Fréttablaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 22
AFS skiptinemasamtökin á Ís- landi halda sinn 48. landsfund sinn í dag og meðal gesta er Edwin Masback, einn af stofn- endum samtakanna. Alþjóðlegu AFS skiptinema- samtökin voru stofnuð árið 1947 af bandarískum sjálfboðaliðum sem óku sjúkrabílum á vígvöllum Evrópu í fyrri og seinni heim- styrjöld. Að seinni heimsstyrjöld lokinni seldi sjálfboðaliðasveitin sjúkrabílana og notaði fjármun- ina til að hefja nemendaskipti með það að marki að efla vináttu á milli Evrópu og Bandaríkjanna. „Í stríðinu kynntumst ég svo mörgu fólki af ólíku þjóðerni og það var virkilega holl lífs- reynsla,“ segir Masback. „En við sáum líka dæmi um mismunun. Í breska hernum til dæmis var komið misjafnlega fram við her- menn eftir þjóðerni þeirra; indverskur hermaður komst ekki jafn hátt í metorðastiganum og enskur hermaður. Þetta angraði marga okkar og við vildum draga úr fordómum og stuðla að jafn- rétti og töldum okkur geta það með alþjóðlegum skiptinemasam- tökum.“ AFS samtökin hafa síðan dreift enn meira úr sér, starfa í 55 löndum í öllum heimsálfum og um tíu þúsund ungmenni fara á þeirra vegum og dvelja í öðru landi í lengri eða skemmri tíma. Masback hefur sjálfur tekið á móti sex skiptinemum og segir það afar gefandi. Þrátt fyrir að vera 88 ára gamall er Masback enn mjög virkur í starfi AFS og ferðast um allan heim til að sitja málþing á borð við það sem er hér á morgun. „Ég hef verið beðinn um að halda ræðu um frið, sem er áhugavert umfjöllunarefni. Ég hef ekki ákveðið hvaða útgangs- punkt ég vel; ég skrifa ræðurnar aldrei með miklum fyrirvara.“ Þetta er í fyrsta skipti sem Masback heimsækir Ísland en hann er vel að sér um land og þjóð. „Mér þykir mikið til þess koma hversu hátt menntunarstig er á Íslandi og þið eruð sannköll- uð fyrirmynd annarra landa í þeim efnum,“ segir hann. Landsfundur AFS er haldinn á Kornhlöðunni á veitingastaðnum Lækjarbrekku og hefst klukkan 13. Að honum loknum, klukkan 14.30, hefst málþingið, sem ber yfirskriftina Er friður bara hug- tak? Fundurinn og málþingið eru öllum opin. ■ 22 12. mars 2005 LAUGARDAGUR JACK KEROUAC (1922-1969) fæddist þennan dag. TÍMAMÓT: STOFNANDI AFS Á ÍSLANDI Vildi stuðla að jafnrétti og friði í heiminum „Mínir helstu vankantar stafa ekki af ástríðu minni, heldur vanmætti mínum til að hafa stjórn á henni.“ Miklar tröllasögur ganga um eiturlyfjaneyslu bandaríska rithöfund- arins Jacks Kerouac, en sumir draga þó í efa að hægt sé að skrifa úthugsuðar bókmenntir á borð við Á vegum úti í einum rykk í himin- hárri amfetamínvímu. timamot@frettabladid.is EDWIN MASBACK Þrátt fyrir að vera orðinn 88 ára gamall er Masback mjög virkur í starfi AFS og sækir mörg málþing um allan heim. Þennan dag árið 1969 gengu bítill- inn Paul McCartney og ljósmyndar- inn Linda Eastman í hjónaband í borgaralegri athöfn í London í Englandi. Fleiri hundruð manns söfnuðust saman fyrir utan skráningarskrifstof- una í Marylebone til að berja parið augum þegar þau komu, ásamt