Fréttablaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 12.03.2005, Blaðsíða 12
Það hefur verið sagt að sagan endurtaki sig, en í seinna sinnið taki hún á sig mynd farsans. Síð- ustu atburðir virðast staðfesta þetta. Í fjölmiðlamálinu síðastliðið sumar geystist Davíð fram á svið- ið í gervi Riddarans hugumstóra og réðst gegn vindmyllum Baugs- veldisins, en Halldór lék hlutverk hins staðfasta fylgisveins, Sancho Panza, og lét sem hann tryði því að vindmyllurnar væru óvígur óvina- her. Halldór var óbrigðull í stuðn- ingi sínum. Fimm breytingatil- raunir voru gerðar á frumvarpinu og eftir hverja þeirra steig Hjálm- ar Árnason fram og lýsti því yfir að allur þingflokkur framsóknar- flokksins (mínus tveir) væri sátt- ur við frumvarpið eftir breyting- arnar. Loks urðu þeir svarabræð- ur þó að gefast upp og nema frum- varpið úr gildi. Nú er komið að sjálfstæðis- flokknum að launa stuðninginn. Sex mánuðir eru liðnir síðan Kári Jónasson hvarf úr sæti frétta- stjóra ríkisútvarpsins og greini- legt að mikið hefur verið bruggað á bak við tjöldin um hvernig skuli svo um hnúta búið, að traustur stjórnarliði fengi þetta starf. Hvað eftir annað hafa kannanir leitt í ljós, að almenningur í land- inu ber mikið traust til fréttastofa ríkisútvarpsins (oftast á bilinu 75- 80%). En forystumenn stjórnar- flokkanna hafa ekki farið dult með að þeir hafa verið hundóánægðir með fréttaflutning af gerðum rík- isstjórnarinnar og stjórnarflokk- anna og kveinað opinberlega yfir umfjöllun í fréttum og frétta- tengdum þáttum. Sérstaklega að fréttamenn skuli ekki gleypa hrá- ar fréttatilkynningar frá spuna- meisturum flokkanna, heldur reyna að gagnrýna og leggja sjálf- stætt mat á innihald þeirra. Iðu- lega hafa þeir kennt fjölmiðlum um slælegt gengi stjórnarflokk- anna og ríkisstjórnarinnar. Það er ekkert nýtt að stjórnar- liðar reyni að nota ítök sín í póli- tískt skipuðu útvarpsráði til að hafa áhrif á mannaráðningar, einkum ráðningar yfirmanna, og koma sínum mönnum þar fyrir, eða að minnsta kosti að koma í veg að menn komist þar að eða endist í starfi sem þeir hafa sérstaka van- þóknun á (þ.e.a.s. fréttamenn, sem álíta það skyldu sína að vera gagn- rýnir í fréttaflutningi). Ríkis- stjórnir sem sitja lengi geta smám saman hert tök sín á ríkisútvarp- inu og það er einmitt það sem er að gerast nú. Sjálfstæðisflokkur- inn er á sínu fjórða kjörtímabili við völd og framsókn á því þriðja og nýbúin að fá forsætisráðherra- embættið langþráða. Samt vænkast ekki hagur Strympu og klíkan kringum forsætisráðherr- ann kennir fjölmiðlunum um. Framsókn telur sig „eiga“ emb- ætti fréttastjóra útvarps. DV á fimmtudaginn upplýsti að Finnur Ingólfsson hefði verið að hringja í frændur og vini og bjóða þeim stöðuna. Pétur Gunnarsson skrif- stofustjóri framsóknarflokksins og varamaður Páls Magnússonar í útvarpsráði upplýsti að hann hefði farið yfir gögn málsins og fundið út (merkilegt nokk!) að Auðun Georg Ólafsson var sá umsækj- enda sem passaði best við auglýs- inguna. Það er gamalkunnugt trikk í stjórnsýslu allra landa, ef skylt er að auglýsa stöðu sem ætluð er ákveðnum gæðingi, að klæðskera- sníða auglýsinguna að eiginleikum gæðingsins. Eitthvað tókst þó illa til í þessu tilfelli, þar sem einmitt þetta fór framhjá Boga Ágústs- syni, starfsmannastjóranum og sérfræðingi ráðningarfyrirtækis- ins, og þeim láðist að mæla með þessum skjólstæðingi valdsins. En nú fékk Framsókn endur- goldinn sinn óbrigðula stuðning við fjölmiðlafrumvarpið og sjálf- stæðismenn viðurkenndu eignar- rétt framsóknar á stöðunni. Meira