríkjum Bandaríkjanna, fjallaði um Watergate og Víetnam auk þess að læðast inn í Afganistan í dul- argervi eftir innrás Sovét- manna. Síðar, eftir að Rather varð aðalfréttaþulur CBS tók hann mörg viðtöl sem vöktu athygli. Þannig varð hann til að mynda fyrstur manna til að fá viðtal við Saddam Hussein eftir innrás Íraka í Kúvæt. Hann var líka þekktur fyrir að eiga það til að skipta skapi ef honum þótti sér eða fréttastofu sinni misboðið. Þegar yfirmenn CBS ákváðu að sýna frá tennisleik sem fór í framlengingu í stað þess að byrja fréttir á réttum tíma reiddist hann svo mjög að hann gekk út úr fréttaverinu og neitaði að flytja fréttir það kvöldið. Í fyrra flutti Rather fréttina þar sem fyrstu myndirnar birt- ust af pyntingum fanga í Abu Ghraib. Hann flutti líka fréttina þar sem stuðst var við skjöl sem áttu að sýna fram á að Bush Bandaríkjaforseti hefði notið forréttinda í Þjóðvarðliðinu, en síðar kom í ljós að skjölin væru að öllum líkindum fölsuð. Eitur í beinum repúblikana Repúblikanar töldu fréttina um Bush staðfesta grun sinn: að Rather væri andvígur repúblikönum og þótti þeim fréttaflutningur hans til marks um þetta. Þar vísuðu menn til samskipta Rather og tveggja fyrrum forseta. Hann þótti að- gangsharður í spurningum sín- um gagnvart Richard Nixon þegar Watergate-hneykslið var í hámæli og þegar hann tók viðtal við George Bush eldri árið 1988 reitti hann varaforsetann þáver- andi til reiði. Fyrra atvikið fór sérstaklega fyrir brjóstið á repúblikönum. Þá spurði Rather aðgangs- harðrar spurningar þannig að þeir sem heyrðu ýmist klöppuðu eða bauluðu á Rather. Nixon spurði Rather á móti: „Are you running for something?“ eða „Ert þú í framboði til einhvers?“ Rather svaraði á móti: „No, are you?“ sem var túlkað, í ljósi þess að Nixon gat ekki boðið sig fram aftur, að Rather væri að spyrja forsetann hvort hann væri að hlaupa í felur. Þessu til viðbótar nefna repúblikanar að Rather hafi komið upp um sig þegar hann var viðstaddur fjáröflunarsam- komu demókrata sem dóttir hans skipulagði. Forverinn ósáttur Það voru ekki aðeins repúblikanar sem gagnrýndu Rather. Walter Cronkite, maður- inn sem Rather tók við af fyrir 24 árum, var harðorður um eftirmann sinn í viðtali á CNN fyrir skömmu. Cronkite sagði það hafa verið tilfinningu sína, og fleiri einstaklinga sem tengd- ust CBS, að Rather væri að leika hlutverk frekar en einfaldlega að segja fréttirnar. Cronkite furðaði sig einnig á því að stjórnendur CBS hefðu haft Rather jafn lengi við stjórnvölinn og raun ber vitni þrátt fyrir að fréttatíminn hefði tapað áhorfi og dregist aftur úr hinum stóru stöðvunum, ABC og NBC. Svarar fyrir sig Dan Rather svaraði hluta gagn- rýninnar sem hann hefur sætt, í þætti um feril hans sem sendur var út daginn sem hann hætti. „Ein aðferð til að dæma frétta- mann er hversu oft og hversu vel hann stendur keikur gegn þeim sem reyna að hræða hann. Sýnið virðingu, verið kurteis en spyrjið spurninganna. Spurðu fjandans spurningarinnar! Hvers konar fréttamaður er það sem spyr ekki og krefst svars?