Fréttablaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 16
12. mars 2005 LAUGARDAGUR
Ráðning fréttastjóra Útvarpsins
hefur að vonum verið mikið til
umræðu í fjölmiðlum og manna á
meðal eftir að ljóst varð hver
hafði verið ráðinn. Potturinn og
pannan í þeirri ráðningu er Gunn-
laugur Sævar Gunnlaugsson, lög-
fræðingur og „plottari“ hjá Sjálf-
stæðisflokknum. Hann hefur ekki
mikið haft sig í frammi eftir
ráðninguna, en hann er maðurinn
á bak við þetta og margt annað
hjá Ríkisútvarpinu og verð-
skuldar því að vera út-
nefndur Maður
vikunnar hjá
Fréttablaðinu.
Gunnlaugur
Sævar Gunn-
laugsson, for-
maður útvarps-
ráðs, Sölumið-
stöðvar hrað-
frystihúsanna
og Trygginga-
miðstöðvarinnar,
er maður mikill á
velli og mikill
íhaldsmaður. Hann
er líka mikil fjöl-
skyldumaður, á mörg
börn og gullfallega
konu. Gunnlaugur býr á
Arnarnesi í Garðabæ, og
frægt varð þegar hann sagð-
ist hafa flúið þangað því hann
vildi ekki búa í því bæjarfélagi
þar sem R-listinn réði ríkjum.
Þetta sagði hann á sínum tíma
með töluverðum þjósti og fyrir-
litningu í garð Reykjavíkurlist-
ans og kannski einkum Samfylk-
ingarhluta hans.
Gunnlaugur hefur komið víða
við á starfsferli sínum, en ekki
endilega verið mikið upptekinn
við lögfræðistörf.
Hann fékk viðurnefnið „Gulli
fnykur“ þegar hann var fram-
kvæmdastjóri Faxamjöls í
Reykjavík. Þá lagði bræðslulykt-
ina úr Örfirisey gjarna yfir bæ-
inn og framkvæmdastjóri Faxa-
mjöls var í baráttu við íbúa og
heilbrigðisyfirvöld í Reykjavík
vegna fnyksins. Þegar loðnuver-
tíðin stóð sem hæst lá stöðugur
reykjarmökkur úr bræðslureyk-
háfunum í Örfirisey og Gulli þótti
ófyrirleitinn þegar rætt var um
að það samræmdist ekki heil-
brigðu borgarlífi og ímynd
Reykjavíkur sem hreinnar borg-
ar að bræðslufnyk frá loðnuverk-
smiðju legði yfir bæinn og ná-
grannabyggðir. Þetta þótti allt í
lagi í gamla daga þegar fnykur-
inn var kallaður peningalykt, en
þegar fnykinn lagði yfir við-
kvæma erlenda sendiráðstarfs-
menn á Nesinu þótti mörgum
mælirinn fullur.
Hann kom við í Urði Verðandi
Skuld og þar átti að gera stóra
hluti, en minna varð úr því en
ætlað var.
Segja má að hann hafi mjög
verið tengdur þeim fyrirtækjum
sem eitt sinn voru kennd við
Einar „ríka“, föður Ágústs Ein-
arssonar prófessors og rekt-
orskandidats og þeirra systkina.
Hann er stjórnarformaður
Tryggingamiðstöðvarinnar – sem
Einar átti stóran hlut í líkt og
margir aðrir athafnamenn í
sjávarútvegi. Segja má að mjög
náin tengsl hafi alla tíð verið á
milli SH og TM og þess vegna
gegnir Gunnlaugur Sævar trún-
aðarstörfum í báðum fyrirtækj-
unum.
Það var Björn Bjarnason,
einkavinur Gunnlaugs og þá-
verandi menntamálaráðherra,
sem gerði hann að formanni út-
varpsráðs, og var hann eiginlega
settur til höfuðs Markúsi Erni til
að reyna að koma skikk á stofnun-
ina. Gunnlaugur er einn innsti
koppur í ákveðnum valdakjarna í
Sjálfstæðisflokknum, mikil vin-
átta ríkir milli hans og Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar og
sagt er að Gunnlaugur hafi verið
einn helsti hvatamaður þess að
Björn Bjarnason gaf kost á sér
sem borgarstjóraefni vorið 2003.
Í útvarpsráði hefur gengið á
ýmsu í formennskutíð Gunnlaugs
Sævars. Trúnaðarbrestur varð
milli hans og Gissurar Péturs-
sonar, fulltrúa Framsóknar
og varaformanns
ráðsins, á síðasta
kjörtímabili þeg-
ar Gissur
greiddi ekki at-
kvæði með Elínu
Hirst í stöðu
fréttastjóra Sjón-
varpsins. Gissur
tók þá afstöðu
með Sigríði Árna-
dóttur og gekk í
lið með minnihlut-
anum í útvarps-
ráði. Gissuri var
hegnt fyrir það
með því að vera
settur út úr útvarps-
ráði og í stað hans
kom Páll Magnússon.
Yfirleitt hefur
Gunnlaugur Sævar
verið andsnúinn skoð-
unum starfsfólks RÚV
um skipulag og framtíðar-
sýn innan stofnunarinnar.