að segja Mogganum er brugðið við svo opinskáa misbeitingu valds og átelur stjórnarflokkana harðlega. Þessi atburður getur varla talist heppilegur inngangur að frumvarpi Þorgerðar Katrínar að nýjum lögum fyrir ríkisútvarpið. Þvert á móti færir hann fullar sönnur á það sem við andstæð- ingar fjölmiðlafrumvarpsins sál- aða héldum fram, að íslenska rík- isstjórni stefnir leynt og ljóst að því að ná sams konar tökum á fjölmiðlum þessa lands og Silvio Berlusconi, góðvinur utanríkis- ráðherrans, hefur náð á Ítalíu. Munurinn er sá einn að Berlusconi eignaðist fyrst fjöl- miðla, stofnaði síðan flokk, náði svo völdum í skjóli fjölmiðla sinna og þar einnig tökum á ríkis- fjölmiðlunum. Hér á landi byrja menn með því að ná fullum tök- um á ríkisfjölmiðlunum, setja síðan lög á þá fjölmiðla sem þeir hafa vanþóknun á (Baugsmiðlar í dag, eitthvað annað á morgun). Aðalatriði er að þagga niður í gagnrýninni og sjá til þess að leiðtogarnir miklu séu vegsamað- ir og tryggðir í sessi. En stundum dugar það ekki til. Valdhroka- gikkirnir, sem ólust upp undir pilsföldum Margrétar Thatchers, fengu að reyna annað. Hér gæti farið á sama veg. ■ Í slendingur er nú í fyrsta skipti í hópi 500 ríkustu einstaklingaveraldar, en Björgólfur Thor Björgólfsson vermir sæti 488 álista tímaritsins Forbes. Það er glæsilegur árangur. Auðæfi Björgólfs Thors hafa ekki orðið til á löngum tíma og eru afrakstur markvissrar vinnu og útsjónarsemi í viðskiptum. Auðæfi hans eru af tímaritinu metin á 1,4 milljarða Bandaríkjadala, ríflega 80 milljarða króna. Ef eignir Björgólfs Thors eru settar í samhengi við íslenskt samfélag er auður hans tíu prósent af landsframleiðslu þjóðarinnar og um átta prósent af öllum eignum íslenskra lífeyris- sjóða. Ef öllu afli þessara eigna væri beitt hér á landi væru áhrifin umtalsverð. Björgólfur Thor skilgreinir sig sem kaupsýslumann og alþjóð- legan fjárfesti sem leitast við að hámarka arðsemi fjárfestinga sinna. Hann hefur komið fram sem talsmaður þess að menn skilji á milli viðskipta annars vegar og pólitíkur hins vegar. Rökin eru einföld; pólitík er vondur bisness. Hann fer því fremstur í flokki nýrrar kynslóðar sem kaupir og selur eignir sínar án þess að hugsa um stjórnmálaskoðanir viðskiptavinanna. Innkoma þessarar kynslóðar í íslenskt viðskiptalíf hefur haft góð áhrif á efnahagslíf þjóðarinnar. Hinu verður þó ekki neitað að þeir sem lesa í allar hræringar samfélagsins með gleraugum stjórnmálanna eiga erfitt með að meðtaka breyttan heim. Þannig reyna stjórnmálaflokkar enn að merkja sér menn í viðskiptalífinu og telja til tryggðarvina. Staðreyndin er hins vegar sú að þau ítök hafa verið á svo hröðu undanhaldi að ekkert er að verða eftir af þeim. Eftir sitja þeir ringlaðir sem lifa enn í heimi samofinna hags- muna stjórnmála og viðskipta. Það er ekki bara rof milli stjórnmála og viðskipta sem einkenn- ir breytta tíma. Íslenskir kaupsýslumenn líta heldur ekki til landa- mæra þegar þeir ákveða hvar þeir fjárfesta. Þeim ákvörðunum ráða þekking, sambönd og væntingar um arðsemi. Björgólfur Thor hefur sjálfur varað við orðinu útrás um alþjóðavæðingu viðskipta. Heimavöllur alþjóðlegra fjárfesta sé heimurinn, en ekki tiltekið land. Nú, þegar Forbes beinir sjónum sínum að Björgólfi Thor og auð- legð hans, er íslenskt viðskiptalíf á fullri ferð að leita tækifæra um allan heim. Björgólfur Thor hefur þegar náð glæsilegum árangri og fleiri munu feta í fótsporin. Ánægjulegt er einnig að fylgjast með því að ný kynslóð skilgreinir það sem hlutverk sitt að leggja samfélaginu lið. Þannig