Heather, sex ára gamalli dóttur Lindu Eastman frá fyrra hjónabandi. Á annan tug lögreglumanna voru á svæðinu til að verja parið fyrir áhuga- sömum ungdómi, en sumir hverjir þóttu taka ansi nærri sér að síðasti piparsveinninn í hópi Bítlanna væri nú á leið í hjónabandssæluna. Paul og Linda McCartney voru gift í 29 ár og þóttu dæmi um eitt best heppnaða hjónabandið meðal fræga fólksins. Saman eignuðust þau þrjú börn; Stellu, Maríu og James. Ári eftir að þau Paul og Linda voru gefin saman lögðu Bítlarnir upp laupana og Linda gekk í nýja hljóm- sveit bónda síns að nafni Wings. Linda var vel þekkt sem græn- metisæta og baráttukona fyrir rétt- indum og velferð dýra og átti sjálf töluverðrar velgengni að fagna með fyrirtækjarekstur. Hún þénaði milljón- ir á línu grænmetisrétta sem boðið hefur verið upp á síðan árið 1990. Linda McCartney dó úr brjósta- krabbameini árið 1998 á búgarði McCartney hjónanna í Tucson í Arizona í Bandaríkjunum. Paul McCartney giftist svo fyrrverandi fyrirsætu að nafni Heather Mills árið 2002 og á með henni dóttur sem kom í heiminn í október árið 2003. 12. MARS 1969 ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1799 Austurríki lýsir Frökkum stríð á hendur. 1916 Alþýðusamband Íslands, ASÍ, stofnað og þar með Alþýðu- flokkurinn. Fyrsti formaður var Ottó N. Þorláksson. 1930 Indverski stjórnmálaleið- toginn Mohandas K. Gandhi hefur 322 kíló- metra langa göngu til að mótmæla saltskatti Breta. 1965 Hljómar frá Keflavík senda frá sér fyrstu íslensku bítla- plötuna. 1977 Fyrsta leikna íslenska kvik- myndin í fullri lengd, Morð- saga eftir Reyni Oddsson, frumsýnd. 1981 Úrskurður Hæstaréttar í Kötlufellsmálinu; blaða- menn þurfa ekki að upp- lýsa rannsóknarlögreglu um heimildarmenn. Paul McCartney giftist Lindu Eastman Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Hansína Þorkelsdóttir frá Siglufirði, Freyjugötu 39, Reykjavík, lést á heimili sínu miðvikudaginn 9. mars. Unnur Einarsdóttir Rafn Baldursson Guðrún Einarsdóttir Hjörtur Páll Kristjánsson Þorkell Einarsson Rut Marsibil Héðinsdóttir Gerður Einarsdóttir Þorsteinn Sveinbjörnsson Ólafur Hjalti Einarsson Sólveig Victorsdóttir Sveinn Ingvar Einarsson Karin Margareta Johansson Pálmi Einarsson Jóhanna Einarsdóttir Gísli Guðmundsson Ari Einarsson Berglind Jónsdóttir Snorri Páll Einarsson Elín Lára Jónsdóttir Unnur Helga Ólafsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar ástkæra Kristins Hólm Vigfússonar Ránargötu 23, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri fyrir frábæra umönnun í veikindum hans. Anna Rósantsdóttir, Lára Björk Kristinsdóttir, Halldór Árnason, Bragi Hlíðar Kristinsson, Fríða Pétursdóttir, afabörn og langafabarn. 11.00 Seselía Ólafsdóttir, Skagfirðinga- braut 39, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju. 13.30 Guðmundur Kjartan Runólfsson, bóndi í Ölvisholti, Hraungerðis- hreppi, verður jarðsunginn frá Hraungerðiskirkju. 14.00 Árni Jens Valgarðsson verður jarðsunginn frá Raufarhafnar- kirkju. 