Fréttablaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 24
Ferðast með börn Á löngu ferðalagi með börn er mikilvægt að hafa ofan af fyrir þeim svo þeim leiðist ekki. Í flugi er sniðugt að taka með ný leikföng og afhenda börnunum þau óvænt í flugvélinni. þannig geta þau dundað sér og gleymt sér í leik. [ ] Bankastræti 10 + Sími 562 23 62 + info@exit.is + www.exit.is Au pair býr hjá gistifjölskyldu, aðstoðar við barnagæslu og heimilisstörf og tekur þátt í daglegu lífi gistifjölskyldunnar. Að launum fær au pair vasapening, frítt fæði og húsnæði. Færð þú MasterCard Ferðaávísun? 410 4000 | landsbanki.is Ferðalán Nánari upplýsingar á landsbanki.is eða í næsta útibúi. Það getur breytt öllu að hafa aðgang að ferðaláni á hagstæðum kjörum. Þá er aðeins spurning um að fylgja eigin innsæi og taka sér gott frí. • Þú færð lán fyrir ferðinni • Þú færð lán fyrir gjaldeyrinum • Þú getur sótt um á landsbanki.is og reiknað þitt lán Besti tíminn til að fara í frí er þegar þú þarft á því að halda! Vika á Spáni hertzerlendis@hertz.is ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H ER 2 72 20 02 /2 00 5 11.900 50 50 600 1000 Vildarpunktar til 12. mars kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar. *Verð á viku miðað við 14 daga leigu. * Fiat Punto eða sambærilegur Borgirnar, sagan, fólkið og listirnar heilla Guðlaug er föst í svefnherberginu næstu vikurnar en Rússland er samt aldrei fjarri í draumum hennar. Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona segist vera með Rússlandsáráttu og hún segist ná ótrúlegu sambandi við land og þjóð. Hún heillaðist fyrst af landinu þegar hún heimsótti Sovétríkin sálugu. Draumastaðurinn hennar Guð- laugar Elísabetar Ólafsdóttur leikkonu er ekki svo fjarri og mun nær nú en þegar hún fór þangað fyrst. „Staðurinn sem mig langar til að fara til og dvelja á er Rússland. Ég er með einhverja Rússlandsáráttu. Landið og borg- irnar og arkitektúrinn, sagan og listirnar finnst mér óskaplega heillandi en eins tengi ég svo vel við fólkið þar. Mér finnst undur- samlegast að hitta fyrir fólk svona langt í burtu sem ég næ svona innilegu sambandi við. Mig langar að kunna rússnesku og bara prófa að vera þarna, lengi helst því ég fann mig ofboðslega mikið heima innan um þetta fólk og tengdi algerlega við land og þjóð,“ segir Guðlaug sem hefur tvisvar sinnum komið til Rúss- lands, á mjög ólíkum tímum. „Ég fór þarna fyrst árið sem ég var tvítug með hópi ungs fólks frá Evrópu og á Norðurlöndunum í ferð sem kallaðist „Next Stop Soviet“ og var farin gegn kjarn- orkutilraunum og í þágu sam- skipta, friðar og elskulegheita. Við komum þarna í lokin á glasnostinu en fyrir hinar gagn- geru breytingar sem urðu á tí- unda áratugnum. Þetta var alger óvissuferð inn í lokað og framandi land en ég bara heillaðist alger- lega. Svo var ég svo heppin tíu árum seinna að vera að leika í sýningu með rússneskum leik- stjóra og okkur var boðið til Mosvku og þá upplifði ég mjög sterkt hvað breytingarnar voru ótrúlegar.“ Guðlaug er samt ekki á leið til Rússlands í bráð því hún er á kafi í sýningunni Riðið inn í sólarlagið sem verður frumsýnd í Borgar- leikhúsinu í næstu viku. „Þetta er mjög spennandi verk, finnst mér, um ungt fólk og samskipti þess, firringuna, ábyrgðarleysið og ábyrgðina, óttann við skuldbind- ingar og óttann við tilfinningar. Það skemmtilega er að öll þessi samskipti eiga sér í stað í svefn- herbergjum persónanna og eins og allir vita sem eru komnir til vits og ára gerist ýmislegt innan veggja svefnherbergisins.“ Guðlaug verður þessvegna dá- lítið bundin við svefnherbergið á næstunni en Rússland er ekki að fara neitt. ■ Svipmynd úr myndinni Touching the Void. Simon Yates til Íslands HANN ER ÞEKKTASTUR FYRIR KLIFUR Í PERÚ SEM VAR GERT AÐ KVIKMYND. Simon Yates, klifurfélagi Joe Simpson sem skrifaði bókina Touching the Void, er á leiðinni til Íslands. Hann kemur í lok þessarar viku og mun líklegast halda fyrirlestur í sal Ferðafélagsins næsta sunnudag eins og kemur fram á heimasíðu Útiveru, utivera.is. Eins og margir muna eftir var gerð samnefnd kvikmynd eftir bókinni Touching the Void og vakti hún mikla lukku. Simon Yates hefur stundað fjallamennsku í rúm tuttugu ár, meðal annars í Alaska, Ástralíu, Suður-Amer- íku og fleiri löndum. FRÉTTAB LAÐ IÐ /H AR I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.