var afhending Björgólfs Thors á Háskóla- sjóði Eimskipafélagsins til Háskóla Íslands táknræn fyrir meðvit- und um að menntun og menning þjóðarinnar skiptir máli fyrir lifandi samfélag og gróskumikla framtíð. Fleiri munu vonandi fylgja í kjölfarið og birtast á framtíðarlist- um Forbes. Djarft hugarfar, dugnaður, útsjónarsemi og þekking eru lyklarnir að því að komast á slíkan lista. Að komast á listann er ekki markmið í sjálfu sér en birtingarmynd þess undraverða árangurs sem náðst hefur á skömmum tíma. ■ 12. mars 2005 LAUGARDAGUR SJÓNARMIÐ HAFLIÐI HELGASON Björgólfur Thor Björgólfsson á lista ríkustu manna. Glæsilegur árangur FRÁ DEGI TIL DAGS Það er ekki bara rof milli stjórnmála og viðskipta sem einkennir breytta tíma. Íslenskir kaupsýslu- mann líta heldur ekki til landamæra þegar þeir ákveða hvar þeir fjárfesta. Þeim ákvörðunum ráða þekking, sam- bönd og væntingar um arðsemi. ,, Í DAGRÁÐNING FRÉTTASTJÓRA ÓLAFUR HANNIBALSSON Nú fékk framsókn endurgoldinn sinn óbrigðula stuðning við fjöl- miðlafrumvarpið ogt sjálf- stæðismenn viðurkenndu eignarrétt framsóknar á stöðunni. ,, Útvarp valdsins Þekkir sig í sporum Auðuns Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra var þungorð í garð frétta- manna Ríkisútvarpsins í fjölmiðlum í gær og sagðist líta viðbrögð þeirra við ráðn- ingu Auðuns Georgs Ólafssonar alvarleg- um augum. Í þessu samhengi er ekki úr vegi að rifja upp að Þorgerður á mjög auðvelt með að setja sig í spor Auðuns því sterkur pólitískur fnykur þótti af ráðn- ingu hennar sjálfrar til stjórnunarstarfa á Ríkisútvarpinu árið 1997. Reynslulaus í stjórnunar- stöðu Þorgerður Katrín var ráðin yfirmaður sam- félags- og dægur- máladeildar Ríkis- útvarpsins þrátt fyrir að hafa enga reynslu af fjölmiðlum og var tekin fram yfir þrautreynt fagfólk, sem hafði sótt um stöðuna, líkt og er til- fellið nú með nýráðinn fréttastjóra. Þor- gerður sór af sér öll pólitísk tengsl enda hafði hún á þessum tíma ekki komið ná- lægt flokksstarfi fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Öllum ætti hins vegar að vera kunnugt um flokksskírteini hennar núorðið en hún skellti sér í prófkjör fyrir Sjálfstæðis- flokkinn 1998, vann þar góðan sigur og sigldi í kjölfarið inn á þing eftir kosning- arnar 1999. Í ormagryfju Þorgerður ræddi tíma sinn hjá Ríkis- útvarpinu í viðtali við tímaritið Ský sum- arið 2002 og sagði þá meðal annars að hún hefði ekki séð fyrir „í hverslags ormagryfju“ hún var að fara þegar hún hóf störf hjá stofnuninni. „Mér voru sannarlega ekki gefin nein grið fyrstu mánuðina og var hreinlega hunsuð af sumum samstarfsmönnum mínum. En það gekk yfir,“ sagði Þorgerður í viðtal- inu. Og það er væntanlega einmitt það sem helmingaskiptaflokkarnir í ríkisstjórn treysta á að gerist líka núna: að stormur- inn í kringum ráðningu Auðuns „gangi yfir“ og málið verði gleymt næst þegar kemur að kosningnum. Sem er sjálfsagt hárrétt mat hjá þeim, að minnsta kosti ef einhvern lærdóm er hægt að draga af því minnisleysi kjósenda sem einkennir íslenska stjórnmálasögu. jonkaldal@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Kári Jónasson FRÉTTARITSTJÓRAR: Sigurjón M. Egilsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Jón Kaldal FULLTRÚI RITSTJÓRA: Guðmundur Magnússon RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Steinunn Stefánsdóttir AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐAL- SÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 LESTU GREININA Á VISIR.IS OG SEGÐU SKOÐUN ÞÍNA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.