14.00 Guðmunda F. Jónasdóttir, Stykk- ishólmi, verður jarðsungin frá Stykkishólmskirkju. 14.00 Guðrún Júlía Elíasdóttir, Aðal- steini, Stokkseyri, verður jarðsung- in frá Stokkseyrarkirkju. 14.00 Júlíus Helgi Guðmundsson, frá Garðhúsum, Garði, Smáraflöt, Garði, verður jarðsunginn frá Útskálakirkju. 14.00 Sigrún Elísabet Ásgeirsdóttir, Höfðavegi 7b, Húsavík, verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju. 14.00 Þórhallur Björgvinsson, frá Þor- gerðarstöðum í Fljótsdal, Útgarði 6, Egilsstöðum, verður jarðsung- inn frá Egilsstaðakirkju. Aðalheiður Kristjánsdóttir, Hamraborg 18, Kópavogi, lést fimmtudaginn 3. mars. Ólafur Sverrisson, fyrrverandi kaup- félagsstjóri í Borgarnesi og á Blönduósi, hjúkrunarheimilinu Eir, Reykjavík, lést þriðjudaginn 8. mars. Ingiríður Jónasdóttir Blöndal, Stóra- gerði 38, Reykjavík, lést þriðjudaginn 8. mars. Hansína Þorkelsdóttir, frá Siglufirði, Freyjugötu 39, Reykjavík, lést miðviku- daginn 9. mars. Kjartan Ingimarsson, Rauðalæk 2, Reykjavík, lést miðvikudaginn 9. mars. ANDLÁT JARÐARFARIR Karólína Lárusdóttir mynd- listarkona er 61 árs í dag. Jóhann Sigmarsson kvik- myndaleikstjóri er 36 ára í dag. Marta Nordal leikkona er 35 ára í dag. Ólafur Gottskálksson fót- boltamaður er 37 ára í dag. Páll Magnússon, aðstoð- armaður iðnaðarráðherra, er 34 ára í dag. Sveinbjörg Þórhallsdóttir dansari er 33 ára í dag. Anna Margrét Hraundal tónlistarkona er 28 ára í dag. AFMÆLI Í dag fagnar landsnefnd UNICEF á Íslandi eins árs afmæli sínu, en UNICEF er Barnahjálp Samein- uðu þjóðanna. Af því tilefni verð- ur slegið upp barnaafmæli í Mið- stöð Sameinuðu þjóðanna að Skaftahlíð 24 milli klukkan þrjú og fjögur í dag. Boðið verður upp á barnaafmælisköku, djús og blöðrudýr frá dýpstu frumskóg- um Afríku. Einnig mun barnakór Ísaksskóla syngja afmælissöng- inn og fleiri góð lög. „UNICEF Ísland vill bjóða alla þá sem stutt hafa við bakið á landsnefndinni á þessu fyrsta starfsári velkomna, þ.e.a.s. styrktaraðilum, heimsforeldrum, fjölmiðlum og vinum. Börn eru sérstaklega boðin velkomin,“ segir í tilkynningu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Í afmælisveislunni kynnir UNICEF Ísland nýjan bækling um Barnasáttmála Sameinuðu þjóð- anna sem dreift verður til allra 6. og 7. bekkinga á landinu næstu daga í samstarfi við Námsgagna- stofnun. Bæklingurinn er sagður gerður að norskri fyrirmynd og ætlað að fræða börn og ungmenni um réttindi sín og skyldur. Landsnefnd fyrir UNICEF á Ís- landi er sjálfseignarstofnun og miðar að því að kynna UNICEF og Barnasáttmála Sameinuðu þjóð- anna og styrkja hin margþættu verkefni UNICEF með fjáröflun. UNICEF var stofnað árið 1946 og er einn stærsti og virtasti sjóður innan Sameinuðu þjóðanna. Í dag starfa um 7 þúsund manns í um 160 löndum á vegum UNICEF. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N VEFUR UNICEF Á ÍSLANDI Á slóðinni www.unicef.is er að finna vef UNICEF á Ís- landi, en í dag fagnar landsnefndin hér ár- safmæli sínu. Unicef á Íslandi eins árs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.