Fréttablaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 70
58 12. mars 2005 LAUGARDAGUR
Lárétt:
1 heilsusamleg, 5 skjóta, 6 átt, 7 tveir
eins, 8 fæða, 9 geð, 10 á fæti, 12 svelgur,
13 nægilegt, 15 hreyfing, 16 nagli, 18
skordýr.
Lóðrétt:
1 fyrirmaður, 2 amboð, 3 tónn, B ámóta,
6 kyrrstæði, 8 hlass, 11 fugl, 14 mont, 17
sólguð
Lausn:
Lárétt: 1holl,5öra,6sv, 7ff, 8æti,9
skap,10 il,12iða,13nóg,15ið,16gaur,
18 maur.
Lóðrétt: 1höfðingi, 2orf,3la,4svipað-
ur, 6staði,8æki,11lóa,14gum,17ra.
1
5 6
87
9
12
15
10
13
16 17
11
14
18
2 3 4
Írski spaugarinn Dave Allen lést í
svefni á heimili sínu í London að-
faranótt föstudags. Allen, sem var
68 ára þegar hann lést, var sann-
kallaður heimilisvinur Íslendinga
en gamanþættir hans nutu gríðar-
legra vinsælda hér á landi þegar
RÚV sýndi þá um miðjan áttunda
áratuginn.
Margir þekktir uppistandarar,
þar á meðal Eddie Izzard, segjast
standa í þakkarskuld við Allen,
sem hafi sannarlega verið
brautryðjandi. Allen stóð þó
sjaldnast á sviði en flest-
ir minnast hans sitj-
andi í háum stól
með sígarettu og
viskíglas við hendina.
„Hann var greinilega lærifaðir
Eddies Izzard og annarra slíkra en
styrkleiki hans var fyrst og fremst
fólginn í því hversu sterkur sögu-
maður hann var,“ segir Halldór
Einarsson, grafískur hönnuður og
einlægur aðdáandi Allens til
margra ára. „Það skiptir mestu
máli í uppistandi, eða niðursetjelsi
í tilfelli Allens, að menn
geti gert sögur sínar
trúverðugar. Þetta
verður ekki fyndið
nema hægt sé að treysta
því og trúa að sögumað-
urinn hafi lent í til-
teknum aðstæðum,
hversu fáránlegar
sem þær eru. Allen
gat þetta og var svo
trúverðugur að
hann hefði getað
verið fréttamaður
hjá BBC. Hann var
svo traustvekjandi með þetta al-
varlega andlit og gráa hár að hann
hefði auðveldlega getað selt manni
fréttir.“
Halldór segir að það sé vissu-
lega sjónarsviptir af Allen þó hann
hafi ekki troðið upp síðan 1999.
„Maður er búinn að halda í þá von
að hann myndi skila sér aftur á
svið, jafnvel þó maður vissi að
hann væri orðinn hrumur fyrir 10
árum síðan. Maður er bara ekki
raunsærri en þetta.“ ■
Dave Allen allur
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Talant Dujshebaev.
August Strindberg.
Á bílastæðum bæjarins.
Skoska hljómsveitin Franz
Ferdinand heldur tónleika í
Kaplakrika í Hafnarfirði þann 27.
maí. Það er fyrirtækið Hr. Örlyg-
ur sem stendur fyrir komu sveit-
arinnar til landsins. Lengi hefur
verið uppi orðrómur um komu
hennar en nú hafa tónleikarnir
endanlega verið staðfestir.
„Þetta er búið að standa til síð-
an í janúar í fyrra eða frá því plat-
an þeirra kom út. Þeir áttu að
koma síðasta vor en það gekk ekki
út af því flugi sem þeir voru
komnir á,“ segir Þorsteinn Steph-
ensen tónleikahaldari. „Þeir eru
núna farnir í frí frá tónleikaferða-
laginu sem þeir voru á og eru
byrjaðir að taka upp nýja plötu í
Glasgow. Þeir voru búnir að lofa
sér hingað og til Rússlands en
verða annars lítið á ferðinni í
sumar. Þetta verður því einstakt
tækifæri til að berja þessa frá-
bæru hljómsveit augum,“ segir
hann.
Franz Ferdinand hefur notið
mikilla vinsælda síðan hún gaf út
samnefndan frumburð sinn á síð-
asta ári. Fékk platan víðast hvar
frábæra dóma gagnrýnenda sem
margir hverjir höfðu ofarlega á
árslistum sínum. Vakti lagið Take
Me Out, sem margir töldu eitt
besta lag síðasta árs, fyrst athygli
á sveitinni.
Sveitin var kjörin besta breska
hljómsveitin á síðustu Brit-verð-
launahátíð auk þess sem hún spil-
aði á Grammy-verðlaunahátíðinni
í Bandaríkjunum á dögunum.