Það vakti því mikla athygli í
haust þegar undirbúningur
stóð að ráðningu fréttastjóra
Útvarpsins að Gunnlaugur Sæv-
ar tók sér stöðu með fréttamönn-
um. Þannig var að Bogi Ágústs-
son yfirfréttastjóri lagði til að
skipulagi fréttastofanna yrði
breytt þannig að ráðinn yrði einn
yfirmaður beggja stofanna og
síðan áttu verkefnisstjórar að
sjá um einstaka þætti í rekstrin-
um. Þetta var lagt fyrir fund út-
varpsráðs, en Gunnlaugur Sævar
sópaði þessum hugmyndum
Boga öllum út af borðinu og
sagðist að þessu sinni vera sam-
mála fréttamönnum sem áður
höfðu lýst sig mjög andsnúna
þessum hugmyndum Boga.
Gunnlaugur Sævar er önnum
kafinn maður, og oft hefur það
komið niður á formennskunni í
útvarpsráði. Hann vasast í mörgu
og þegar menn telja sig sjá leik-
fléttu í uppsiglingu, hvort sem er
í viðskiptalífinu eða pólitíkinni,
beinast grunsemdir manna mjög
oft að Gunnlaugi Sævari þótt oft
sé enginn fótur fyrir því. ■
Baktjaldamaður
og erkiíhald
MAÐUR VIKUNNAR
GUNNLAUGUR SÆVAR GUNNLAUGSSON
TE
IK
N
IN
G
: H
EL
G
I S
IG
. –
H
U
G
VE
R
K
A.
IS
Ágæti fiskifræðingur, herra
Hjálmar Vilhjálmsson. Þakka þér
fyrir svarið við skrifum mínum í
Fréttablaðið. Þú segir svar þitt
vera „á efnislegum nótum sem
betur fer“. Það hefst svona: „Í
Fréttablaðinu á mánudaginn skrif-
ar einhver sem nefnir sig Pétur
Tryggva litla klausu undir fyrir-
sögninni Um loðnuna og lífríkið.
Orðbragð þessa pistils og fullyrð-
ingar eru með þeim fádæmum að
varla er svaravert.“ Vel má vera að
svona einhverjir eins og ég, sem
nefnum okkur eitthvað, séum ekki
meira virði en tonn af loðnu. En
virðing þín fyrir mér og nafni mínu
skiptir mig minna máli en lífríkið
við strendur Íslands. Um loðnu-
dráp svarar þú mér á fallegu máli,
einhverju sem ég gæti verið lög-
lega afsakaður í að skilja. Það
hljómar fræðandi, mjúkt og sak-
laust að lesa um Dyrhólaey, vinda
og strauma og móður náttúru í
svari þínu. En það breytir ekki því,
að á sama tíma er verið að hrifsa
milljón tonn af fæðu frá þessari
sömu móður náttúru. Bjarni
Bjarnason, skipstjóri á Súlunni EA,
sagði í hádegisfréttum Ríkis-
útvarpsins 5. mars að loðnuvísind-
in væru ung og að loðnan kæmi
alltaf aftan að manni. Menn vissu
ekkert um loðnuna annað en það að
hún kæmi einhvers staðar utan úr
hafi en ekki af fjöllum. Hér talar
maður með reynslu. Bjarni hefur
stundað loðnuveiðar í 35 ár. Það er
mikill heiður að vera pennavinur
eða jafnvel pennaóvinur einhvers
af þinni stærðargráðu, Hjálmar. En
ég læt ekki rota mig með eyrna-
pinna. ■
Um loðnuna og orðbragðið
SJÓMENN MEÐ LOÐNU
Greinarhöfundur hefur eftir skipstjóra að
menn viti ekkert annað um loðnuna en að
hún komi utan úr hafi en ekki af fjöllum.
PÉTUR TRYGGVI HJÁLMARSSON
GULL- OG SILFURSMIÐUR SVARAR
HJÁLMARI VILHJÁLMSSYNI FISKIFRÆÐ-
INGI
Hér og
DAGBLAÐIÐ VÍSIR 57. TBL. – 95. ÁRG. – VERÐ KR. 295
Helgarblað
Fjórar mæður stíga fram í Helgarblaði DV ídag og svipta hulunni af hinni leyndu sorgsem felst í því að missa barn í móðurkviði.Hildur Gísladóttir er ein þessara kvenna.Hún fæddi andvana barn og hefur baristötullega fyrir opinni umræðu um málefnisem hingað til hefur verið þaggað niður.
Sameinast í sorginniog gegn fordómum
LAUGARDAGUR 12. MARS 2005
Oprah á
íslandi
ÓLAFUR DARRIÁSTFANGINN
Mæður andvanafæddra barna
Íhugar
að hætta
að leika
Bls. 52-53
Bls. 38
Bls. 27-31
Bls. 34
Baksíða
Kærastinn var drepinn af glæpaklíku í Los Angeles
HILMIR SNÆR
Megrunarátak DV
HELGA (113 KÍLÓ) ER FIMM BARNA MÓÐIR Í ÁTAKI Bls. 24
Opinskátt viðtal við nýju íslensku konuna– með framtíðarsýn Bls. 20-21
Ásdís Halla Vakti svefnbæinn
Emilíana Torrini vinnur sig út úr sorginni
Perla var
alvöru
barn þó
að hún
hafi fæðst
andvana