“ Þessi orð hans eru í beinu framhaldi orða sem hann lét falla í þætti David Letterman. Þar sagðist hann óttast að of margir fréttamenn hefðu ekki kjark til að vera aðgangsharðir við ráðamenn af ótta við að vera sviptir aðgangi að þeim. Þá hafði hann lokið við að lýsa því hvernig öryggisvörður á flokksþingi demókrata 1968 barði hann fyrir að spyrja hvers vegna verið væri að draga þing- fulltrúa á brott. Langlífir aðalfréttaþulir Athygli vekur að þeir Rather, Jennings og Brokaw eiga allir að baki meira en tvo áratugi sem aðalfréttaþulir. Þetta telja ýmsir of langan tíma. Joan Walsh, ritstjóri vefritsins Salon, fjallaði um brotthvarf Rather á dögunum. Hún vék að gagnrýninni sem dundi á Rather vegna mis- takanna við vinnslu fréttarinnar um meint forréttindi Bush. Hún sagði þau mistök kunna að hafa flýtt fyrir brottför Rather en að þau væru ekki ástæðan fyrir henni. „Dan Rather er að hætta vegna þess að hann er 73 ára,“ segir hún. „Hann hættir ári seinna en hann vildi en senni- lega fimm árum síðar en hann hefði átt að gera.“ Hún vísar til þess að áhorf á fréttir CBS hafi farið minnkandi um langt skeið og að þær fari sérstaklega halloka meðal yngri áhorfenda. „Aðeins átta eða níu prósent þess mikilvæga aldurshóps milli átján og 34 ára fylgist með fréttum stóru stöðvanna. Þetta er andlát fjölmiðils.“ Það er í þessu umhverfi sem stjórnendur CBS ákveða næstu skref. Þeir hafa boðað breyt- ingar en nokkur tími líður áður en þær koma í ljós. ■ 28 12. mars 2005 LAUGARDAGUR EFTIR SÍÐUSTU ÚTSENDINGUNA Dan Rather stýrði fréttatíma CBS í síðasta sinn síðasta miðvikudagskvöld. Þá hafði hann gegnt starfi aðalfréttaþular í 24 ár upp á dag. 1950 1960 1970 1980 1990 HÆTTUR SEM AÐALFRÉTTALESARI CBS 1950 Byrjaði starfsferil sinn sem blaðamað- ur fyrir AP-frétta- þjónustuna í Huntsville, Texas 1954 Ráðinn fréttamaður og yfirmaður á KTRH-út- varpsstöðinni 1960 Yfirmað- ur fréttadeildar fyrir KHOU-TV, sjónvarpsstöð í Houston, Texas 1963 Fréttastjóri suðurríkja- deildar CBS 1972 Fjallaði um Water- gate-hneykslið fyrir CBS- fréttastofuna 1976 Frétta- maður og einn ritstjóra þáttarins 60 Minutes 1983 Vann tvenn Emmy-verðlaun fyr- ir fréttaflutning sinn af sprengjuárásum á bandarískar her- búðir í Beirút 1988-2002 Aðalfrétta- þulur þáttarins 48 Hours 1981 Tók við af Walter Cronkite sem aðalfrétta- þulur og frétta- stjóri CBS 1965 Flutti fréttir af Víetnamstríð- inu sem yfirmaður frétta- stofu CBS í Saigon 1963 Ann- aðist frétta- flutning af morðinu á John F. Kennedy 1962 Varð yfir- maður fréttadeild- ar CBS-sjónvarps- stöðvarinnar í suðvesturríkjunum Dan Rather lét af störfum sem aðalfréttalesari CBS á miðvikudag, 73 ára að aldri, nákvæmlega 24 árum eftir að hann tók við starfinu af Walter Cronkite. Líf í fréttum 1966 Frétta- maður í Hvíta húsinu Heimild: CBS G R AF ÍK A P Ein radda guðs horfin á braut Einn risanna þriggja í bandarískum sjónvarps- fréttum síðustu tvo áratugi lét af starfi í vikunni. Dan Rather var aðalfréttaþulur CBS í 24 ár og þar með einn þriggja manna sem sögðu milljónum Bandaríkjamanna fréttirnar á hverju kvöldi. Hann hætti í skugga mistaka og ásakana um að láta stjórnmál lita fréttaflutning sinn. Brynjólfur Þór Guðmundsson lítur á hvað gerðist. HVERS VEGNA SJÓNVARP? „Yfirmönnum mínum varð fljótlega ljóst að framtíð mín væri ekki í prentmiðlum. Það tók þá svo langan tíma að leiðrétta stafsetningarvill- urnar mínar að búið var að prenta nokkur upplög áður en fréttirnar mínar komust í blaðið. Ég var ekki bara lélegur í stafsetn- ingu, ég var frumlegur. Ég gat fundið sextán nýjar leiðir til að stafa „kött- ur“. Ég gat stafað „Alabama“ án þess að nota sérhljóða. Að lokum tók vingjarnlegur frétta- stjóri mig afsíðis og um leið og hann rak mig mjög vingjarnlega benti hann mér eitt orð sem ég yrði ekki í vandræðum með að stafa: CBS.“ Dan Rather um reynslu sína sem blaðamaður á Houston Chronicle. Deadlines & Datelines, síða xiii.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.