Fréttablaðið - 31.03.2005, Side 28

Fréttablaðið - 31.03.2005, Side 28
8 31. mars 2005 FIMMTUDAGUR Kínverskir hönnuðir stimpla sig inn Tískuvikan í Peking, höfuð- borg Kína, hófst 25. mars síð- astliðinn og virðast Kínverjar ólmir í að festa sig í sessi á tískukortinu. Fyrsta tískuvikan í Peking var haldin árið 1997 en þá voru aðeins þrjár tískusýningar. Síðan þá hefur tískusýningin sífellt verið að sækja í sig veðrið og er nú einn af hápunktum í tískudagatali þjóðarinnar. Í ár er rúmlega tylft af tískusýningum í vikunni ásamt fjölmörgum veislum þar sem hönnuðir og fólk í tískubransan- um sýnir sig og sér aðra. Fata- og textílhönnuðir í Kína eru stað- ráðnir í því að stimpla sig ræki- lega inn í tískubransann í heimin- um og hafa ekki látið sitt eftir liggja þegar þeir sýndu tískuna fyrir haust og vetur 2005 og 2006. Fyrsta dag vikunnar var haldin alþjóðleg keppni fyrir unga hönn- uði þar sem 37 ungir hönnuðir frá 23 löndum og héruðum frum- sýndu hönnun sína við afskaplega fína athöfn. En það er svartur blettur á tískuiðnaðinum í Kína. Alþjóða- markaðir hafa áhyggjur af þess- ari tískuuppsveiflu í Kína og halda að fata- og textílhönnuðir frá Austurlöndum muni fylla markaðinn af ódýrum vörum með lágan gæðastaðal. Ríkisstjórnin viðurkennir þennan vanda og hefur reynt að leysa hann með því að hækka skatta á textílvörur og setja takmarkanir á framleiðslu tískuiðnaðarins. Þetta vandamál setti aftur á móti ekki strik í reikninginn á tískuvikunni í Peking á dögunum þar sem litrík efni, flott form og öðruvísi hönnun en við Vestur- landabúar erum vanir gerði allt vitlaust og nokkuð víst að hönnuð- ir í Kína eiga eftir að láta mikið til sín taka á næstu árum, ef ekki mánuðum. lilja@frettabladid.is Opið mán-fös 10-18 www.atson.is Brautarholti 4 Tískuvöruverslun Glæsibæ Sími 588 4848 Full búð af glæsilegum sumarfatnaði Hlíðarsmára 11 • Kópavogi • sími 517 6460 • www.belladonna.is AÐEINS Í DAG 25% afsláttur af öllum vörum frá Opið mán-fös 11-18 laugardaga 12-16                         !" #$%& #$%&!# '(& )$*!&*() " Hinn frægi fatahönnuður Tom Ford hlýtur Andre Leon Talley lífstíðarverðlaunin þetta árið en þau eru veitt í Savannah-lista- háskólanum í Bandaríkjunum. Áður hafa hönnuðir eins og Oscar de La Renta, Karl Lagerfeld og Miuicca Prada hlotið þessi virtu verðlaun. Ford endurvakti Gucci- merkið og það er honum að þakka hve sexí það er í dag. Flott snið og æðislegir fylgihlutir tryggðu Gucci yngri kaupendur, jafnt og þá eldri. Ford hætti hjá Gucci fyrir stuttu og vakti það óhug í tískuheiminum. Hann tekur við verðlaununum 20. maí og verður afhendingin væntanlega sýnd beint á netinu. Þessi hönnun var liður í útskriftarsýningu hönnunardeildar við Peking-háskóla. Hér sjást nokkrar fyrirsætur í baðfötum sem hönnuð voru fyrir Ólympíuleikana árið 2008 sem verða í Peking. Flott hönnun í skærum litum sem var kynnt í keppni ungra hönnuða í síðustu viku.Ekki beint efnismikið en flott er það. Ford fær tískuverðlaun Þessi frægi hönnuður er virtur í tískuheiminum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.