Vann hún einnig hin mikilsvirtu
Mercury-verðlaun á síðasta ári og
bar þar sigurorð af sveitum á borð
við The Streets, Keane og Base-
ment Jaxx.
Franz Ferdinand var stofnuð
árið 2001 af þeim Bob Hardy,
Nick McCarthy, Paul Thomson
og söngvaranum Alex Kapranos.
Nafnið fengu þeir frá austur-
rískum hertoga, en morðið á
honum hratt af stað fyrri heims-
styrjöldinni. Hljómsveitin var á
sínum tíma kölluð „skoska
Interpol“ vegna þess að hún
þótti líkjast mjög bandarísku
sveitinni Interpol sem hefur
gefið út tvær vinsælar plötur á
undanförnum árum. Skömmu
síðar átti sveitin meðal annars
eftir að hita upp bæði fyrir
Interpol og kanadísku rokk-
sveitina Hot Hot Heat.
Ný plata er væntanleg frá
Franz Ferdinand í lok sumars og
má gera ráð fyrir því að þeir muni
spila einhver lög af henni í
Kaplakrika í vor. Miðasala og upp-
lýsingar um upphitunarbönd
verða nánar auglýst síðar.
freyr@frettabladid.is
VIÐ ERUM AÐ KOMA! Meðlimir Franz Ferdinand voru í góðu stuði eftir að þeir tóku á móti Mercury-verðlaununum á síðasta ári. Þeir spila hér á landi í lok maí.
STÓRTÓNLEIKAR Í KAPLAKRIKA: ENDANLEGA STAÐFESTIR
Franz Ferdinand til Íslands
Að vera í kjól. Hvernig væri að krydda aðeins upp íhinni hversdagslegu samsetningu gallabuxur vs. bolur
og vera í kjól í staðinn? Ekkert endilega fínum glamúrkjól
heldur bara hversdagslegum kjól. Það er ótrúlega gaman
að vera í sætum kjól og sérstaklega núna þegar örlítill
vorfnykur er farinn að berast okkur.
Dúskar voru furðulega áberandi á tískupöllum tískuvikn-anna í París nú á dögunum. Dúskarnir sáust á peysum,
kápum, kjólum og skóm. Það er eitthvað voðalega krúttlegt
við dúskana og um að gera að láta dúskatískuna ekki fram-
hjá sér fara, hún varir varla lengi. Ekki samt setja dúsk ofan
á húfur, það er ekkert smart og hálf lúðalegt bara.
Gamaldags hælaskór. Já þeir eru algjörlega málið.Ekki nýtísku-glimmer-pallíettu-hælaskór heldur
gamaldags skór og best væri að þeir væru í jarðlitum.
Skórnir verða helst að vera með rúnaða tá þó támjóu
hælaskórnir geti svosum gengið en bara svo lengi
sem örlítið gamaldags blær hvíli yfir þeim. Kishimoto
sýndi þessa skó á tískuvikunni í París nú á dögunum.
Hermannamunstur. Er ekki komið nóg af þessuskrambans felulita- og hermannamunstraða dóti? Það
er gjörsamlega búið að ofgera þessu og framleiða allt
með hermannamunstri. Húfur, bolir, jakkar, buxur, stólar,
teppi, og jafnvel sængurver. Það er örugglega hægt að
finna tannbursta með hermannamunstri! Nú er hins vegar
nóg komið. Segjum nei við hermannamunstrinu.
Krumputeygjur. Það á nú ekki að þurfa að taka þettafram en krumputeygjunum má fleyja á haugana eða
jafnvel í eldinn bara. Vonandi kemur þetta ógeð aldrei
aftur í tísku frekar en blásnir toppar eða skærlitaðir
krumpugallar. Aldrei setja krumputeygju í hárið! Aldrei!
G-strengir. Veit einhver hvaðan G-strengirnir eru komnir? Fáir vitanefnilega að hugmyndin er komin frá súludans-
stöðunum. Þegar súludansmeyjum var bannað að
dansa naktar voru fundnar upp svona líka sniðugar nær-
buxur sem sýndu allt. Er þetta það sem við viljum klæðast?
Nei, þetta er ekkert kúl og síður en svo þægilegt. Það er líka
fátt subbulegra en g-strengur sem kíkir upp úr buxunum.
INNI ÚTI
...fá hjúkrunarfræðingar, prestar,
femínistar og umboðsmaður
barna, sem ætla að vinna með
landlæknisembættinu gegn
klámvæðingu í landinu.
HRÓSIÐ
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
DAVE ALLEN
Var þekktur fyrir
viskíglasið sem hann
hafði jafnan við hend-
ina en það fór ýmsum sög-
um af því hvað var í raun og
veru í glasinu.
HALLDÓR EINARSSON „Einhver gjamm-
aði því að þetta væri cider en Allen var oft
spurður að því hvort hann væri með vískí,
romm eða vodka í glasinu og hann sagði
þá alltaf einfaldlega „já“.